Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 55
DV Helgarblað föstudagur 14. september 2007 55 Seiðandi palm beach michael Kors er heitur gaur sem sýndi línuna sína fyrr í vikunni við góðar undirtektir. maður getur nánast heyrt í öldunum og fundið sandinn á milli tánna enda mikill palm-fílingur hjá honum. auka- hlutirnir minntu mann á sjöunda áratuginn og lita- pallettan á miami Vice. heitur reitur Heath Ledger er svo ótrúlegur hjartaknúsari. Hann hef- ur sinn persónulega stíl sem oft kemur skemmtilega á óvart eins og þegar hann mætti nú á dögum á kvik- myndahátíðina í feneyjum rosaflottur, nema í stuttbux- um. Það er alveg ljóst að Heath Ledger væri velkominn hingað á Klakann, jafnvel nokkur eintök, takk! Persónan FrjálSlegt og Flæðandi Vor- og SumartíSkan barin augum kristín Hönnuðurinn Cynthia rowley er fyndin, frjálsleg og ekki feimin við að leika sér með kynþokka og kvenleika. Línan hennar saman- stendur af þessum eiginleikum hennar þar sem hún er frjálsleg, efnin liggja frjálslega um granna líkama fyrirsætnanna. Litirnir eru dempaðir en um leið fölbleikir og nokkrir bláir tónar. Cynthia rowley sýndi línuna sína núna um helgina á tískuvikunni í New York og voru viðbrögðin góð. eitt af því sem vakti athygli voru handmáluð hjól sem voru höfð báðum megin við pallinn og voru notuð í lokin. fötin eru frekar sportí þar sem þau eru frekar víð og frjálsleg en fáguð um leið. Hún sjálf sagði litapallettuna byggjast upp á hinum ýmsu litum íss og litlum díteilum sem rúsínuna í pylsuendanum. Nafn? „Kristín guðmundsdóttir.“ Aldur? „21 árs.“ Starf? „Var að hefja nám við Háskóla Íslands í mannfræði. so far, so good... annars vinn ég í versluninni epal með.“ Stíllinn þinn? „Ég held að stíllinn minn sé bara frekar beisik... klæðist mjög mikið svörtu og finnst svo gaman að blanda öðrum litum við eins og til dæmis fjólubláum sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Var í bandaríkjunum um daginn og uppgötvaði amercan apparel sem er með ótrúleg flott og praktísk föt á ekki svo mikinn pening.“ Allir ættu að... „...kaupa sér góða úlpu fyrir veturinn.“ Hvað er möst að eiga? „góðan náttserk.“ Hvað keyptir þú þér síðast? „Keypti mér fullt af skemmtilegu og sniðugu dóti í bNa, föt, plötuspilara, lomo-myndavél og margt fleira.“ Hverju færð þú ekki nóg af? „Úff ég veit það ekki. ef mínir nánustu væru spurðir myndu þeir líklega segja að ég fengi ekki nóg af fjólubláu leggingsunum mínum.“ Næsta tilhlökkun? „byrja á fullu í skólanum og takast á við nýja og spennandi hluti.“ Hvert fórstu síðast í ferðalag? „Ég fór til New York seinnipartinn í ágúst og hún er nýja uppáhaldsborgin mín. Ég tróð mér með hljómsveitinni fm belfast sem var að spila þar ytra... mæli tvímælalaust með þessari borg.“ Hvað langar þig í akkúrat núna? „akkúrat núna langar mig í hnausþykkan súkkulaðisjeik úr ísbúðinni á Hagamelnum! Namm...“ Perlur hér heima? „fallegasti staður á Íslandi er seyðisfjörður að mínu mati. Ég var þar mikið þegar ég var lítil og þar er einfaldlega yndislegt að vera. annars þarf maður ekki að fara langt út úr bænum til þess að komast í snertingu við fallega náttúru.“ Hvenær fórstu að sofa í nótt? „um eittleytið.“ Hvenær hefur þú það best? „Í heitu baði. ahhh...“ Afrek vikunnar? „að mæta fersk í skólann á mánudags- morguninn. Það tel ég mikið afrek.“ Cynthia rowley sjálf hjólandi og glöð í lok sýningarinnar. Nú er tískuvikan hafin með pompi og prakt í New York og sýningar hver á fætur annarri. Við er að búast að New York sé stútfull af tískuspekúlöntum héðan og þaðan enda einn stærsti viðburðurinn í tískuheiminum. fyrstu dagarnir á tískuvikunni í New York benda til þess að sumartískan næsta ár verði sveipuð léttleika og ljósum tónum. Það voru dempaðir litir hjá hönnuðum eins og Charlotte ronson og erin fetherston og rómantík hjá hönnuðum eins og Venexiana. einnig voru litir eins og fjólublár, appelsínugul- ur og grænn áberandi hjá sumum hönnuðum en ljósbleikir og gulir hjá öðrum. DVMYND Ásgeir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.