Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Blaðsíða 41
Starfsferill Guðný fæddist í Reykjavík 23.1. 1954 og ólst þar upp og að Gljúfrasteini í Mosfellsdal. Hún lauk stúdentsprófi frá MT 1974 og prófi í almennri kvik- myndagerð frá London International Filmschool 1981. Guðný var kennari og uppeldis- fulltrúi við skólaheimilið í Breiðuvík 1974–1976, var aðstoðardagskrárgerð- armaður við RÚV-Sjónvarp 1976– 1978, aðstoðarleikstjóri og skrifta hjá ýmsum kvikmyndafyrirtækjum 1978– 1979 og hefur verið handritshöfund- ur og leikstjóri hjá Kvikmyndafélaginu Umba frá 1981. Guðný leikstýrði kvikmyndun- um Kristnihald undir Jökli, 1989, eftir samnefndri skáldsögu Halldórs Lax- ness; Karlakórinn Hekla, 1992; Ung- frúin góða og húsið, 1999, eftir sögu Halldórs Laxness, og Stella í fram- boði, 2002. Hún skrifaði handrit að kvikmyndunum Skilaboð til Söndru; Stella í orlofi; Karlakórinn Hekla, Æv- intýri á Norðurslóðum og Stella í fram- boði. Hún hefur stjórnað gerð fjölda heimildarmynda og sjónvarpsþátta, stjórnað leiknum sjónvarpsmyndum, ýmsum skemmtiþáttum og var einn af höfundum og leikstjóri áramóta- skaupanna 1984 og 1994. Þá var hún framkvæmdastjóri kvikmyndanna Stella í orlofi og Skilaboð til Söndru. Guðný hlaut Lübecker filmulins- una 1989 og myndin Ungfrúin góða og húsið fékk Edduverðlaunin sem besta kvikmyndin 1999. Guðný sat í stjórn Félags kvik- myndagerðarmanna 1981–1983, í stjórn Alþýðubandalagsins í Kjósar- sýslu um skeið frá 1988, í úthlutunar- nefnd Evrópskra kvikmyndaverðlauna 1990 og sat í bæjarstjórn Mosfellsbæj- ar 1994–2002. Fjölskylda Maður Guðnýjar er Halldór Þor- geirsson, f. 25.1. 1960, kvikmynda- gerðarmaður. Hann er sonur Þorgeirs Halldórssonar skrifstofumanns og Láru Hansdóttur skrifstofumanns. Sonur Guðnýjar og Halldórs er Halldór, f. 16.5. 1985, námsmaður við HÍ. Systir Guðnýjar er Sigríður, f. 26.5. 1951, húsmóðir og þýðandi í Reykja- vík. Hálfsystkini Guðnýjar, samfeðra, eru María, f. 10.4. 1923, húsmóðir; Einar Laxness, f. 9.8. 1931, kennari og sagnfræðingur. Foreldrar Guðnýjar: Halldór Lax- ness, f. 23.4. 1902, d. 8.2. 1998, rithöf- undur að Gljúfrasteini í Mosfellsdal, og kona hans, Auður Sveinsdóttir, f. 30.7. 1918, húsmóðir. Ætt Halldór var sonur Guðjóns, vega- verkstjóra í Laxnesi Helgasonar, b. á Lambastöðum, hálfbróður, sam- mæðra, Jóns í Leyni, afa Guðmundar Böðvarssonar skálds, föður Böðvars rithöfundar. Annar hálfbróðir Helga var Einar, afi Stefáns Jónssonar rit- höfundar. Hálfsystir Helga var Hildur, húsfreyja í Ánanaustum, langamma Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra og Markúsar Arnar Antons- sonar, fyrrv. borgarstjóra. Helgi var sonur Böðvars, b. í Fljótstungu Jóns- sonar, og Margrétar Þorláksdóttur. Móðir Guðjóns var Guðrún, syst- ir Þórunnar, ömmu Þórunnar Elfu Magnúsdóttur skáldkonu, móður Megasar. Guðrún var dóttir Sveins, smiðs á Beigalda Sigurðssonar, og Sigríðar Sigurðardóttur. Móðir Halldórs Laxness var Sig- ríður Halldórsdóttir, b. á Kirkjuferju, bróður Jóns í Miðhúsum, afa Guðna Jónssonar prófessors, föður Bjarna prófessors. Halldór var sonur Jóns yngra, b. á Núpum Þórðarsonar, bróður Sólveigar, langömmu Arin- bjarnar Kolbeinssonar læknis. Bróð- ir Jóns var Einar, b. á Þurá, langafi Vals Gíslasonar leikara, föður Vals, fyrrv. bankastjóra, og langafi Garðars kaupmanns, föður Guðmundar H., fyrrv. alþm.. Móðir Halldórs á Kirkju- ferju var Sigríður Gísladóttir, systir Guðna, b. í Saurbæ, langafa Sigríð- ar, móður Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Sigríðar Halldórsdóttur var Guðný, systir Guðrúnar í Melkoti í Reykjavík (Brekkukoti). Guðný var dóttir Klængs, b. á Kirkjuferju Ólafs- sonar, b. í Ásgarði í Grímsnesi Guð- mundssonar. Móðir Klængs var Guð- ný, systir Ísleifs, dómsstjóra á Brekku á Álftanesi. Guðný var dóttir Einars, Skálholtsrektors Jónssonar. Auður er dóttir Sveins, járnsmiðs í Reykjavík, hálfbróður Eggerts Jó- hannessonar, föður Margrétar söng- konu og Jóhannesar sellóleikara. Sveinn var sonur Guðmundar, b. á Nýjabæ í Ölfusi Gíslasonar, og Mar- grétar, systur Hafliða, afa Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara. Mar- grét var dóttir Jóns, b. á Álfsstöðum á Skeiðum Magnússonar, bróður Ein- ars, afa Einars Magnússonar rektors. Móðir Margrétar var Margrét Dórót- hea, systir Guðmundar, b. í Miðdal, langafa Vigdísar Finnbogadóttur, Errós og Bjarna Guðnasonar próf- essors. Margrét Dóróteha var dóttir Einars, b. á Álfsstöðum Gíslasonar. Móðir Auðar var Halldóra Krist- ín, systir Steinunnar, móður Bald- vins Halldórssonar leikara, föður Páls Baldvins dagskrárgerðarmanns og Ingu Láru deildarstjóra. Halldóra Kristín var dóttir Jóns, b. á Auðshaugi Þórðarsonar, b. á Þórisstöðum, bróð- ur Þorsteins í Æðey, föður Péturs Thorsteinssonar útgerðarmanns, föður Muggs, og afa Péturs Thor- steinssonar sendiherra, föður Eiríks kvikmyndagerðarmanns. Þórður var sonur Þorsteins, pr. í Gufudal Þórðar- sonar og Guðbjargar, systur Guðrún- ar, langömmu Sigríðar, langömmu Jóns Baldvins Hannibalssonar. Guð- björg var dóttir Magnúsar, b. í Súða- vík, bróður Þórðar, ættföður Vigur- ættarinnar. Magnús var sonur Ólafs, ættföður Eyrarættarinnar Jónsson- ar, langafa Jóns forseta. Móðir Jóns á Auðshaugi var Guðrún, systir Helgu, langömmu Þuríðar, móður Viðars Víkingssonar kvikmyndagerðar- manns, en bróðir Guðrúnar var Jón, faðir Björns, ráðherra og rit- stjóra, föður Sveins forseta. Guðrún var dóttir Jóns, b. í Djúpadal, bróð- ur Guðrúnar, ömmu Gests Pálsson- ar skálds. Móðir Halldóru Kristínar var Hólmfríður Theodóra Ebenez- ardóttir, snikkara í Flatey Matthías- sonar. Móðir Ebenezar var Sigríður Pálsdóttir, meðhjálpara í Flatey Páls- sonar, og Sigríðar Guðmundsdóttur, systur Ástríðar í Skáleyjum, ömmu skáldanna Theodóru Thoroddsen og Matthíasar Jochumssonar. DV Ættfræði föstudagur 14. september 2007 41 MAÐUR VIKUNNAR Guðný Halldórsdóttir kvikmyndagerðarmaður Guðný Halldórsdóttir kvik- myndagerðarmaður er leik- stjóri og handritshöfundur kvikmyndarinnar Veðramót sem frumsýnd var 7. septem- ber. Myndin hefur fengið frá- bæra dóma gagnrýnenda. Hún er örlagaþrungin og harmræn spennumynd sem byggir að hluta til á eigin reynslu leik- stjórans sem starfaði við skóla- heimilið í Breiðuvík fyrir rúm- um þrjátíu árum. WWW.GAP.IS ALVÖ RU FJ ALLA HJÓL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.