Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 18
Þórhallur Gunnarsson hefur gengið of langt. Hann hefur orðið uppvís að pólitískri aðför. Hann hefur ráðist að Jóhönnu Sigurðardóttur. Jóhönnu, einmitt þegar hennar tími er kominn. Jóhanna er aftur komin af stað, tekin við sínu gamla ráðuneyti og fundar um allt, keyrir sjálf á ódýrasta ráðherrabílnum. Þegar allt leikur í lyndi kemur þessi Þórhallur og gerir það litla sem hann getur til að skemma það fallega, það fagra og það góða. Þórhallur verður að gera sér grein fyrir því að það eru fleiri en Jóhanna sem fagna ráðherradómi hennar. Það eru fáir stjórnmálamenn sem hafa meiri hylli fólksins en Jóhanna. Reyndar fór hennar tími aldrei, en samt er hennar tími svo sannarlega kominn. Það skaltu vita, Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins. Jóhanna er að gera allt sem hún getur til að Vinnu-málastofnun hypji sig af stað og fari að vinna vinn- una sína. Jóhanna vill út- rýma launamun, Jóhanna vill svo margt að sagt er að þegar ríkisstjórn Íslands mætir til funda dugi Jóhönnu ekki skjalataska eins og hinum ráð- herrunum. Sagt er að Jóhanna komi með heilu skjala- söfnin með sér á fund- ina og eigi meira heima, sem hún hefur ekki komið með á ríkisstjórn- arfundina, ekki ennþá. En það kemur, rétt eins og tíminn hennar Jóhönnu. Nóg um Jóhönnu í bili. En hver er hann þessi Þór- hallur? Sá sem leyfir sér að ráðast gegn Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann er vissulega ágætis maður, hann Þórhallur. Það mun- ar eflaust um minni menn en hann. En það er bara hluti þess sem þarf í lífinu. Það er nú bara þannig. Menn verða að þekkja sinn tíma og sín takmörk. Vel má vera að Þórhallur hafi gert margt gott og jafnvel meira en flesta grunar. Það skýrist kannski seinna, en það er með hann sem svo marga aðra að hann virðist ekki þekkja sín tak- mörk og ekki sinn tíma. Hans tími kann að koma. Aðförin að Jóhönnu er ósmekkleg. Loksins þeg-ar ekki er mögulegt að efast um að hennar tími er kominn. Hafi einhver efast er það ekki hægt lengur. Jóhanna er komin á skrið og þeir sem hafa treyst á hana hafa horft fram á betri tíð með blóm í haga. Þá fellur sprengjan og sprengjusérfræðingurinn er Þórhallur Gunnarsson. Best er að Þórhallur skýri hvað honum gekk til þegar hann rak Randver Þorláksson úr Spaugstofunni. Þetta hefur ekkert með Randver að gera, enda vammlaus leikari og maður. Það sjá allir að þetta er aðför að Jóhönnu. Þórhallur, viltu svara hver á að leika Jóhönnu þegar Randver er ekki lengur í Spaugstofunni? Svars er beðið, Þórhallur Gunnarsson. föstudagur 14. september 200718 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. Aðför Að Jóhönnu daggeisli Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Ekki gleyma að allt þetta er mannanna verk. Hverjum skal kenna um leiðari Guðmundur Kristjánsson í Brimi hefur flutt kvótann frá Akureyri. Þetta er kvótakerfinu að kenna, segir Konráð Alfreðsson, forystumaður sjómanna á Akureyri, og sama segir Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Þetta er mikil einföldun hjá þeim báðum. Kerfið flutti engar fiskveiðiheimildir eitt né neitt. Það gerði eigandi fyrirtækisins. Það er líka kvótakerfi hjá hinu stóra útgerðarfyrirtækinu á Akureyri; Samherja. Þess kvóti er enn á Akureyri. Það er ekki endalaust hægt að kenna kvótakerfinu um allt sem miður fer í sjávarútvegi. Það var ekki kvótakerfið sem flutti út nærri sextíu þúsund tonn af óunnum fiski á síðasta ári. Það voru rétthafar kvótans sem það gerðu og drógu þar með úr vinnu verkafólks. Það er ekki kvótakerfinu að kenna, útgerðir hafa sprengt svo upp verðið á aflaheimildum að verðið er komið langt umfram allt sem eðlilegt getur talist. Það er ekki kvótakerfið sem verðleggur veiðiheimildirnar þannig að það taki tuttugu ár að fiska upp í verðið. Það er ekki reykingabanninu að kenna að sóðar standa utan við búllurnar og henda frá sér sígarettum og bjórdósum eða kasta af sér vatni. Það er fólkinu sjálfu að kenna. Það er ekki vegunum að kenna þegar bílum er ekið of hratt. Það eru ökumennirnir sem bera ábyrgðina. Sama er með kvótakerfið. Vissulega er það þvingandi og það er erfitt. Það gerir mörgum erfitt fyrir og dregur úr möguleikum. Það breytir því ekki að ekki er mögulegt að kenna kerfinu um allt hið illa, einkum og sér í lagi ekki um það vonda eða ranga í fari mannanna. Það er sama hvað menn gráta hátt og reyna að finna blóraböggla þá bætir það ekki neitt. Það er ástæða fyrir því að eigandi Brims telur rekstri sínum betur komið annars staðar. Hann myndi eflaust gera það sama þótt annað fiskveiðikerfi væri hér. Meðan þeir sem eiga að hafa áhrif festast í ásökunum á kerfið eru þeir gagnslausir. Það er ljóst að kvótakerfið verður áfram og þeir sem sífellt spyrna við fótum verða uppteknir við það og gera því ekkert að gagni á meðan. Því fer fjarri að öll fyrirtæki og allar byggðir hafi farið illa út úr því kerfi sem nú er, það er fjarri því. Það eru sjávarbyggðir á Íslandi sem eru aldrei í fréttum vegna kvótakerfisins. Þar þrífst ágætt mannlíf. Fólkið í þeim byggðum verður að taka á þeim vanda sem nú blasir við, og gerir það. Ekki gleyma að allt þetta er mannanna verk. Ekki bara takmarkaðar veiðar, líka stórkostlegur útflutningur á óunnum fiski, eins allt of mörg veiðiskip sem leiðir til okurverðs á aflaheimildum, brottkastið er mannanna verk og sama er að segja um annað svindl sem gerir myndina dekkri og verri. dómstóll götunnar Finnst þér að Færa eigi ÁrbæjarsaFnið? „Ég skil ekki hvers vegna ætti að færa Árbæjarsafnið úr Árbænum. Hvað á safnið eiginlega að heita eftir það? mér finnst rétt að hafa það áfram í Árbænum því þar veit maður af því.“ Gunnar Sandholt, 24 ára nemi „nei, mér finnst að það eigi að vera þar sem það er. Það er á góðum stað og mér finnst gott að koma þangað. aðrir staðir koma bara ekki til greina.“ Elvíra Viktorsdóttir, 52 ára leikskólakennari „safnið á að vera áfram á sínum stað þó svo að ég hafi aldrei komið þangað. Hugmyndin um að færa það í Viðey er reyndar ekki galin, það gæti aukið líkurnar á að fleiri myndu heimsækja safnið.“ Marta Rut Pálsdóttir, 26 verslunarstjóri „Það er alveg fráleitt að hugleiða flutning. mér finnst vitleysa að hugleiða aðra staði og það á alls ekkert að hreyfa við hlutunum. Viðey á að vera áfram eins og hún er og ég kann vel við að hafa safnið þar sem það er.“ Hólmfríður Guðjónsdóttir, 70 ára húsmóðir sandkorn n Eitthvað standa þau í sum- um orð Örnólfs Thorssonar, ráðgjafa forseta, um að ekki væri hægt að gefa upp ferðaáætlun forseta Ís- lands vegna öryggis- sjónarmiða. Þetta sagði hann þegar DV óskaði staðfestingar á því að Ólafur Ragnar Grímsson hefði flogið með einkaþotu til Bretlands. Það sem vefst fyrir mönnum er hvaða öryggissjónarmiða þurfti að gæta fyrst forsetinn var kominn aftur heim. n Dagskráin á Ríkisútvarp- inu breytist þennan veturinn frá því sem verið hefur. Þannig hef- ur Sigrún Stefánsdótt- ir, dagskrár- stjóri Rásar 1 og Rásar 2, ákveð- ið að slá af þættina Í vikulokin og laugar- dagsþátt fréttastofu útvarps. Nokkur sjónvarsviptir verður að þáttunum. Þannig má búast við að einhverjir eigi erfitt að venjast því að Í vikulokin verði ekki á sínum fasta stað, þar sem hann hefur verið árum saman. n Brotthvarf Randvers Þor- lákssonar úr Spaugstofunni kom flestum á óvart. Það á sér þó langan aðdrag- anda þó ekki hafi verið geng- ið í það fyrr en Þórhall- ur Gunn- arsson, dagskrár- stjóri Sjónvarps, ákvað að reka hann. Eitthvað mun þó hafa komið til umræðu fyr- ir þremur árum að Randver hætti og reyndar mun Randver ekki hafa verið sá eini sem hvarflaði að mönn- um að færi. Pálmi Gestsson mun hafa verið orðinn valtur á tímabili. n Íþróttablaðamaðurinn Albert Örn Eyþórsson á Blaðinu er ekki vinsælasti maðurinn hjá Blaksam- bandi Íslands þessa dagana. Þeir furða sig á skrifum hans um nýlega keppnisferð ung- mennalandsliðsins þar sem allir leikir töpuðust. Birtist þá frétt í Blaðinu þar sem farið var mjög hörð- um orðum um ár- angurinn. Þykir blak- mönnum illa vegið að ungum börnum. Fyrri skrif hafa líka vakið athygli, eins og þegar Blaðið sagði að aðeins heilaskað- aðir hefðu gaman af fjöl- bragðaglímu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.