Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 19
Aðför Að Jóhönnu Í Fréttablaðinu á miðvikudag er pöntuð umfjöllun fyrir Ingibjörgu Sólrúnu, utanríkisráðherra og
formann Samfylkingarinnar. Þar
lætur hún koma fram að Ísland sé
ekki lengur á þeim lista sem kallaður
hefur verið „listi hinna staðföstu
þjóða“, vegna þess að hún hafi í ósætti
við forsætisráðherra ákveðið að kalla
einn upplýsingafulltrúa Íslensku
friðargæslunnar heim frá Írak. Þessi listi
hefur verið margumræddur í umræðu
um Íraksstríðið og stjórnarandstaða
síðustu kjörtímabila hefur alltaf
haldið því fram að Ísland sé á þessum
lista með samþykki okkar, sem eru
ósannindi og fullkomlega út í hött.
Helstu fyrirheit stjórnarandstöðunnar
fyrir síðustu kosningar voru að ef þeir
kæmust til valda yrði það eitt af fyrstu
verkum að taka Ísland af þessum lista.
Umfjöllunin sem Ingibjörg Sólrún
fékk inn í Fréttablaðið í gær er villandi
og ósönn, eins og svo margt annað
sem frá þessu fólki hefur komið. Í
Viðskiptablaðinu í dag er fjallað um
þetta mál. Þar kemur fram sem rétt
er að þessi margumræddi listi var
aðeins hluti af fréttatilkynningu sem
birtist á heimasíðu Hvíta hússins í
Washington í mars árið 2003. Þessari
fréttatilkynningu hefur í engu verið
breytt, sem von er, og hana má
finna algerlega óbreytta á þessari
heimasíðu.
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins
er vísað í það að embættismenn í
utanríkisráðuneytinu skilji ekkert í
því hvað utanríkisráðherrann hefur
verið að bulla í Fréttablaðinu, en
vísa til þess að hún sjálf verði að
útskýra þessa villandi umfjöllun.
Þessir ágætu embættismenn
virðast telja að ráðherrann sé
að rugla saman einhverjum
gögnum hjá Bandaríkjamönnum,
embættismennirnir botna sem
sé ekkert í þessum yfirlýsingum
ráðherrans. Ég tel þó að ráðherrann
sé að þessu vísvitandi til að rugla
umræðuna, með von um að ekki
komist upp um hana.
Það vita allir sem til þekkja og hafa
fylgst með, að fyrir utan sérhæfingu
Samfylkingarinnar í vindhanapólitík
hefur samfylkingarfólk lagt sig
sérstaklega fram um ómerkilegan
og villandi málflutning um hin
ýmsu mál. Þrátt fyrir að of oft grípi
stjórnmálamenn almennt til slíkra
æfinga liggur fyrir að Samfylkingin er
þar í sérflokki. Yfirlýsingar Ingibjargar
Sólrúnar í Fréttablaðinu á miðvikudag
falla undir þessa skilgreiningu. Hún er
sem sé að reyna að halda áfram við að
slá pólitískar keilur í Íraksmálinu, en
eins og áður er hér um vindhögg að
ræða.
Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér! Míkrómynd af bekk niðri við Austurvöll í septembermánuði. Miklar rigningar hafa verið í
Reykjavík undanfarnar vikur og ljóst er að haustið er á næstu grösum. DV-MYND ÁSGEIRmyndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
Mínusinn í dag fær forseti
Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
fyrir að fljúga á einkaþotu til að opna
umhverfisvænstu skrifstofu Bretlands.
Útblástur á hvern farþega í einkaþotum
er meiri en á hvern farþega í almennu
flugi. Það er ekki nóg að vera tákngerv-
ingur fyrir umhverfisvernd. Það þarf
sýna viljann í verki.
Spurningin
„Ég held að ég
hefði ekki mikla
þolinmæði fyrir
því. Sársauki er
nokkuð sem
enginn á að sætta
sig við og við því
þarf að bregðast
strax, hvort sem
um er að ræða
börn eða
fullorðna,“ segir Ásta Möller, formaður
heilbrigðisnefndar Alþingis.
Hve lengi værir þú
til í að vera með
tannpínu?
Sandkassinn
hræsni sumra getur verið
ótrúleg. Í vikunni heyrði
ég auglýsingu í útvarpi frá
samloku-
staðnum
Subway, þar
sem þeir
stærðu sig af
því að hafa
lækkað verð
á samlokum
sínum í takt
við lækkanir á
virðisaukaskatti á matvörum í
mars. Á almenningur að vera
rosalega glaður og þakklátur
Subway fyrir að hafa ekki
rænt af sér virðisaukaskattsl
ækkuninni, sem átti alltaf að
skila sér til neytenda? Ég geri
verulegar athugasemdir við
þessa auglýsingu. Fyrir það
fyrsta, síðan hvenær er það
orðið auglýsingatækifæri fyrir
fyrirtæki að monta sig af því
að vera ekki ræningjar?
ÞAð er skrítið viðskiptasiðferði
þegar fyrirtæki sjá ástæðu til
þess að auglýsa það sérstaklega
að þau séu
ekki svikarar.
Er þá ekki
rökrétt að ætla
að þegar þau
monta sig ekki
af heiðarleika
séu þau að
svíkja okkur?
Nei, ég bara
spyr. Ef skatturinn myndi senda
frá sér útvarpsauglýsingu
sem hljóðaði eitthvað á þessa
leið: „Ríkisskattstjóri er ekki
að skattleggja ykkur meira
en lög kveða á um,“ ætti
almenningur þá að hugsa með
sér hversu frábært fyrirbæri
skatturinn væri? Þegar ég heyrði
auglýsingu Subway í útvarpinu
þá fannst mér skilaboðin með
henni vera skýr: Neytendur eru
fífl.
ÞAð sem er þó verst við þessa
hræsnisherferð
Subway-manna,
er að sama hverju
þeir halda fram,
skiluðu þeir bara
ekkert þessari virðis-
aukaskattslækkun
til neytenda. Í lok
síðasta árs kostaði
bátur mánaðarins
á Subway 299
krónur eins og
hann hafði gert mörg undanfarin
ár. Skyndilega hækkaði hann
alveg upp úr þurru í 339 krónur.
Og þannig hélst verðið fyrstu
tvo mánuði ársins, eða alveg til
1. mars þegar báturinn lækkaði
aftur niður í 299 kall. Það er
eitt að vera hræsnari og með
skrítið viðskiptasiðferði, en það
er annað að vera lygari. Subway
lýgur að viðskiptavinum sínum.
valgeir Örn er ekki sáttur.
„Listi hinna staðföstu þjóða“
magnúS
SteFÁnSSOn
alþingismaður skrifar
„...hefur samfylking-
arfólk lagt sig sérstak-
lega fram um ómerki-
legan og villandi
málflutning um hin
ýmsu mál.“
DV Umræða föStudAguR 14. SepteMbeR 2007 19
DV fyrir
25 árum
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI