Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Page 30
föstudagur 14. september 200730 Sport DV
Handboltavertíðin er að hefjast og í kvöld byrjar N1-deild karla með tveimur leikjum. Spá formanna, þjálfara og
fyrirliða liðanna átta sem í deildinni eru var birt nýverið og þar er nýliðunum Aftureldingu og ÍBV spáð falli.
STJÖRNUNNI SPÁÐ SIGRI
Ólafur Víðir Ólafsson
varafyrirliði
„Þetta er mjög raunhæft. Það er engin pressa, við setjum okkar
pressu og okkar markmið. Við erum kannski með stærsta og breiðasta
hópinn. Við erum mjög vel staddir. Það eru allir með hlutverk í liðinu
og ef einhver dettur út kemur bara næsti inn. Við erum með tvo
rosalega góða markmenn. Svo erum við með þrjá, fjóra leikmenn sem
eru vel á annan metra og getum spilað mjög sterka 6-0 vörn. Við erum
mjög fljótir fram á við. Ég sé enga veikleika eins og staðan er í dag.
Eigum við ekki að slá því föstu að Stjarnan verði Íslandsmeistari?“
STJARNAN Ólafur Haukur Gíslason
fyrirliði
„Við erum búnir að missa Markús og Sigga og Stjarnan er búin
að styrkja sig mikið. Þetta er mjög eðlileg spá að mínu mati en við
hlustum ekkert á svona spár. Við förum í hvern einasta leik til að
vinna. Við erum með mikla keppnismenn, menn sem hafa lært það
á Hlíðarenda að það kemur ekkert annað til greina. Menn eru að tala
um að þeir finni andann sem var í gamla húsinu og það veit bara á
gott. Það þýðir bara að við eigum eftir að spila eins og englar í nýja
húsinu í vetur.“
VALUR
Aron Kristjánsson
þjálfari
„Þessi spá er eftir bókinni, held ég að megi segja. Stjarnan er búin að
styrkja sig mikið og kannski er eðlilegt að spá þeim Íslandsmeistaratitli.
Hvað okkur í Haukunum varðar þurfum við að snúa við skipinu. Eftir
margra ára velgengni kom lélegt tímabil í fyrra. Nú er bara að snúa
því við. Við erum komnir ágætlega af stað, erum búnir að fá helling
af ungum leikmönnum upp í hópinn og nokkra nýja leikmenn inn í
félagið. Við ætlum að vera í 1.–4. sæti. Við ætlum að vera í baráttunni
á öllum vígstöðum.“
HAUKAR Gunnar Magnússon
aðstoðarþjálfari
„Þetta er svipað og reiknað var með. Við erum veikari á
pappírunum í dag heldur en í fyrra. Við höfum verið að fylla skörðin
með ungum leikmönnum, við gefum þeim meiri ábyrgð og treystum
þeim fullkomlega í þetta hlutverk. Svo er bara að sjá hvernig þetta
gengur þegar deildin byrjar og ég hef fulla trú á mínum mönnum.
Draumurinn er að gera betur en í fyrra. Það væri hálfasnalegt að lenda
í öðru sæti og stefna svo á þriðja sætið árið eftir. En við gerum okkur
grein fyrir að þetta verður erfiðara en í fyrra.“
HK
Hjörtur Hinriksson
fyrirliði
„Ég tel þetta bara vera mjög góða spá fyrir okkur. Fólk hefur verið
að einblína svolítið á vesenið sem hefur verið í kringum liðið en
hópurinn er samstilltur og ætlar sér að berjast á toppnum í vetur. Ég
er sannfærður um að deildin verður jafnari í vetur. Liðin eru orðin
sterkari heilt yfir, þó það hafi verið blóðtökur á ýmsum stöðum.
Ég held að liðin muni tína stig af hvort öðru. Við verðum þarna í
titilbaráttunni.“
FRAM Rúnar Sigtryggsson
þjálfari
„Ég tel spána vera raunhæfa þegar maður skoðar liðin á pappírnum og
hvernig liðin hafa verið að styrkja sig í sumar. Ég er sáttur við þá leikmenn
sem við erum með. Auðvitað hefði maður viljað fá fleiri leikmenn svo
það væri auðveldara að ná betri árangri. En menn hafa lagt sig mikið
fram og meira á sig en áður. Vonandi að menn uppskeri. Við ætlum að
gera betur en í fyrra, það er okkar markmið. Reyna að bæta okkur. Ég á
von á því að toppliðin verði ekki eins afgerandi og í fyrra. Það var mikill
missir fyrir HK að missa Valdimar og Val að missa Markús Mána. Það er
spurningarmerki hvernig liðin ná að fylla þessi skörð.“
AKUREYRI
Bjarki Sigurðsson
þjálfari
„Ég átti svo sem alveg von á þessu (að vera spáð 7. sæti). Við erum með
ungt lið og erum að koma upp úr 1. deildinni. Liðin þurfa að hafa góða
breidd til að halda þetta út. Ég er nokkuð sannfærður um að þetta verði
frekar jöfn deild í ár, jafnari en hún hefur verið undanfarin ár. Við ætlum
að styrkja okkur um einhverja tvo leikmenn í viðbót. Við höfum verið að
spila æfingaleiki og standa í þessum liðum. Ég tel okkur alveg geta gert það
í vetur. Við erum með ungt lið en samt reynslumikið lið. Ég hef þá trú að
þessir drengir hafi mikið keppnisskap og getu til að ná langt. Við þurfum
bara að sýna það inni á vellinum. Við ætlum að skáka þeim bestu í vetur.“
AFTURELDING
UMF
SELFOSS
1936
IHF
ÍBA
1
1
.
A P R ÍL 1
9
0
9
ÍSLA ND
kn
at
ts
py
rn
ud
ei
ld
Íþróttafélag Hafnar
fja
rð
a
Sigurður Bragason
fyrirliði
„Það kemur mér ekkert á óvart (að ÍBV sé spáð neðsta sæti). Við
erum það lið sem var fyrir neðan af þeim liðum sem komu upp
og munurinn á þessum deildum er talsverður. Við misstum fjóra
byrjunarliðsmenn í fyrra og höfum eiginlega bætt það með þremur
mönnum, það eru þrír útlendingar. Þeir hafa komið ágætlega út. Það
er einn Lithái, hann er klassaspilari sem á eftir að vera áberandi í
vetur. Þetta á kannski eftir að ganga illa hjá okkur í byrjun, við erum
með nýja leikmenn og erum ungir. En þá reynir bara á mannskapinn.
Við bara berjumst, það er ekkert annað sem við getum gert.“
ÍBV
N1-deild karla í handbolta hefst í kvöld með tveim-ur leikjum, þegar HK tekur á móti Stjörnunni í Digranesi og Valur fær Hauka í heimsókn í Vodafone-höllina. Á morgun fara fram tveir. Afturelding og Akureyri mætast á Varmá og Fram fer til Vestmannaeyja og spilar við ÍBV.
Árleg spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna
átta var birt á dögunum. Þar er Stjörunni spáð sigri og nýliðum Aftureldingar og ÍBV spáð falli. Stjarnan hefur bætt töluvert við sig frá síðustu leiktíð. Hlynur Morthens og Heimir Árnason komu til Stjörnunnar frá Fylki og Björgvin Hólmgeirsson frá ÍR, svo einhverjir séu nefndir.
HK, sem endaði í öðru sæti á síðustu leiktíð, mætir með töluvert breytt lið til leiks. Valdimar Þórsson, marka-hæsti leikmaður síðasta tímabils, fór til Fram og skömmu síðar til Malmö í Svíþjóð. Valur varð einnig fyrir blóðtöku. Markús Máni Mikaelsson mun lítið sem ekkert spila með Val í vetur vegna anna í vinnu.
Þjálfarar liðanna gunnar magnússon, aðstoðarþjálfari HK, bjarki sigurðsson
, þjálfari
aftureldingar, ferenc buday, þjálfari fram, rúnar sigtryggsson, þjálfari
akureyrar, aron
Kristjánsson, þjálfari Hauka, og Óskar bjarni Óskarsson, þjálfari Vals. Á m
yndina vantar gintaras
savukynas, þjálfara ÍbV, og Kristján Halldórsson, þjálfara stjörnunnar.