Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 35
DV Sport föstudagur 14. september 2007 35
eru eins og ég
var. Lífið var bara handbolti og það eru fáar
þannig í dag. Maður var að mæta á kannski
þrjár æfingar á dag. Þannig var það og þannig
er það hjá sumum en það vantar fleiri.
Það er erfitt að keppa við aðrar afþreyingar.
Það er svo mikið í boði. Maður miðar kannski
við KSÍ. Það er erfitt að keppa við KSÍ, það er
allt önnur umgjörð. Þar eru svo miklu miklu
meiri peningar. HSÍ er svo ofboðslega fátækt
samband miðað við KSÍ og sem dæmi þegar ég
fer með stelpurnar í landsliðsferðir borga þær
ferðirnar alveg sjálfar. KSÍ fer í ferðir og þær
þurfa að taka takkaskóna með sér. Það er erfitt
að keppa við KSÍ því það eru komnir svo miklir
peningar í knattspyrnuna. HSÍ fær hvergi neina
peninga erlendis frá. En ég held samt að það
sé verið að gera góða hluti. Þjálfarar kvenna-
landsliðanna vinna mjög vel saman. Við hitt-
umst reglulega og ræðum málin. Við erum
að leggja upp ákveðin leikkerfi upp í 17 ára
liðinu, sem er líka í 19 ára liðinu og A-liðinu.
Svo bætir maður aðeins við, en við erum öll að
gera það sama, öll með sömu áherslurnar sem
ég tel vera alveg nauðsynlegt. Því þegar yngri
leikmenn koma í eldri liðin kunna stelpurnar á
allt. Þá þarf ekki að kenna allt frá byrjun. Þarna
er verið að búa til ákveðinn tröppugang.
Það verður samt að segjast alveg eins og er
að yngri flokkarnir hafa ekki verið að huga að
styrktarþjálfun og öðru yfir sumartíman. Mörg
félög eru bara að boða á æfingar í fjórða flokki í
lok ágúst, byrjun september. Mótið hjá þeim er
búið í maí. Við unnum mjög vel í yngri lands-
liðunum í sumar og ég tel að það sé búið að
skila miklum árangri. Þannig að framtíðin er
björt og það er fullt af flottum stelpum. Nú er
verið að fara að setja á laggirnar verkefni fyr-
ir stelpur í níunda og tíunda bekk. Bara til að
sýna stelpunum að það sé verið að gera eitt-
hvað því mér finnst við missa of margar stelpur
í fótboltann.“
Yngist bara
Framtíðin hjá hinni 46 ára gömlu Guðríði
er björt. Með bros í hjarta hlakkar hún til að
takast á við verkefni morgundagsins og segist
vera bara að yngjast. „Eins og staðan er núna
er ég með tveggja ára samning við Fylki, þar
sem ég er með ungar og bráðefnilegar stelpur
í unglingaflokki en eru að stíga sín fyrstu spor
í meistaraflokki. Fylkir endurreisti meistara-
flokk kvenna fyrir þetta tímabil og við hlökkum
til að takast á við verkefni vetrarins. Svo er ég
með tveggja ára samning við HSÍ með 17 ára
liðið þannig að ég sé fram á tvö skemmtileg
ár í boltanum með bros á vör. Þetta er öðru-
vísi núna því börnin mín eru orðin það göm-
ul. Þá er þetta miklu minna mál. Þetta var mun
meira mál í gamla daga þegar maður var með
lítil börn. Það þarf að hugsa um þessi börn og
þótt mér hafi boðist það áður að þjálfa landslið
kom það ekki til greina út af ferðalögunum og
öðrum slíkum fjarvistum. Það var ekki grund-
völlur fyrir því. Maður er núna að fara svolítið
mikið út. Því að auki með 17 ára liðið er ég að-
stoðarmaður í 19 ára liðinu þannig að það eru
búin að vera svolítið mikil ferðalög á mér. Aðal-
málið er að börnin mín eru orðin eldri. Maður
var með smá samviskubit, hvernig gengi heima
og allt þannig. Ég er líka nánast alltaf „heima“
hjá mér hérna í Framhúsinu. Ég er búin að vera
kennari í Ármúla í 22 ár og vera hér frá því hús-
ið var opnað. Og mér líður rosalega vel hérna
þótt ég hafi ekki spilað rosalega lengi hér. Ég er
ánægð í kennslunni og að vinna með þessum
krökkum gefur manni margt. Þetta er fram-
haldsskóli og agavandamál því lítil. Ég held
bara svei mér þá að þetta yngi mann upp. Það
er bara gaman og þótt maður sé orðinn pínu
gamall finn ég það ekki. Þegar maður hefur
svona gaman líður manni vel og maður yngist
bara,“ segir hin eiturhressa Guðríður að lokum.
benni@dv.is
„Krakkar í dag verða núna að fara að velja annað hvort handbolta eða
fótbolta í unglingaflokki. Þetta eru orðin svo mikil heilsárssport, það er
ekkert flóknara. Ég sem unglingalandsliðsþjálfari geri þær kröfur á stelp-
urnar að þær æfi um sumarið lyftingar, hlaup og styrki sig og séu ekki í
fótbolta. Ekki þegar þær eru orðnar þetta gamlar.“
d
V
m
yn
d
st
ef
án