Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 39
DV Helgarblað föstudagur 14. september 2007 39 FRAMTÍÐIN HVAÐ BER Í SKAUTI SÉR? Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður Guð gaf okkur of langan tíma „Mér var nú sagt að árið 2050 yrði þetta búið hjá okkur. Þá er nú ekki ólíklegt að minn tími verði einnig liðinn og manni finnst nú ekkert óeðlilegt að heimurinn farist um leið og mað- ur deyr. Annars eigum við bara nokkra áratugi eftir og ég held að guð hafi gefið okkur allt of langan tíma. Þannig að við eig- um ekkert sérstaklega gott skilið. Þannig að það er svart fram und- an hjá okkur.“ Helga Braga Jónsdóttir, leikkona Aðallega bullmál „Maður náttúrulega veit það ekki. Það er það frábæra við framtíðina. Maður getur vonað og vonað en á endanum er hún bara í hendi guðs,“ segir Helga Braga Jónsdóttir leikkona. „Ég bind þó ýmsar vonir við framtíðina. Nýju þáttaröðinni um Stelpurnar hefur verið tekið vel. Þetta eru hressilegir þættir.“ Helga Braga hefur í nógu að snúast. „Við vorum að frumsýna verkið Lík í óskilum. Það er skemmtilegur undirtónn í því. Ég vona að það verði áfram biðlisti á sýningar og fullt út úr dyrum. Síðan erum við að æfa verkið Ræðismannsskrifstofuna með norskum danshöfundi. Þar er aðallega talað bullmál, rússneskt bullmál. Ég er spennt og hlakka til að setja það upp.“ Edda Óttarsdóttir, svæðisstjóri RÚV á Austurlandi Jafnvægi milli fjölskyldu og vinnu „Í fullkomnum heimi ber framtíðin með sér frið og farsæld, ógnvekjandi þróun í loftslagsmálum verður snúið við, hernaðarbrölti hætt og misrétti, ofbeldi og ójöfnuði útrýmt. Því miður eru hlutirnir ekki svo einfaldir og verðum við því bara að vona það besta. Mín nánasta framtíð mun ganga út á að finna jafnvægi milli fjölskyldu og vinnu en ég er nýkomin aftur til starfa eftir tíu mánaða fæðingar- orlof.“ Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Óþrjótandi valkostir „Valkosti. Óþrjótandi valkosti. Við munum bókstaflega fríka út á valkostunum. Hvert sem litið er verður hægt að velja um endalausa kosti – og ókosti. Skýrasta dæmið er valið um upplýsingar. Upplýsingaflæðið er nú þegar orðið botnlaust og þrátt fyrir augljósa kosti sem því fylgja mun það óumflýjanlega leiða til þess að úrvalið verður einhvern veginn takmarkaðra, innihaldið rýrara og einsleitara. Fjölmiðlar framtíðarinnar munu einkennast af þessu stórfenglega og skelfilega offramboði valkostanna. Æ erfiðara verður að kafa og koma auga á perlurnar í þessu botnlausa fjölmiðlahafi, því ég er ansi hræddur um að óreiðan eigi eftir að verða algjör og á stundum gjörsamlega yfirbugandi. Því fleiri sem sjónvarpsrásirnar og þættirnir verða þeim mun erfiðara verði að finna eitthvað bitastætt, eitthvað við sitt hæfi. Sama hvað maður horfir mikið og lengi, þá horfir maður í raun og veru ekki á neitt.“ Ellý Ármannsdóttir, spákona og þula Ísland er næmt fyrir sálrænum öflum „Allir Íslendingar verða færir um að njóta lífsins þótt þeir hafi tilhneigingu til að flýta sér og skapa sér fáránlega mikið annríki því landið okkar er næmt fyrir sálrænum öflum sem hafa áhrif á fólkið í landinu og einmitt þess vegna er eyjan okkar hinn ákjósanlegasti uppeldisstaður mikilmenna.“ Magnús Már Guðmundsson, formaður Ungra jafnaðar- manna Ekki hættur í pólitík „Núna ætla ég að fara að klára skólann. Ég stefni á að ljúka BA- prófi í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands í febrúar. Ég er þó ekki hættur í pólitík. Ég verð til að mynda áfram í framkvæmda- stjórn flokksins, sem er æðsta vald flokksins á milli landsfunda. Ég er bara að hleypa góðu fólki að í stjórn UJ,“ segir Magnús Már Guðmunds- son, formaður Ungra jafnaðar- manna, en hann tilkynnti nýlega að hann hygðist ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í ungliðahreyfingu Samfylkingarinn- ar. Magnús hefur setið í stjórn frá árinu 2003. Bjartmar Þórðarson, leikari Hamingju og frelsi „Ég er harðákveðinn í því að mín framtíð feli í sér mikla hamingju, frelsi í verkefnavali og fjárráð til að veita mér það frelsi. Þetta hefst samt auðvitað ekki nema með mikilli vinnu og vissum aga, en ég geri ráð fyrir því að ég uppskeri vel á endanum. Hvað framtíðina í heimsmálunum varðar er ég á því að eitthvað þurfi að gera í mengunarmálum svo að jörðin úthýsi okkur ekki. Þá meina ég ekki að „kolefnisjafna“... gróðursetja einhverja smáhríslu fyrir hvern tveggja tonna dísiltrukk sem við plöntum á göturnar og bjóða heimilum upp á sorpflokkunartunnur gegn himinháu gjaldi. Vetnissmábíla á göturnar og sorpsektir takk!!! Íslendingar mættu alveg slaka aðeins á í nýjungagirninni og nýta einu sinni eitthvað gamalt sem er í lagi frekar en að moka öllu út um leið og það er orðið ársgamalt.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.