Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Síða 54
föstudagur 14. september 200754 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella. Netfang: tiska@dv.is
Tískan
Sæta, pena Jennifer
Jennifer garner, sem krækti sér í ástarfolann hann ben affleck, bræðir hvern sem er með fallega liðaða hárinu og
krúttlegum spékoppum. Jennifer hefur verið gagnrýnd af hinum ýmsu tískuspekúlöntum fyrir frjálslegan klæðaburð
sem jaðrar við einskæra leti. dúllan er eitthvað að taka sig á því hún fékk lof í tímaritum hið ytra fyrir dressið sem hún
mætti í, ennþá frekar venjuleg og pen en fékk allavega þumla á loft, á grand Hyatt í tókýó vegna nýju myndarinnar
Kingdom. Áfram, Jennifer garner!
Haustið er komið
Nú er farið að dimma, rokið er farið að láta fyrir sér finna og allt orðið voðalega kósí. Fjólublár og
grænn eru litir sem eru áberandi í búðum þessa dagana enda soldið haustlegir. Fyrst það er farið
að dimma er tilvalið að klæða sig í liti til að hressa aðeins upp á andann.
Þar fór í verra
Á laugardagskvöld var brotist inn
í vinnustofu hönnuðarins Chris-
tophers Kane. Þjófarnir stálu 23
vor- og
sumar-
stykkjum
sem
Christoph-
er Kane
ætlaði að
sýna í
næstu
viku. ekki
nóg með
það heldur stálu þjófarnir víst
fartölvunni hans líka. Það er því
engin furða að aumingjans grey-
ið sé frekar dapurt þessa dagana.
Vonandi vinnur lögreglan vel að
málinu svo allt fari vel að lokum.
ferskt og frábært
Nýja línan White tea frá L‘Occitane er ótrúlega frískleg og frábær. Ilmurinn er fersk-
ur og léttur, blanda af sítrusávöxtum, þurrkuðum laufum og balsamvið. sturtu-
músin og húðmjólkin eru eðalblanda sem mýkja og gefa líkamanum ferskan gljáa.
Kíkið við því búðin er stútfull af girnilegum vörum.
Heimasíðu-
kóngurinn
Nafn? „raffaele manna“.
Hvað ert þú að gera? „er á
leiðinni til Ítalíu að ljùka námi í
alþjóðastjórnmálafræði.“
Hverju mælir þú með?
„regnhlìfum, svörtum og
klassískum.“
Í Reykjavík er gott að vera út
af... „...maður getur labbað ú um
allt, því borgin er svo lítil; þannig
nær maður að skoða svo mikið
og finna alltaf nýja staði.“
Heimasíða vikunnar?
„Vintagesynth.com. Ótrúlega vel
gerð síða þar sem hægt er að
fræðast um alla synþana sem
hafa verið framleiddir, um
tónlistarmenn sem nota þessa
synþa. möst fyrir músíkfíkla!“
róleg á fyllingu
Á mánudaginn sýndi marc Jacobs
línuna sína við góðar undirtektir
og að sjálfsögðu var troðfullt hús.
Þar mátti sjá mæðgurnar önnu
Wintour og bee shaffer, leikkon-
urnar mischu barton og Carmen
electra, sem og ljósmyndarann
terry richardson. söngkonan
Courtney Love vakti athygli en hún
verður að fara að hætta að láta
fylla í varirnar og strekkja sig í
fram- an. aumingja stúlku-
kindin hefur
gengið of langt
í að laga lín-
urnar því
hún þótti
heldur
varastærri
en síð-
ast.
HHH
gyllti Kötturinn, 3.800 kr.
gyllti Kötturinn, 1.200 kr.
gyllti Kötturinn, 2.900 kr.
spúútnik, Kringlunni, 1.990 kr.
spúútnik, Kringlunni, 3.400 kr.
spúútnik, Kringlunni, 7.800 kr.
spúútnik, Kringlunni, 8.500 kr.
Warehouse, 4.990 kr.
Warehouse, 5.990 kr.
Warehouse, 6.990 kr.
Oasis, 17.990 kr.
gyllti Kötturinn, 1.200 kr.