Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 59

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2007, Qupperneq 59
Aftur á hvíta tjaldið Eftir að hafa farið á kostum í kvikmyndinni Johnny English frá árinu 2002, er söngkonan Natalie Imbruglia aftur farin á fullt í að undirbúa sig fyrir annað kvikmynda- hlutverk. Hlutverkið sem um ræðir er í kvikmynd sem byggð er á skáldsögu Georgia Blain, Closed for Winter, og verður leikstýrt af James Bogle. „Þetta er dramamynd um mjög sorglega sögu fjölskyldu sem glímir við erfiðleika úr æsku,“ sagði Natalie í nýlegu viðtali. Annars er það að frétta af söngkonunni að safndiskurinn Glorius með lögum hennar frá árunum 1997 til 2007 verður gefinn út næsta mánudag. Hairspray Myndin fjallar um hina bústnu Tracy Turnblad sem kemst í uppáhalds- danssjónvarpsþátt- inn sinn. Þar berst hún gegn ýmsu óréttlæti með hjálp móður sinnar Ednu sem er leikin af John Travolta. iMDb: 8,0/10 rottentomatoes.com: 93%/100% Metacritic: 81/100 Vacancy Hjónin David og amy Fox þurfa að gista á móteli þegar bíll þeirra bilar. Fljótlega komast þau að því að ekki er allt með felldu og einhver er að fylgjast með þeim í herbergi þeirra. iMDb: 6,5/10 rottentomatoes.com: 54%/100% Metacritic: 54/100 Mr. Brooks kevin costner leik- ur mann sem er ekki allur þar sem hann er séður. Hann er valinn maður ársins en á sér myrka hlið. Hann er kaldrifj- aður morðingi sem svífst einskis. iMDb: 7,7/10 rottentomatoes.com: 56%/100% Metacritic: 45/100 sTarDusT stardust býður upp á leikara eins og Michelle pfeiffer, robert De niro og claire Danes. Fjallar um ungan mann sem fer inn í ævintýra- heim til þess að bjarga fallinni stjörnu. iMDb: 8,2/10 rottentomatoes.com: 74%/100% Metacritic: 66/10 Frumsýningar helgarinnar frumsýnd hefur hún trónað á toppi aðsóknarlista þrjár vikur í röð. Rúmlega 32.000 manns hafa þegar lagt leið sína á myndina. Astrópía er fyrst og fremst gam- anmynd þó svo að hún hafi verið kynnt sem ævintýramynd. Hún segir sögu Hildar sem er leikin af Kastljósdrottningunni Ragn- hildi Steinunni. Hún kemst í hann krappan þegar kærast- inn er fangelsaður. Í kjölfarið fer hún að vinna í svokallaðri „nördabúð“ og fjörugt hug- myndaflug hennar spinnur af sér mikið ævintýri. VEÐraMÓT/QuiET sTorM Leikstjóri: Guðný Halldórs- dóttir aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Tinna Hrafnsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Hera Hilmarsdóttir Handrit: Guðný Halldórsdóttir Lítið hefur reynt á Veðramót eins og er en myndin hefur að- eins verið tæpa viku í sýningu. Á fyrstu helginni sáu rúmlega 3.000 manns myndina. Gagnrýn- endur eru þó allir á sama máli og hefur myndin fengið frábæra dóma. Hún hefur fengið umsagnir eins og „Besta íslenska myndin síðan Með allt á hreinu“. Guðný Halldórsdóttir leikstýrir myndinni og skrifar handrit henn- ar en myndin er lauslega byggð á reynslu hennar frá því að hún starf- aði á Breiðavíkurheimilinu í kring- um 1970. Veðramót segir sögu þriggja ungmenna sem ráða sig til starfa á unglingaheimili. Þau eru frjálslegir hippar og ætla að breyta starfshátt- um heimilisins í samræmi við þá hugmyndafræði. Þau átta sig fljótt á því að það gengur ekki alltaf og vandi barnanna er mun meiri og dýpri en þau grunaði. asgeir@dv.is Segir fyrstu lygina Grínarinn Ricky Gervais mun koma til með að taka að sér aðalhlutverkið í grínmyndinni This Side of the Truth. Myndin á að gerast í sambærilegum heimi við okkar nema í þeim heimi hefur enginn nokkurn tímann logið. Gervais mun leika skemmtikraft sem segir fyrstu lygina í heiminum. „Karakterinn minn vinnur í kvikmyndabransanum og er við það að missa vinnuna. En um leið og hann lýgur því að hann hafi fundið týndar sögur verður hann besti sögumaður í heiminum,“ sagði Gervais um hlutverk sitt. Stewart kynn- ir Óskarinn Sjónvarpsgrínistinn Jon stewart kemur til með að snúa aftur á sviðið í Kodak-leikhúsinu 24. febrúar næstkomandi til að kynna óskars- verðlaunin. Stewart, sem er stjórnandi The Daily Show, sá um að kynna óskarsveðlaunin í fyrsta skipti í fyrra og voru allir sammála um að hann hefði staðið sig alveg gríðarlega vel. Í ár var það hins vegar Ellen DeGeneres sem fékk að spreyta sig og stóð sig með prýði. Stewart hefur einnig verið kynnir á Emmy- verðlaunahátíðinni árin 2001 og 2002. föSTudAGuR 14. SepTembeR 2007DV Bíó 59 Foreldrar önnur myndin sem leikstjórinn Ragnar bragason sendir frá sér í samstarfi við kröftuga leikhópinn Vesturport. BESTU ÍSLENSKU MYNDIRNAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.