Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Síða 26
föstudagur 26. október 200726 Helgarblað DV Margrét J. Benedictsson Helgaði líf sitt jafnréttisbaráttu kvenna. Saga hennar má ekki gleymast. Baráttusaga Fyrsti vestur-íslenski feministinn Þættir úr baráttusögu Margrétar J. Benedictsson Björn Jónsson Orðið heimska er dregið af orðinu heima. Það var gjarnan notað yfir þá sem aldrei höfðu hleypt heimdraganum og höfðu hangið í pilsfaldi móður sinnar langt fram á fullorð- insár. Þeir sem það átti við höfðu þó afsökun, en það er meira en hægt er að segja um marga aðra. Sumt fólk reiðir ekki vitið í þver- pokum og við því er ekkert að gera. Aðrir geta verið með eindæm- um seinheppnir í orðavali. Af nógu er að taka þegar tína skal til heimskulegar tilvitnanir fræga fólksins. Forseti Bandaríkjanna George W. Bush þykir haf- sjór af bulli og vitleysu og ótal söngkonur og fyrirsætur hafa látið sér um munn fara ummæli sem valda því að ósjálfrátt efast maður ekki lengur um þjóðsöguna um ljóskur og gáfnafar. Ætlunin hér er þó ekki að staðfesta af eða á um það, eða fella dóma almennt. Hér eru tíu gullkorn frá tíu einstaklingum sem eiga það sameigin- legt að hafa þrátt fyrir allt náð langt hver á sínu sviði. Tíu heimskulegar TilviTnanir FYRIRSÆTAN LINDA EVANGELISTA: „guð gerði mig fallega. ef ég hefði ekki verið falleg, hefði ég orðið kennslu- kona.“ ALICIA SILVERSTONE LEIKARI: „Mér finnst myndin Clueless vera mjög djúp. Mér finnst hún vera djúp á þann hátt að það var léttleiki í henni. Mín skoðun er sú að léttleiki krefjist djúprar hugsunar ef það á að vera raunverulegur léttleiki.“ SÖNGKONAN CHRISTINA AGUILERA „Jæja, hvar verður kvikmyndahátíðin í Cannes haldin í ár?“ JESSICA SIMPSON SÖNGKONA: „Ég þjáist ekki af lystarstoli. Ég er frá texas. er eitthvað fólk frá texas sem þjáist af lystarstoli? Ég hef ekki heyrt um neinn og það er að mér meðtalinni.“ GEORG W. BUSH BANDARÍKJAFORSETI: „Ég hef mínar skoðanir. Ákveðnar skoðanir. en ég er ekki alltaf sammála þeim.“ BROOKE SHIELDS LEIKKONA: „reykingar drepa. og ef þú deyrð missir þú af mjög mikilvægum hluta lífs þíns.“ DAN QUAYLE, FORSETAFRAMBJÓÐANDI Í BANDARÍKJUNUM: „Helförin er svartur blettur í sögu þjóðar okkar. Ég meina þessarar aldar..., en við lifðum öll á þeirri öld... Ég gerði það ekki.“ IVANKA TRUMP, DÓTTIR DONALDS TRUMP: „Það er gaman að skrifa skáldsögur. Maður getur næstum því skáldað allt upp.“ ARNOLD SCHWARZENEGGER RÍKISSTJÓRI: „Það er mín skoðun að hjónaband samkynhneigðra sé eitthvað sem varðar karlinn og konuna.“ TARA REID LEIKKONA: (Hafa ber í huga orðin rock (rokk) annars vegar og rocket (eldflaug) hins vegar: „Ég fæ Jessicu simpson til að líða eins og rokk-vísindamanni.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.