Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 28
föstudagur 26. október 200728 Helgarblað DV amma fékk nú að heyra að það væri engin framtíð fólgin í þessu fóta- sparki,“ seg- ir Bára og brosir að minningunum. Það er farið að hljóðna í sölum skól- ans hennar, Danslistar JSB við Lág- múlann, þegar við setjumst niður yfir kaffibolla á blautum mánudags- morgni, enda að baki mesti anna- tíminn frá klukkan sex að morgni þar til hefðbundinn vinnudagur hefst. „Þrátt fyrir barnmarga fjölskyldu og lítil fjárráð kostaði mamma mig í ballettnám þegar ég var barn að aldri, fyrst til Guðnýjar Pétursdóttur og Sigríðar Ármann og svo í ballett- skóla Þjóðleikhússins. Mamma, Elín Ólafsdóttir, hefur alltaf búið yfir svo skemmtilegum ævintýraeiginleik- um; þetta með að allir draumar geti ræst bara ef mann langar nógu mikið til þess. Og þótt hún ynni mikið bæði heima og að heiman áttum við marg- ar góðar stundir við eldhúsborðið þar sem rædd voru mál líðandi stundar sem og framtíðarplön. Sú bjartsýn- ismanneskja var aldrei í vafa um að ég gæti framfleytt mér með dansinum.“ Maður á lendaskýlu og stúlka í hörpuskel Bára segir að líklega hafi hún fæðst með dansbakteríuna í blóðinu, en lík- lega átti afi hennar, Ólafur P. Ólafs- son veitingarmaður, stóran þátt í að draumurinn um dansveröld varð enn stærri en hann hefði getað orðið seint á sjötta áratugnum. Bára var þá tíu ára og ástæða þess að hún var mætt á barinn til afa síns á Röðli var afar einföld. Amma hennar og afi bjuggu á efstu hæð hússins og leyfðu litlu telp- unni að læðast niður og fylgjast með skemmtiatriðunum „Afi hafði verið sjómaður en varð að koma í land vegna veikinda. Þá sneri hann sér að veitingarekstri og opnaði Brytann í Hafnarstræti og Röð- ul á Laugavegi. Amma, Helga Pálína Sigurðardóttir, og afi voru vel efnum búin, sigldu til Kaupmannahafnar og afi réð danskan matreiðslumeistara til starfa hjá sér. Það þótti tíðindum sæta í reykvísku bæjarlífi þegar Röðull opn- aði. Þar var rauður dregill fyrir utan og dyravörður í júníformi. Innan dyra var boðið upp á skemmtiatriði, „floor show“, og ég gleymi því aldrei þeg- ar ég var að gægjast yfir barinn og sá mann á lendaskýlu dansa að hörpu- skel á miðju gólfinu. Skelin opnaðist, upp steig glæsileg ung stúlka og sam- an dönsuðu þau um salinn. Ég gleymi aldrei af hve mikilli aðdáun ég horfði á þessi atriði.“ Elskar Skagamenn Bára fæddist á Akranesi og bjó þar fyrstu þrjú æviár sín. Henni finnst rætur sínar liggja á Akranesi og segist þykja ótrúlega vænt um alla Skaga- menn. „Mér finnst þetta fólk allt vera frændur mínir og frænkur,“ segir hún. „Ég hef reyndar aldrei verið neitt inni í fótboltamálum, en væri svo get ég lofað því að ég myndi halda með ÍA! Mitt uppeldi var mjög dæmigert fyr- ir alþýðufólk þessa tíma,“ segir hún þegar ég spyr hana um æskuárin. „Ég er einkabarn foreldra minna en leiðir þeirra skildu. Mamma giftist aftur og ég ólst upp með fimm yngri systkin- um. Við fluttum stað úr stað sem var mjög algengt í þá daga ef fólk átti ekki eigið húsnæði. Ég ólst því upp í mörg- um hverfum, gekk í nokkra barna- skóla og hef heyrt sum systkina minna segja að þeim hafi þótt erfitt að þurfa að kynnast nýjum félögum á nýjum stöðum. Sjálf geymi ég engar slæm- ar minningar um þetta, svona var þetta bara. Hins vegar á ég ekki svona dæmigerðan æskuvinahóp sem hitt- ist á ákveðnum tímabilum lífsins. En auðvitað eignaðist ég nokkrar góð- ar vinkonur gegnum æskuárin og í hjarta mínu eru þær enn „vinkonur“ mínar þótt tíminn hafi verið skammt- aður og hvert tímabil er geymt en ekki gleymt. Ég er fædd í fiskamerkinu og held að það sé fiskurinn í mér sem gefur mér þá aðlögunarhæfni sem ég bý yfir og ég vil meina að ég hafi ekki upplifað neitt slæmt við það að flytja og kynnast nýjum vinum.“ Óstýrilát miðað við breska unglinga! Þegar Bára var við nám í ball- ettskóla Þjóðleikhússins kom þang- að breskur ballettkennari, Elizabeth Hudson. Hún hvatti Báru til að fara í framhaldsnám og gerði sér lítið fyr- ir og sótti sjálf um fyrir Báru við virt- an skóla í London, Art´s Educational School. „Þangað hélt ég til náms sex- tán ára gömul, flutti inn á heimavist skólans og fór að hræra hressilega í hlutunum!“ segir hún skellihlæjandi. „Mér fannst breska kerfið að mörgu leyti skondið og margt sem ég gat ekki sætt mig við. Ég hafði verið talin hlýðið barn heima hjá mér, en í Bret- landi þótti ég fremur óstýrilát. Það voru nefnilega svo margar reglur þar sem mér þóttu sérkennilegar og ekki mjög vitrænar og vildi fá skýringar og svör við öllu. Mér verður oft hugs- að til þess hversu miklar breytingar hafa orðið milli kynslóða. Þegar ég var sextán ára þótti eðlilegt að sextán ára unglingar færu að heiman, ann- aðhvort til náms eða að vinna fyrir sér, en nú flokkast þessi aldurshópur undir börn. Það var þó ekki svo að ég gæti vaðið að kennurunum og beðið um skýringar á málunum. Ég þurfti að panta viðtalstíma og oft fór svo að þegar ég mætti sagði skólastýran, miss Ritman: „Hvað er það nú, ung- frú Ísland?“!“ Svörin sem Bára var að leita eftir voru til dæmis þau hvers vegna nem- endum skólans væri ekki sjálfum treyst fyrir því að slökkva ljósin á kvöldin og hvers vegna þeim væri meinað að fá mat mættu þau ekki tímanlega í mat- salinn. „Það var réttlætiskenndin í mér sem gaus upp,“ segir hún til útskýr- ingar. „Mér fannst til dæmis mjög ósanngjarnt að þótt strætisvagn- inn væri á eftir áætlun væri dyrun- um að matsalnum læst og við fengj- um engan mat. Ljósin voru slökkt á mínútunni tíu á kvöldin og þá var ég kannski í miðjum klíðum að þvo ballettbolinn minn. En þarna ríkti strangur agi og við áttum bara að vera búnar að öllu fyrir klukkan tíu á kvöldin. Ef kennari gekk fram- hjá okkur á göngum skólans urðum við að hneigja okkur og bjóða góð- an dag. Ég hef oft heimsótt þennan skóla síðan ég var þar í námi og nú er allt miklu frjálslegra og nemend- ur æfa sporin sín, orðin eða laglínur sínar úti um alla ganga!“ Byltingarsinninn Bára Hún segir það ekki hafa verið svo að hún hafi verið sú eina sem hafi ver- ið ósátt við reglurnar. Hún var bara sú eina sem gekk hreint til verks. „Bresku krakkarnir kvörtuðu, en bara í bakið á þeim sem komu að mál- unum. Þau voru fljót að finna hversu ófeimin ég var við að spyrja, þannig að ég var alltaf send í leit að svörum! Ég var auðvitað oft með dúndrandi hjartslátt, því allt var fært til bókar og guð má vita hversu margar síður voru fylltar með spurningum íslensku stelpunnar. Ég var álitin byltingar- sinni, en þar sem ég var með heið- arlegar spurningar vissi ég að ekkert væri að óttast.“ Bára var það sem kallaðist „dance student“ en námið fól í sér auk dans- ins tilsögn í leiklist og söng. „Ég lærði gríðarlega mikið þarna og hef alla tíð búið að því. Þegar ég kom heim hélt ég hreinlega að Ísland biði allt eftir því að sjá hvað ég hefði fram að færa. Ég ætlaði mér aldrei að verða kennari – eða að minnsta kosti planaði það ekki svona í upp- hafi, enda held ég að allir þeir sem eru með dansbakteríuna vilji bara dansa.“ Draumar dansdrottningar Hún segist hafa eiginleika dansarans og fisksins. Að geta aðlagast þeim aðstæðum sem hún er í hverju sinni og horfa ekki um öxl. Bára Magn- úsdóttir er þekkt sem jazzballettkennari og dans- höfundur en þegar hún opnaði skólann sinn fyrir fjörutíu árum voru ekki margir sem höfðu trú á að hægt væri að lifa af listgreininni dansi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.