Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Blaðsíða 54
Tískan
föstudagur 26. október 200754 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella Netfang: tiska@dv.is
Heimasíðan
Hvað heitir þú?
„freymar Þorbergsson.“
Hvað ert þú að gera?
„Nýbakaður faðir, annars starfa
ég sem grafískur hönnuður/
kvikari og hef verið að fikta við
myndbandagerð og fleira.“
Með hverju mælir þú?
„að fara á monitor.is og horfa á
nýtt myndband Jans Mayen sem
ég kláraði nýverið.“
Í vetur er ómissandi að...?
„...sofa innandyra.“
Heimsíða vikunnar er...?
„Það er hin eiturhressa frivfri-
day.com sem skemmtir manni
með ómetanlegri internet-
menningu á hverjum föstudegi.“
slaufur slá öll met
Það sem fylgir því að vera tískudíva er að njóta þess að skreyta sig
svo um munar, velja af vandvirkni dress dagsins og vafra í gegnum
tískublöðin. Mannskepnan er ekki jafnheppin og hinar ýmsu dýra-
tegundir sem hafa fagran feld eða fjaðraskrúða og því þurfum við
aukahluti svo eitthvað sé nefnt. slaufur eru heitur aukahlutur sem
ber að nota á hinn ýmsa máta, bara að það sé slaufa.
Persónan
GíGja ísis
Jennifer Connelly er ótrúlega heillandi kona sem hefur þennan einstaka þokka sem fáir geta staðist. Jennifer Connelly er að verða
fertug og er gift Paul bettany en það ber mjög lítið á þeim þrátt fyrir frægðina. Hún er þekktust fyrir að leika glæsilega og gáfaða
karaktera enda mjög í hennar anda.
HHH Heillandi fögur
Nafn?
„gígja Ísis.“
Aldur?
„18 ára.“
Starf?
„Ég er nemi, ég hanna föt og er í
lausavinnu hér og þar.“
Stíllinn þinn?
„fjölbreyttur og hæfilega kærulaus,
ætíð háður peningaleysi, ástandi,
tímaleysi og veðráttu.“
Allir ættu að?
„spila í lottó og vinna og vera
hamingjusamir það sem eftir er!“
Hvað er möst að eiga?
„góða að og flugmiða í vasanum.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„fullt af háum hlýjum sokkum,
vetrarfötum og dóti í New York og
svarta reimaða hælaskó.“
Hverju færð þú ekki nóg af?
„skykkjum, flottum sokkabuxum,
hönskum, breytanlegum flíkum og
skóm.“
Næsta tilhlökkun?
„desemberferðalög...langt, langt í
burtu.“
Hvert fórst þú síðast í ferðalag?
„Ég fór á opnun hjá pabba mínum í New
York í endaðan september og svo var ég
í amsterdam þar sem ég dvaldi í þrjá
mánuði með bestu vinkonu minni
henni salvöru.“
Hvað langar þig í akkúrat núna?
„gott veður, endalausan drifkraft og
nógan tíma til að gera hlutina sem ég
elska. gaman væri að hafa þann
valmöguleika að geta lifað án svefns.“
Perlur hér heima?
„stokkseyri, þar á ég hús við sjóinn.“
Hvenær fórstu að sofa í nótt?
„seint.“
Hvenær hefur þú það best?
„Mér líður best þegar ég hef nóg að
gera og er í kringum jákvætt og virkt
fólk. Ég hata leti.“
Afrek vikunnar?
„er afrek að synda kílómetra í
Vesturbæjarlauginni?“
svipar
svolítið til
Petro Zillia sýndi á dögunum
línuna sína og vakti ágæta lukku
en það sem vakti athygli hinna
ýmsu tískuspekúlanta var að
einn kjóllinn í línunni hans var
ótrúlega svipaður kjólnum sem
Viktor & Rolf hönnuðu. En leik-
konan Cate Blanchett klæddist
honum í síðustu viku á frumsýn-
ingu myndarinnar „Elizabeth;
The Golden Age“ en hún leikur
sjálfa Elizabeth í myndinni.
Gaddaskór
Það var áberandi á nokkrum
tískusýningunum að gaddaskór
væru svolítið heitir og jú, fyrst
voru þeir á tískupöllunum en
nú eru þeir komnir út á götu.
Meðal annars voru Burberry og
Givenchy frekar veikir fyrir gadd-
alúkkinu og því má búast við að
fleiri muni heillast. Eitt er víst að
tískudívurnar Sienna Miller og
Ashley Olsen eru kolfallnar fyrir
gaddahælum og eru bara frekar
töffaralegar.
John galliano Louis Vuitton Valentino