Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Side 59
Costner
í hrollvekju
Kevin Costner mun leika aðalhlut-
verkið í myndinni The New Daughter
sem er byggð á sögu Johns Connolly.
Myndin fjallar
um einstæðan
föður sem
flytur með
börnum sínum
tveim upp í
sveit eftir
erfiðan skilnað.
Stuttu síðar fer
dóttir hans að
haga sér
undarlega og
telur faðirinn að málið hafi eitthvað
með grafreiti að gera sem eru á
landinu í kring. Hin unga Ivana
Baquero, sem lék aðalhlutverkið í
Pan’s Labyrinth, mun leika dótturina
en líklegt þykir að Luiso Berdejo
leikstýri.
Grínmynd
í anda Big
Leikkonan Leslie Mann og unglinga-
stjarnan Zac Efron munu leika
aðalhlutverkin í gamanmyndinni 17.
Myndin er byggð upp á mjög
sviðaðan hátt og myndin Big sem
skaut Tom Hanks upp á stjörnuhim-
ininn 1988. Myndin fjallar sem sagt
um fullorðinn mann sem vaknar
einn morguninn sem 17 ára. Burr
Steers sem skrifaði meðal annars
handritið að How To Lose A Guy In
10 Days mun leikstýra myndinni.
föstudagur 19. október 2007DV Bíó 59
Will Stanton lifir venjulegu lífi og lítið fer fyrir honum. Óvænt
kemst hann hins vegar að því að hann er allt annað en venjulegur.
Hann er síðasti stríðsmaðurinn í röð stríðsmanna sem hafa tileink-
að líf sitt baráttunni gegn hinu illa. Will áskotnast hinir ýmsu kraft-
ar og hefst mikið ævintýri. Örlög heimsins eru í höndum Wills.
IMDb: 4,8/10
Rottentomatoes: 13%
Metacritic: 38/100
The Dark Is Rising
FRuMsýnInGaR helGaRInnaR
eastern Promises
Anna, sem er leikin af Naomi Watts, kemst yfir dagbók ungrar
stúlku. Í dagbókinni eru sönnunargögn gegn stórhættulegri rúss-
neskri glæpafjölskyldu. Í kjölfarið fer óþokkinn Nikolai, sem er leik-
inn af Viggo Mortensen, á stúfana. Hann hrindir af stað röð morða,
blekkinga og hefnda.
IMDb: 8,1/10
Rottentomatoes: 89%
Metacritic: 82/100
löng helgi
hjá Caviezel
Leikarinn Jim Caviezel sem lék
meðal annars í The Passion of the
Christ er nýjasta viðbótin við
spennutryllinn Long Weekend.
Myndinni er leikstýrt af Jamie
Blanks en um er að ræða endurgerð
á samnefndri mynd frá árinu 1978.
Blanks segir að ekki verði notast við
tölvutæknibrellur við gerð
myndarinnar og að hann ætli að
fylgja upprunalegu myndinni þétt
eftir í sögu og myndatöku. Auk
Caviezels mun ástralska leikkonan
Claudia Karvan leika í myndinni.
The Invasion
Enn ein endurgerðin af Invasion of the Body Snatchers. Nicole
Kidman og Daniel Craig leika aðalhlutverkið í mynd sem fjallar um
innrás geimvera. Hún áttar sig fljótt á því að sonur hennar gæti ver-
ið eina lausnin.
IMDb: 6,1/10
Rottentomatoes: 19%
Metacritic: 45/100
ir lok árið 1991 hefur skipu-
lögð glæpastarfsemi í Rússlandi
blómstrað. Mafían í Rússlandi er
talin innihalda allt að 100 þúsund
einstaklinga, en víst er að þess-
ir einstaklingar starfa ekki undir
sama stjóranum, heldur eiga það
meira sameiginlegt að vinna und-
ir sömu gildum og ganga undir
nöfnum á borð við Rauða mafían,
Krasnaya-mafían eða Bratva, sem
er rússneskt slangur yfir bræðra-
lag. Talið er að æðstu menn mafí-
unnar séu flestir fyrrverandi KGB-
menn eða yfirmenn úr hernum,
sem misstu stöðu sína eftir kalda
stríðið. Þá er einnig talið að helstu
ofbeldismenn mafíunnar séu
fyrrverandi rússneskir hermenn,
íþróttamenn, boxarar, bardagalist-
akappar og kraftlyftingamenn.
Ruddalegir og óvægnir
Að sögn rússnesku lögreglunn-
ar er mafían talin vera lík þeirri ít-
ölsku, en hins vegar eru deilur inn-
an rússnesku mafíunnar, sem oft
enda með morðum, mun algeng-
ari. Sú saga gengur um mafíuna
í Rússlandi að ef einhver kjaftar í
lögguna er ekki aðeins sá myrtur
heldur fjölskylda hans líka. Mafí-
an þénar ótrúlegt magn af pen-
ingum í gegnum bæði ólögleg við-
skipti í undirheiminum en einnig
með löglegum hætti í hinum ýmsu
fyrirtækjum. Ólíkt þeirri ítölsku er
rússneska mafían lítt sýnileg og
þótt flestir viti um tilvist hennar,
vita fæstir um meðlimina.
Erlend fyrirtæki borga 20%
skatt
Sú saga að Björgúlfsfeðg-
ar hafi lent í útistöðum við rúss-
nesku mafíuna, þegar þeir áttu
í viðskiptum þar í landi, hefur
lengi verið á sveimi, þótt ekkert sé
staðfest í þeim efnum. Erlend fyr-
irtæki þurfa að greiða 20% af öll-
um gróða sínum til mafíunnar, ella
hljóta þau verra af. Það er ein af
hörðum staðreyndum viðskipta-
lífs Rússa, en þennan skatt borga
víst íslensk fyrirtæki á borð við Atl-
anta og Össur. Sum fyrirtæki, þó
aðallega bandarísk, grípa til þess
ráðs að ráða einkaaðila til þess að
sjá um öryggisgæslu við fyrirtæk-
in. Vegna óáreiðanleika rússnesku
lögreglunnar blómstar einkaör-
yggisgeirinn. Á undanförnum sjö
árum hafa um 25 þúsund öryggis-
fyrirtæki verið stofnuð í Rússlandi,
með allt að 600 til 800 þúsund
manns í vinnu. Ljóst er að mafían
á allavega einn sjötta af fyrirtækj-
unum.
Þekkjast af húðflúrunum
Flesta rússneska mafíósa má
þó þekkja af húðflúrunum sem
þeir bera. Hvert einasta smáatriði
flúrsins hefur mikla þýðingu og er
sagt að ævisögu hvers og eins megi
rekja á flúrunum. Til dæmis bera
margir stór húðflúr af kirkjum á
sér, en hver turn á kirkjunni merkir
eitt ár í fangelsi. Svo eru menn oft
með stjörnur bæði á öxlunum og
hnjánum, sem þýðir að þeir gefist
ekki upp fyrr en í fulla hnefana og
fari ekki á hnén fyrir neinn. Rúss-
neskir mafíósar eru oftast flúrað-
ir frá toppi til táar og er ekkert flúr
sem ekki hefur beina þýðingu í
glæpaheiminn.
Stórgóð kvikmynd
DV hvetur alla til þess að sjá
Eastern Promises. Þeir David
Cronenberg og Viggo Mortensen
sýndu það og sönnuðu að þeir
ættu vel saman með myndinni A
History of Violence. Myndin hefur
fengið afbragðs dóma víðast hvar
og hefur eitt atriði myndarinnar,
þar sem Viggo slæst nakinn við
þrjóta í gufubaði, slegið í gegn.
dori@dv.is
David Cronenberg
Leikstýrir myndinni eastern
Promises sem hefur fengið góða
dóma og er frumsýnd í kvöld.
Frammi fyrir foringjunum
einnig alsettur húðflúrum sem eiga að
segja ævisögu þess sem ber þau.
Aleksander Emelianenko
keppir í MMa og er alsettur
húðflúrum frá því að hann
sat í rússnesku fangelsi á
sínum yngri árum.