Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2007, Síða 62
föstudagur 26. október 200762 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Gárungarnir segja að nú eigi hjónabandsráðgjafar í mikilli samkeppni úr óvæntri átt. Eiga þeir þar við fyrirtækið Ice- landair, sem í vikunni láðist að setja um borð í eina flugvél sína golfsett þrjá- tíu kylfinga. Þannig fengu fjölskyldur óvænt að hafa kylfinga hjá sér í sól og sumaryl í Disney-world í Orlando þremur dögum lengur en áætlað hafði verið. Í hópn- um er einn af betri kylfingum landins, Ólafur Már Sigurðsson, sem sagði í samtali við mbl.is að konan hans væri ekkert ósátt við að golfsettið hafi orðið eftir í Leifsstöð. n Stefán Snævarr heimspeki- prófessor veltir því fyrir sér á bloggsíðu sinni hvort sjón- varpsmennirnir Logi Bergmann Eiðsson eða Sigmundur Ernir Rúnarsson ættu ekki að stefna á forsetaframboð. Tilefnið er að kollegi þeirra vestanhafs, Steph- en Colbert í þættinum Colbert Report, er víst við það að lýsa yfir framboði sínu til for- seta Banda- ríkjanna. Stefán er þó ekki viss um að Sig- mundur hafi erindi sem erfiði: „sá er ljóður á ráði Simma að hann er ljóðskáld sem afar „ókötting edsj“, hver hefur heyrt talað um forsetaframbjóðanda hjá amer- ísku kúlgoðþjóðinni sem fengist hefur við yrkingar? Svo ég mæli með því að Sigmundur reyni að venja sig af þeim ókúla kæk að yrkja,“ segir Stefán. n Fréttablaðið greindi frá því að Einar Bárðarson hefði keypt sér hús í einhverjum bítlabæ á Englandi. Séð og Heyrt bætir um betur og greinir frá því að Einar hafi einnig keypt sér íbúð í bítlabænum Keflavík til að vera nær Flugstöð Leifs Eiríkssonar á stöðugum ferðum sínum á milli landa. Gerði hann góð kaup þar sem fast- eignaverð á Suður- nesjum er hagstætt á meðan íbúð- arhæð hans á Hagamel í Vestur- bæ Reykja- víkur seldist á margföldu því fermetraverði sem tíðkast í Keflavík. Hver er maðurinn? „Hann heitir Ívar Gissurarson og er Reykvíkingur í húð og hár.“ Hver eru þín áhugamál? „Fyrir utan vinnuna eru það ferðalög, íþróttir og svo margt margt fleira.“ Hvað drífur þig áfram? „Baráttan fyrir því að eiga fyrir salti í grautinn.“ Hver er þín menntun? „Ég er háskólamenntaður fornleifa- fræðingur.“ Hefur þú unnið sem slíkur? „Ég vann sem nemandi í tvö ár fyrir Þjóðminjasafnið.“ Hefur þú verið lengi viðloðandi bókabransann? „Í ein sextán ár.“ Eftirminnilegasta bókin? „Það hlýtur að vera Hundrað ára ein- semd eftir Gabríel García Marquez. Svakalega yndisleg og skemmtileg bók.“ Hvernig leggst jólabókaslagurinn í þig? „Bara eins og venjulega. Maður veit aldrei fyrr en upp verður staðið.“ Hvernig líst þér á Forlagið? „Mér líst mjög vel á það. Ég er ægileg- ar ánægður að þessi tvö stærstu for- lög hafi sameinast. Það einfaldar svo margt fyrir okkur þau minni. Ég óska þeim alls hins besta.“ Hvað gefið þið út margar bækur fyrir jólin? „Við gefum út þrjátíu titla á árinu.“ Hvað kom til að þið ákváðuð að gefa út bókina Negrastrákana? „Þetta kom upp á borð hjá okkur og okkur fannst þetta tilvalið. Þetta er fal- leg bók á allan hátt og einhvern veg- inn fannst okkur að hún yrði að koma út aftur og ég veit að það eru marg- ir mér sammála. Myndirnar hans Muggs eru líka sérlega fallegar.“ En nú eru margir ósammála og tala um rasisma. Hvað finnst þér um það? „Ég átta mig ekki á samhenginu í því og skil engan veginn þá afstöðu. Við erum á öndverðum meiði við allar hugmyndir um rasisma og mér þykir afar leitt ef einhver lítur á þessa bók sem slíka. Að mínu mati er þetta glæsileg bók sem ég sjálfur hafði gam- an af að lesa þegar ég var ungur. Auk þess er þetta menningarlegasöguleg arfleið og því fyndist mér ekki rétt að breyta nafninu á henni. “ Talandi um menningarsögulega arfleið. Hvað finnst þér þá um breytingar á Biblíunni? „Ég hef lítið um það að segja. Ef fólk vill endilega breyta Biblíunni káfar það lítið upp á mig.“ Hvaða væntanlegu bók ert þú spenntastur fyrir að lesa? „Nú veit ég lítið um það. Það á eftir að skýrast betur hvað er að koma út. Það er líka búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef hreinlega ekki mátt vera að því að hugsa um það.“ Hvað er fram undan? „Það er að koma bókunum á markað, kynna og selja. Út á það gengur lífið hér hjá okkur á Skruddu.“ Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xx +6 7 xx xx xx xx xxxx +4 4 xx xx xx xx +6 7 +5 7 +4 12 xx xx xx xx xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx +xx xxxx xx +43 xx xx xx +4 4 xx -2 1 xx -2 4 xx +1 1 +4 1 xx +3 4 xx +3 1 xx xx+3 1 xx +3 1 xx xx -xx -xx MAÐUR DAGSINS negrastrákarnir eru arfleifð Ívar Gissurarson hjá bókaforlaginu skruddu gaf út bókina Negrastrákana á dögunum. bókin hefur ekki verið gefin út í þrjátíu ár en myndir hennar og texti fara fyrir brjóstið á mörgum sem halda pólitískum rétttrúnaði á lofti. aðrir fagna og tala um listaverk. Loksins styttir upp „Veðurbreytingar eru nokkuð skýrar nú um helgina,“ segir einar sveinbjörnsson veðurfræðingur. „eftir þráláta rigingartíð frá því í ágústlok, sem er um það bil að slá ýmis met sunnan- og vestanlands ásamt nokkuð sérkennilegum hlýindum norðaustan og austanlands, er eins og við verðum slegin í höfuðið af sjálfum vetrinum. Þótt þetta séu nú dálítið dramatískar lýsingar er ekki annað að sjá en að um helgina verði hiti víða um frostmark og vægt frost á sunnudag. Vindáttin suðvestlæg og norðlæg um tíma. Éljagangur víða um land, síst þó suðaustan- og austanlands. fyrsti vetrarsnjórinn gæti því fallið þar sem hann hefur enn ekki sýnt sig, sums staðar strax á föstudagskvöld, til að mynda á höfuðborgarsvæðinu. akstursskilyrði fara því versnandi, einkum á heiðum og fjallvegum um vestan- og norðanvert landið. eftir helgi verður áfram fremur kalt svona fram undir miðja viku, en eftir það er óvissa eins og svo oft áður þegar veðrið á í hlut.“ Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur stjörnur vIkUNNAR Svandís Rós Þuríðardóttir fær fjórar stjörnur fyrir að segja hingað og ekki lengra þegar henni var gert að búa við skaðlegar aðstæður með börnum sínum. Hún flýði heimili sitt með börnin og hefur verið á hrakhólum en tókst um leið að vekja athygli á vanda sumra þeirra sem leitað hafa á náðir félagslega kerfisins. Vestfirðingurinn Barði Önundarson gafst ekki upp þegar hann lenti í sjávarháska heldur barðist fyrir lífi sínu. barði fær þrjár stjörnur fyrir baráttuþrek sem hjálpaði honum að komast heill á land eftir að hafa verið í ísköldu vatninu í klukkustund og ekki síður fyrir að sjá björtu hliðarnar á átökum sínum við sjóinn eins og kom fram í viðtali hans við dV fyrr í vikunni. karl Sigurbjörnsson biskup, trúbræður hans og -systur fá tvær stjörnur fyrir að stíga skref fram á við til að kirkjan viðurkenni sambönd og sambúð samkynhneigðra para. Með þessu hefur náðst einn áfanginn enn í réttindabaráttu samkynhneigðra þótt þeir njóti enn ekki sömu stöðu innan kirkjunnar og pör gagnkynhneigðra einstaklinga. Eldar Eyþórsson og félagar sem skipulögðu airwaves fá eina stjörnu fyrir að bjóða upp á vel heppnaða air- waves-hátíð þar sem þúsundir íslenskra og erlendra tónlistarunn- enda og blaðamanna nutu þess að hlusta á fjölbreytta og skemmtilega tónlistina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.