Fréttatíminn - 11.04.2014, Qupperneq 2
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
TOPP HJÓLAFESTINGAR
Á GÓÐU VERÐI
Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
Mótmæla gjaldtöku í Mývatnssveit
Nemendur Elmars Hallgríms Hallgrímssonar á námskeiðinu Sam-
vinna og árangur afhentu Barnaspítala Hringsins ávísunina á
miðvikudag. Ljósmynd/Háskóli Íslands.
E kki er enn ljóst hvert tjónið verður af erfiðleikum og falli sparisjóðanna. Þegar hefur 33 milljarða heildarkostnaður fallið til. Á annar milljarður
króna er enn bundinn í eign ríkisins í stofnfé sparisjóða
og óvíst er hvernig tekst að endurheimta það fé. Mest
óvissa er þó um uppgjör við slitastjórn Sparisjóðabank-
ans. Seðlabankinn hefur lýst 215 milljarða króna kröfu
í það þrotabú en lítill hluti þeirra krafna
hefur verið samþykktur.
Þetta kemur fram í Í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis
um fall og orsakir sparisjóð-
anna sem kynnt var í gær.
Ríkissjóður á eignarhlut
í fimm sparisjóðum og fer
Bankasýsla ríkisins með eign-
arhlut ríkisins í þeim.
Af þeim sparisjóðum
sem enn starfa í land-
inu eru aðeins fjórir
sem ekki eru í eigu
ríkisins.
Þrír þeirra komust
í gegnum hrun bank-
anna án þess að eigin-
fjárhlutfall þeirra færi
nokkru sinni niður fyrir
þau 8% sem lög kveða á
um.
Þetta eru Sparisjóður
Suður-Þingeyinga, Spari-
sjóður Höfðhverfinga og
Sparisjóður Strandamanna.
Þeir tveir fyrstnefndu áttu litlar
eignir í gengisbundnum útlánum
og öðrum eignum í erlendum myntum
og hjá þeim var hlutfall innlána og fjármögn-
unar frá Íbúðalánasjóði hátt. Sparisjóður
Strandamanna samdi um endurskipulagn-
ingu erlendra skulda við Seðlabanka Ís-
lands áður en hann færði gengisbundin
útlán sín ekki niður að fullu.
„Fyrir vikið urðu minni breytingar
á eiginfjárhlutfalli hans en annarra
sparisjóða með svipaða samsetningu
efnahagsreiknings,“ segir í rannsókn-
arskýrslunni.
Fjórði sjóðurinn, Afl sparisjóður,
hafði lánað mikið í erlendum myndum
og lækkaði eiginfjárhlutfall hans niður
fyrir 8% við niðurfærslu útlána í lok árs-
ins 2008. Þá var samið við
stærsta stofn-
fjáreigandann, sem jafnframt var stærsti lánveitandi
sjóðsins, og var eiginfjárhlutfallið bætt.
42 ársverk liggja að baki skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis um sparisjóðina. Starf hennar átti upphaflega
að taka níu mánuði en tók meira en tvö og hálft ár þegar
upp var staðið. Kostnaður við starf nefndarinnar er 607
milljónir króna, þar af er launakostnaður 335 milljónir.
Rannsóknarnefndin sendi 21 mál til ríkis-
saksóknara vegna gruns um refsivert
athæfi. Tveimur þeirra mála er lokið
með dómi Hæstaréttar. Héraðsdóm-
ur hefur dæmt í þriðja málinu og
hefur þeim dómi verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Stjórn Eyþings, samtaka
sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum, vonar að
landeigendur jarðarinnar
Reykjahlíðar í Mývatns-
sveit fresti fyrirhugaðri
gjaldtöku sinni af ferða-
mönnum við Dettifoss,
Hveri og Leirhnjúk.
Stjórn Eyþings tekur
undir ályktun Markaðs-
stofu Norðurlands
og sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps
og lýsir áhyggjum af
fyrirhugaðri gjaldtöku
á ferðamannastöðum
í Skútustaðahreppi.
Áformin eru ótímabær, að
mati Eyþings.
„Sjálfsagt er að land-
eigendur Reykjahlíðar
setji upp ferðaþjónustu
og taki þóknun fyrir veitta
þjónustu, þegar þeir
hafa lagt í uppbyggingu
á svæðinu og þjónustan
veitt,“ segir í bókuninni.
„Óskipulögð gjaldtaka
eins og nú er boðuð
skaðar orðspor Íslands
erlendis og er úr takti við
þá ímynd sem ferða-
þjónustuaðilar hafa lagt
mikla vinnu í að kynna.
Mikilvægt er að standa
saman um leið sem
byggir á áframhaldandi
opnu aðgengi að nátt-
úruperlum og sjálfbærri
uppbyggingu á ferða-
mannastöðum.“
62% stúdenta svartsýn
um sumarvinnu
65% stúdenta við Háskóla Íslands eiga enn
eftir að fá vinnu í sumar. 62% segjast ekki
bjartsýn á að fá vinnu. Þetta kemur fram
í könnun sem stúdentaráð HÍ gerði. Stúd-
entaráð vill að Vinnumálastofnun bregðist
við þessari stöðu með því að ráðast í sér-
stakt átak til þess að útvega námsmönnum
sumarvinnu líkt og gert hefur verið síðustu
ár. Ekki hafa enn verið teknar ákvarðanir
um slíkt átak þetta árið.
Fékk fimm ára dóm fyrir
að bana dóttur sinni
28 ára maður, Scott James Carcary, var
dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir að hafa valdið
dauða fimm mánaða dóttur sinnar í mars
á síðasta ári.
Barnið hafði verið eitt heima með föður
sínum og var meðvitundarlaust þegar
móðir þess kom heim. Það var flutt með-
vitundarlaust á sjúkrahús og lést nokkrum
klukkustundum síðar. Það var með áverka
á heila og blæðingar í húð víða um líkam-
ann. Við krufningu fundust eldri áverkar á
rifbeini og fótlegg. Faðirinn neitaði sök en
sakfelling dómstólsins styðst meðal annars
við vitnisburð þýsks meinafræðings. Auk
þess að sitja fimm ár í fangelsi var faðirinn
dæmdur til að greiða móður barnsins þrjár
milljónir króna í bætur.
Bæjarráð Akureyrar
stendur við brottrekst-
ur Snorra í Betel
Innanríkisráðuneytið telur að Akur-
eyrarbær hafi brotið gegn lögum þegar
Snorri Óskarsson, fyrrum forstöðumaður
Hvítasunnusafnaðarins Betel, var rekinn
úr starfi kennara við Brekkuskóla vegna
bloggskrifa um samkynhneigða á árinu
2012. Bæjarráð Akureyrar telur, þrátt fyrir
úrskurð ráðuneytisins, að ákvörðunin um
að reka Snorra úr starfi hafi verið rétt.
„Fordómafull skrif hans um samkyn-
hneigða samrýmast ekki stöðu hans sem
kennara barna í skyldunámi,“ segir í bókun
bæjarráðsins en það hefur falið lögmanni
bæjarins að undirbúa næstu skref í málinu.
Söfnun nEmEndur við HáSkóla ÍSlandS ætluðu að Safna 5 milljónum
Söfnuðu 9 milljónum fyrir Barnaspítalann
Alls söfnuðust um 9 milljónir
króna fyrir Barnaspítala
Hringsins í söfnunarátakinu
„Öll í einn hring.“ Elmar
Hallgríms Hallgrímsson,
lektor við viðskiptafræði-
deild Háskóla Íslands, sem
kennir á námskeiðinu Sam-
vinna og árangur, segir
söfnunina hafa gengið afar
vel. Markmið nemenda í
kúrsinum var að safna 5
milljónum króna fyrir Barna-
spítalann og fór söfnunin því
fram úr væntingum.
Námskeiðið hófst í janúar
og var söfnunarféð afhent á
miðvikudag, auk þess sem
nemendur höfðu áður fært
Barnaspítalanum tæki að
andvirði um einnar milljónar
króna.
Námskeiðið var hugarfóst-
ur Elmars sem fór á svipað
námskeið þegar hann var við
nám í Bandaríkjunum. Þar
var þó öllu meiri keppnis-
andi í líkingu við keppnina
The Apprentice en hér lagði
hann meiri áherslu á sam-
vinnu. Elmar skipti nem-
endum í sex hópa sem allir
fengu sinn tengilið, áhrifa-
konu í atvinnulífinu, og
fengu annars frjálsar hendur
til að safna. Meðal annars
héldu hóparnir tónleika,
bíósýningu og markað, auk
þess sem fjöldi þekktra
einstaklinga lagði sitt af
mörkum í söfnuninni.
„Það voru virkilega sterkir
einstaklingar á þessu nám-
skeiði sem náðu þessum
ótrúlega árangri,“ segir
Elmar og bendir á að í nám-
skeiðum sem þessum felist
mikil tækifæri fyrir nem-
endur að nýta þekkingu sína
á hagnýtan hátt. „Nemend-
urnir eru þeir sem græða
mest á þessu,“ segir hann og
útilokar ekki að halda sam-
bærilegt námskeið síðar þar
sem safnað yrði fyrir öðrum
málstað. „Það hafa margir
haft samband við mig og vilj-
að vera með ef þetta verður
haldið aftur þannig að ég úti-
loka ekkert.“ - eh
SpariSjóðir rÍkið HEfur tapað 33 milljörðum á Hruni SpariSjóðanna
Þrír sjóðir komust
óstuddir í gegnum hrunið
Af níu sparisjóðum sem starfa í landinu eru fimm í ríkiseigu en einkaaðilar eiga fjóra. Þrír þeirra
síðastnefndu komust klakklaust í gegnum hrunið, þar af tveir sem lögðu áherslu á innlend innlán
og áttu litlar erlendar eignir.
Kostnaður við starf nefndarinnar
er 607 milljónir króna, þar af er
launakostnaður 335 milljónir.
2 fréttir Helgin 11.-13. apríl 2014