Fréttatíminn - 11.04.2014, Side 4
ASÍ vill hraða byggingu félagslegs húsnæðis
... það
eru ekk-
ert örfáir
einstak-
lingar sem
aðgengi
snertir,
þetta er
virkilega
stór hóp-
ur, einn
þriðji af
þjóðinni.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
SlAgveðurSrigning, en SnjókomA
á hærri fjAllvegum
höfuðborgArSvæðið: Rigning og
allhvasst, einkum fRaman af degi.
SkAmmvinn n-átt og SnjóAr n-
og A-til.
höfuðborgArSvæðið: léttiR til,
en stRekkingsvinduR. svalt.
fremur kAlt og hiti um eðA undir
forStmArki. vÍðASt þurrt.
höfuðborgArSvæðið: léttiskýjað og
nætuRfRost.
Slær í bakseglin
Þessum væna vorkafla er að ljúka og nú
slær í bakseglin eins og svo oft. Í dag,
föstudag ganga skil lægðar yfir landið með
slagveðursrigninngu víða um land, en ekki
hlýrra en svo að á hærri fjallvegum kemur
til með að snjóa. Á laugardag
verður þessi saman lægð komin
austur fyrir land og þá snýst til
N-áttar með kólnandi veðri. Má
kalla það hret og snjóar um tíma
norðan- og austanlands, víða
einnig í byggð. Á sunnudag er
síðan útlit hægari vind, úrkomu-
lítið , en fremur kalt í veðri.
5
2 2
0
5
4
-1 0 1
5
2
-2 -2 -3
3
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
„Við erum fólk og við eigum okkar rétt. Fólk í hjólastól er ekki einangrað, en það er búið að einangra það frá samfélaginu,“ segir
Arnar Helgi Lárusson, formaður SEM samtakanna, sem er að fara af stað með herferð til að hvetja almenning til að versla frekar
við þau fyrirtæki sem eru með aðgengismál í lagi.
aðgengi seM saMtökin, Mnd Félagið og sjálFsbjörg Fara í herFerð
Vilja að fólk beini við-
skiptum til þeirra sem
eru með aðgengi í lagi
Aðgengi skiptir öllu máli fyrir þá sem eru í hjólastól eða þurfa göngugrind til að komast á milli.
Þetta er um 7.000 manna hópur sem nú ætlar í herferð til þess að berjast fyrir því að farið sé að
lögum og reglum um að aðgengi að opinberum stöðum eigi að vera tryggt.
v ið skorum á alla sem eru tengdir fólki í hjólastólum, að versla frekar þar sem allir eru velkomnir.“ SEM
samtökin, MND félagið, Sjálfsbjörg ætla
að koma þessari áskorun á framfæri við
þjóðina á næstu vikum, þau hafa stofnað
Facebook-síðu sem heitir Aðgengi skiptir
máli og undirbúa auglýsingaherferð sem
á að fara í gang síðar í mánuðinum til að
fylgja málinu eftir.
„Þetta skiptir okkur öllu máli og það eru
ekkert örfáir einstaklingar sem aðgengi
snertir, þetta er virkilega stór hópur, einn
þriðji af þjóðinni,“ segir Arnar Helgi Lárus-
son, formaður SEM samtakanna. Hann
segir að um 7.000 manns séu annað hvort
í hjólastól eða með göngugrindur. Miðað
við að 15-16 séu í nánustu fjölskyldu hvers
og eins að meðaltali séu þetta alls 112.000
manns.
„Ég er ekki að hvetja fólk til að snið-
ganga einn eða neinn, en mér finnst að fólk
eigi markvisst að versla við þá sem bjóða
alla velkomna frekar en þá sem bjóða ekki
alla velkomna. Það er það sem við erum að
gera með þessu.“
Arnar Helgi bendir á að frá því að fyrst
var sett byggingarreglugerð í landinu, árið
1979, hafi verið skylda að tryggja aðgengi.
Þar segir: „Aðkoma að opinberum bygg-
ingum, s.s. pósthúsum, verslunum, sjúkra-
húsum, skólum, kirkjum, bókasöfnum,
sundlaugum, leikhúsum, kvikmyndahús-
um, bönkum, apótekum o.s.frv., skal vera
þannig að unnt sé fyrir fólk í hjólastól að
komast þar inn og út hjálparlaust.“
Mikið vantar á að þetta hafi tekist á þess-
um 35 árum sem liðin eru. Arnar Helgi býr
í Keflavík og hann segir að við aðalverslun-
argötu bæjarins, Hafnargötu, séu 120 fyrir-
tæki en aðeins 11 þeirra séu með aðgengi
í lagi. Jafnvel þar sem endurbætur standa
yfir, eins og við Hverfisgötu í Reykjavík,
eru aðgengismál eru ekki í nógu góðu
standi. Arnar Helgi, sem er íþróttamaður
og vel á sig kominn segist aðeins geta nýtt
sér skábrautir á þremur stöðum við alla
götuna. Hann veit til þess að verið sé að
skrifa skýrslu um stöðuna þar en engar
endurbætur hafa enn verið gerðar.
„Þetta er gott dæmi um léleg vinnubrögð
og lélegt eftirlit. Þetta er búið að vera í
byggingarreglugerð í 35 ár og það eiga allir
að vita þetta en samt er ekki farið eftir því,“
segir Arnar Helgi. Samkvæmt reglugerð-
inni megi ekki vera meiri hæð en 2,5 cm
frá götu og upp á skábraut. Þessu sé illa
fylgt. Yfirleitt sé 4-6 sentimetra stallur upp
á skábrautir sem þýðir að þær geri ekkert
gagn.
„Fréttaflutningurinn er eins og þetta sé
eitthvert nýyrði – aðgengi – eins og það sé
eitthvað nýtt að hjólastólafólk vilji komast
um,“ segir hann. „Fólk í hjólastól er ekki
einangrað en það er búið að einangra þetta
fólk frá samfélaginu.“
„Ég held að meirihluti þjóðarinnar
geri sér ekki grein fyrir því að aðgengið
sé svona slæmt en þeir sem eru eitthvað
tengdir fólki í hjólastól eða með grindur
gerir sér nokkurn veginn grein fyrir því en
samt ekki alveg. Það er hluti af herferðinni
sem við erum að fara af stað með að gera
almenningi grein fyrir því hversu slæmt
aðgengi er í raun og veru.
Pétur gunnarsson
petur@frettatiminn.is
ASÍ telur að hröð uppbygging á félags-
legu húsnæðiskerfi á næstu árum verði
vel viðráðanleg fyrir fjárhag ríkis og
sveitarfélaga. Verði kerfið byggt tiltölu-
lega hratt upp næstu fimm árin með
samtals 1000 íbúðum á ári og eftir það
með 600 íbúðum ár hvert muni framlag
sveitarfélaganna verða 2,8 milljarðar á
ári fyrstu fimm árin en lækka síðan í 1,7
milljarða.
„Þessi framlög eru aðallega í
formi lóða og gatnagerðar-
gjalda en ekki beinna fjárframlaga,“seg-
ir ASÍ. „Framlag ríkisins byrjar í tæplega
600 milljónum króna en vex í 2,8 millj-
arða eftir fimm ár, 4 milljarða króna
eftir 10 ár og nær hámarki í
6,3 milljörðum króna eftir 30
ár en fer síðan lækkandi. Á
einni starfsævi nær kerfið að
verða fjárhagslega sjálf-
bært og ná til fimmtungs
alls íbúðahúsnæðis.“
Anna formaður Spítalans okkar
Anna Stefánsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi, var
kjörinn formaður Spítalans okkar á stofnfundi samtakanna í
vikunni. Anna er fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunar á
Landspítala.
Töluverður hópur manna úr ýmsum stéttum hefur að
undanförnu unnið að stofnun þessara landssamtaka sem
hafa þann tilgang að vinna að nýbyggingu og endurnýjun
Landspítala þannig að húsakostur og umhverfi sjúklinga og
aðstaða starfsfólks spítalans þjóni nútíma þörfum. Markmið
félagsins er að afla stuðnings meðal almennings og stjórn-
valda við nauðsynlegar úrbætur á húsakosti spítalans, að
kynna fyrirliggjandi áætlanir um endurnýjun og viðbætur við
húsnæði spítalans og að draga fram valkosti í fjármögnun og
framkvæmd verkefnisins. Þrjú hundruð manns gerðust stofn-
félagar á fundinum. -eh
13 sagt upp
hjá Símanum
Síminn hefur sagt upp
þrettán starfsmönnum
vegna skipulagsbreyt-
inga. Breytingarnar
eru sagðar framhald
af hagræðingarstarfi
sem unnið hefur verið
að innan fyrirtækisins
síðustu mánuði. Ætlun
Símans er að auka
aðgreiningu milli
fjarskiptaþjónustu og
upplýsingatækni. Jafn-
framt færast nokkrir
millistjórnendur
fyrirtækisins í starfi
auk þess sem Magnús
Ragnarsson, sem verið
hefur aðstoðarmaður
Illuga Gunnarssonar
menntamálaráðherra
gengur til liðs við
Símann og mun stýra
markaðssetningu fyrir-
tækisins.
4 fréttir Helgin 11.-13. apríl 2014