Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 9

Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 9
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Bílalán í stuttu máli er vefur sem fjallar um bílalán og það sem hafa þarf í huga þegar keyptur er nýr bíll. Kynntu þér allt um bílalán á landsbankinn.is/istuttumali Lægri vextir á bílalánum Lánshlutfall allt að 75% Engin stimpilgjöld Allt að 7 ára lánstími Landsbankinn býður betri kjör í apríl. Lægri vextir á nýjum bílalánum og afsláttur af lántökugjöldum. Kynntu þér málið á landsbankinn.is/istuttumali. matskerfum háskólanna því það er yfirleitt metið til stiga ásamt öðru. En það útilokar svo sem ekki að menn hafi líka afstöðu um það hvað þeir telja að sé farsælla og betra fyrir almenning.“ Og það er væntanlega algert skil- yrði, eins og í öllu háskólastarfi, að staðreyndir séu á hreinu? „Jú, jú, auðvitað. Það er tilefnið til að þeir komi fram, að þeir hafi einhverjar staðreyndir sem málin varða. Ef háskólakennari bregst í því og fer með staðlausa stafi, eða röng gögn og villandi niðurstöð- ur, þá auðvitað verður hann að taka tillit til gagnrýni og leiðrétta í framhaldinu. En að öðru leyti hlýtur að þurfa að gera miklar kröfur til háskólamanna um að þeir haldi sig við staðreyndir. En að sama skapi verða þeir að vera trúir staðreyndum og ekki að bogna þó að á móti blási.“ Er hægt að ætlast til þess að há- skólafólk sé hlutlaust? „Það hafa allir sitt gildismat en hinsvegar er ósköp eðlilegt að háskólakennarar haldi staðhæf- ingum sínum um staðreyndir að- greindum frá staðhæfingum um afstöðu og gildismat. Það er auð- vitað sérstaklega mikilvægt í allri umræðu um þjóðfélagsmál, en það er ekki hægt að gera þá kröfu að fólk sé skoðanalaust. Við vilj- um þó að háskólakennarar byggi málflutning sinn á staðreyndum og einhverjar prívat og sérvisku- legar skoðanir eiga kannski ekkert sérstaklega meira erindi við almenning hvort sem þær koma frá háskólakennurum eða trúarsöfnuðum, ef þær eru ekki byggðar á staðreyndum.“ En með því að segja að há- skólaprófessorar séu í einhverskon- ar krossferð er forsætisráðherra þá ekki í raun að segja að tilteknir prófessorar geri ekki greinarmun á staðreyndum og gildishlaðinni afstöðu? „Þetta er nú voða algengt hjá stjórnmálamönnum og alls ekk- ert bundið við núverandi forsæt- isráðherra. Þetta gerist iðulega þegar háskólamenn koma fram með upplýsingar eða gögn sem mönnum finnst óþægileg og ég lít nú bara þannig á að þetta endur- spegli þetta óþroskaða umhverfi. Íslenskir stjórnmálamenn þurfa ekkert á þessu að halda og þeir eiga í rauninni bara að hefja sig upp fyrir þetta og taka gagnrýni fagnandi. Ef að þeir hafa mótrök þá koma þeir með þau og þá bara myndast heilbrigðar rökræður þar sem misgóðar hugmyndir takast á, en sem leiða vonandi á endanum til farsællar niðurstöðu fyrir almannahag. Stjórnmála- menn eigi bara ekki að vera svona viðkvæmir fyrir óþægileg- um upplýsingum.“ Er ekki hætta á því að fræðasam- félagið innilokist í fílabeinsturni ef það getur ekki miðlað upplýsing- um án gagnrýni sem þessari? „Jú, þá erum við að neita okkur um það að nýta okkur þær upp- lýsingar sem eru til staðar í há- skólasamfélaginu. Það er svo sem alveg hægt að hafa háskóla sem lokaða fílabeinsturna en ég held að það sé nú ekki skynsam- legt.“ Eins og fram kom á málþinginu þá hefur þú sjálfur ekki farið var- hluta af gagnrýni. „Já, ég hef nú ágæta reynslu af þessu sjálfur. Ég startaði hér umræðu árið 2006 um skatta- mál, en þáverandi ríkisstjórn hafði talað um það í nokkur ár að hún væri að lækka skatta og sagðist ætla að gera meira af því. Svo ég birti tölur, annars vegar frá OECD og hinsvegar frá Hagstofu Íslands í grein sem ég skrifaði. Þar sýndi ég með þessum opinberu tölum að mál- flutningur ríkisstjórnarinnar hélt ekki alveg vatni. Það sem hafði verið að gerast var það að skattar höfðu lækkað í hærri tekjuhópum en hækkað í lægri og millitekjuhópunum. Hækkun- in var meiri en lækkunin þannig að heildarskatturinn hafði aukist og þar að auki meira en í nokkru OECD landi. Þetta voru nú bara staðreyndir sem að rákust á mál- flutning sitjandi ríkisstjórnar, og þar af leiðandi ákváðu hags- munaaðilar hennar að fara í herferð gegn þessum skrifum mínum. Þar var ég kallaður ýmsum nöfnum og meðal annars talað um að ég kynni ekkert að reikna, en ég hafði ekki reiknað neitt, bara dregið opinberar stað- reyndir fram í dagsljósið.“ Er hætta á því að háskólafólk veigri sér við opinberri umræðu, ef umhverfið er svona? „Jú, þegar umræðan er svona óþroskuð og einkennist af skít- kasti og leðjuslag þá er auðvitað hætta á því að fólk veigri sér við því að taka þátt. Þess vegna held ég að þetta þing sé hollt innlegg í umræðuna.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Stefán Ólafsson, prófessor í þjóð- félagsfræði, tók þátt í málþingi á vegum Félags-og mannvísindadeildar Háskóla Íslands um hlutverk háskóla- kennara í samfélaginu. Ljósmynd/Hari fréttaviðtal 9 Helgin 11.-13. apríl 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.