Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 12
S amtök atvinnulífsins, SA, telja margt benda til þess að sam-keppnishæfni íslensks þjóð-
félags hafi raunar verið ofmetin á
árum áður. „Hér hafa komið tíma-
bundin velmegunarskeið þar sem
hagvöxtur hefur verið umtalsvert
meiri en í flestum samanburðarlönd-
um. Slíkum tímabilum hafa jafnan
fylgt dýpri samdráttarskeið en víð-
ast annars staðar,“ segir í kynningu
SA á tillögum um það hvernig Ísland
komist á topp tíu listann yfir sam-
keppnishæfustu þjóðir heima innan
tíu ára.
„Helstu samanburðarlöndin hafa
stungið Ísland af,“ segir um þró-
unina á þeim árum þegar Ísland fór
úr fjórða sæti listans niður í það 29.
„Á sama tíma hafa lífskjör versnað
til muna. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna á mann dróst saman um 30% í
kjölfar efnahagshrunsins og lands-
framleiðsla á hvern íbúa hefur dreg-
ist aftur úr nágrannaríkjunum.“
Í leiðarvísi sínum að nýrri sókn til
aukinnar samkeppnishæfni kemur
fram að samtökin vilja að þekking
og nýsköpun sé efld með öflugu
menntakerfi og hvata til rannsókna
og að vextir verði hér hóflegir mið-
að við samkeppnisríkin. Lækka
eigi skatta og auka samkeppni og
vægi einkareksturs. Draga þurfi
úr kostnaði við heilbrigðiskerfi og
menntakerfi og nýta á báðum svið-
um einkarekstur og samkeppni í
auknum mæli.
Stokka eigi upp landbúnaðarkerf-
ið og taka upp nýja peningamála-
stefnu og draga úr fjármagnskostn-
aði sem kosti íslenskt þjóðfélag 210
milljörðum króna meira ár hvert
en ef við byggjum við sambærilegt
vaxtastig og evrusvæðið.
SA vilja að stöðugleiki einkenni
rekstur ríkis og sveitarfélaga,
skattkerfið og vinnumarkaðinn.
Mikilvægt sé að samþætta efna-
hagsstefnu ríkisstjórnarinnar pen-
ingastefnu Seðlabanka Íslands og
launastefnu á vinnumarkaði. Það sé
forsenda efnahagslegs stöðugleika
og þar með samkeppnishæfni.
„Þessi samræming hefur jafnan
brugðist hér á landi,“ segja SA og
benda á að eins og hagstjórn hafi
verið háttað hér á landi síðustu 20 ár
ríkið hafi yfirleitt magnað hagsveifl-
urnar í stað þess að draga úr þeim.
Stiklað er á stóru um tillögurnar
tíu hér á eftir.
1. Farsælt afnám gjaldeyris-
hafta
„Höftin bjóða heim mismunun og
spillingu,“ segja SA. Ekkert liggur
fyrir um hvenær þau verða afnumin.
Þau voru sett á fyrir tæpum fimm
árum eftir 13 ára frelsi í gjaldeyris-
viðskiptum til þess að koma í veg
fyrir fjármagnsútflæði og gengis-
fall vegna mikilla krónueigna er-
lendra aðila. Einungis 35 fyrirtæki
í landinu hafa undanþágu frá höft-
unum en til þess þurfa þau að vera
með 80% tekna sinna og 80% gjalda
í erlendri mynt. „Þessi regla hvetur
útflutningsfyrirtæki til að kaupa
vörur og þjónustu erlendis til að ná
80% markinu,“ benda SA á. „Seðla-
bankinn kaupir gjaldeyri af erlend-
um aðilum á hærra gengi en skráðu
og margir fjárfesta hér á landi með
útsölukrónum í boði bankans. Það
er útilokað að leggja mat á tjónið af
glötuðum tækifærum, fjárfesting-
um og nýsköpun og ójafnræðinu
milli íslenskra og erlendra fyrir-
tækja en það er augljóslega mjög
mikið.“
Þá benda samtökin á að það
standist ekki til lengdar að loka
eignir lífeyrissjóðanna inni í gjald-
eyrishöftum í stað þess að gefa þeim
færi á að ávaxta fé sitt erlendis. Með
sama framhaldi muni innlendar
eignir sjóðanna jafngilda saman-
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
06
29
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Flottar
fermingargjafir
- okkar hönnun og smíði
Vilja stefna í efstu sæti listans á ný
Ísland er nú í 29. sæti á lista yfir samkeppnishæfustu þjóðir
heims en var í fjórða sætinu árið 2006. Sterk tengsl eru milli
samkeppnishæfni þjóða og þeirra lífskjara sem þær búa við.
Samtök atvinnulífsins vilja stefna að fornri frægð og kynntu á
dögunum 10 tillögur sem hafa það að markmiði að koma Íslandi
á nýjan leik í hóp efstu tíu þjóða á þessum lista á næstu tíu árum.
ríkissjóðs á komandi árum en ver-
ið hefur fram að þessu. Aðhald í
rekstri mun ekki duga til að skulda-
staða ríkissjóðs verði viðunandi.
Eignasala þarf einnig að koma til,“
segja SA og benda á að síðustu tvo
áratugi hafi opinber fjármál oftar
en ekki magnað sveiflur í efnahags-
lífinu í stað þess að draga úr þeim.
„Opinberu fjármálin hafa magn-
að hagsveiflur í 11 af síðustu 20
árum,“ segir ennfremur. „Fjármál
hins opinbera verða að stuðla betur
að efnahagslegum stöðugleika og
jöfnun sveiflna en hingað til. Reglan
verður að vera að þegar horfur eru á
2% hagvexti verði rekstur hins opin-
bera í jafnvægi og þegar horfur eru
á 3% hagvexti nemi heildarafgang-
urinn 1,5% af landsframleiðslu. Séu
horfur á minni hagvexti en 2% verði
gert ráð fyrir halla.“
4. Lækkun skatta og útgjalda
ríkis og sveitarfélaga
„Ísland er í fjórða sæti í heiminum
varðandi útgjöld ríkis og sveit-
arfélaga, að frátöldum lífeyris-
greiðslum, og voru þau 45% af vergri
landsframleiðslu árið 2012,“ segja
SA. „Hlutfallið var einungis hærra
í Finnlandi, Belgíu og Danmörku.“
Óbeinir skattar séu með þeim
hæstu sem þekkjast hér á landi en
hvað varðar tekjuskatta einstak-
linga erum við um miðjan hóp 60
ríkja. SA benda á að hagræðing í
heilbrigðiskerfinu geti skilað allt
að 30-40% lækkun kostnaðar að
mati OECD. Þar starfi of margt
fólk, þjónusta einkaaðila sé of lítil
og samkeppni ekki nægilega mikil.
Þá megi spara fimmtung útgjalda
til menntamála þótt markið sé
ekki sett hærra en að ná meðaltals-
frammistöðu OECD ríkja.
5. Lækkun fjármagnskostnaðar
Fjármagnskostnaður lækkar ef
varanlegur efnahagsstöðugleiki
kemst á. Undanfarna tvo áratugi
hafa nafnvextir á evrusvæðinu verið
um 6% lægri en á Íslandi að jafnaði.
„Heildarskuldir íslenskra heimila
og fyrirtækja nema nú um 5.000
milljörðum króna. Þar af eru 70% í
íslenskum krónum og bera þær því
210 milljörðum króna hærri vexti á
ári hverju en samsvarandi skuldir á
evrusvæðinu.“
6. Betra rekstrarumhverfi
SA telur nauðsynlegt að hagræða
í rekstri opinberra eftirlitsstofn-
ana, sameina þær og skipuleggja
að nýju. „Unnt er að nýta fjármuni
þeirra miklu betur en nú er gert án
þess að það komi niður á kröfum
sem gerðar eru til fyrirtækjanna,“
segja samtökin.
7. Aukin framleiðni í mennta-
kerfinu
„Samtök atvinnulífsins styðja fyrir-
hugaðar breytingar á framhalds-
skólastiginu um styttingu náms en
leggja einnig áherslu á breytingar á
grunnskólanum sem stuðla að auk-
inni samkeppnishæfni skólakerfis-
ins. Meiri og markvissari tenging
við leikskólann er þar ekki undan-
skilin. Norðurlöndin verja að jafnaði
6,6% af landsframleiðslu til mennta-
mála en Íslendingar 8%. Ef hlutfallið
væri hið sama hér og á Norðurlönd-
um spöruðust 25 milljarðar króna
árlega.“
8. Aukið vægi einkareksturs
„Samkeppnin er heppilegasta að-
ferðin til þess að lækka kostnað,
veita aðhald og hvetja til gæða,
framþróunar og úrbóta við opin-
bera þjónustu,“ segja SA. Reynslan
sýni að einkarekin fyrirtæki, sjálfs-
eignarstofnanir og aðrir einkaaðilar
geti veitt góða þjónustu á hagstæðu
verði, hvort sem er í heilbrigðis- eða
menntakerfinu. „Fjölbreytt rekstr-
arform eiga vel við á öllum skóla-
stigum.“
9. Betri umgjörð kjarasamninga
„Rökrétt viðbrögð við ítrekuðum
efnahagsvanda Íslands er að leita
fyrirmynda hjá nágrannaríkjum
Íslands sem geti nýst til að bæta
vinnubrögð við hagstjórn og launa-
myndun þannig að saman fari stöð-
ugt verðlag, stöðugt gengi, vaxandi
kaupmáttur og samkeppnishæft at-
vinnulíf,“ segja SA.
10. Aukin samkeppni í land-
búnaði
„Auka þarf frjálsræði og samkeppni
í landbúnaði og fella greinina í heild
undir samkeppnislög. Hagsmunir
landbúnaðar og atvinnulífs fara
saman. Bændur eiga samleið með
öðrum um að fá að njóta erfiðis síns
og búa við áhugaverð tækifæri. Hag-
kvæmara landbúnaðarkerfi, lægra
matvælaverð og fjölbreyttara fram-
boð matvæla getur stuðlað að bætt-
um lífskjörum. Skipulagsbreytingar
í landbúnaði eru skilvirk leið að því
marki,“ segja Samtök atvinnulífs-
ins.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Það vinna of margir í heilbrigðiskerfinu, einkarekstur er ekki nægur á því sviði og samkeppni of lítil, að mati Samtaka atvinnu-
lífsins. Lækka megi útgjöld um 30-40%. Einnig megi spara um fimmtung í menntakerfinu.
lögðu verðmæti alls atvinnulífs og
alls íbúðarhúsnæðis í landinu innan
fárra áratuga.
2. Mótun nýrrar peningastefnu
„Slakur árangur í baráttunni við
verðbólgu sýnir mikilvægi þess að
endurskoða umgjörð peningastefn-
unnar með verðlags- og gengis-
stöðugleika að meginmarkmiði,“
segja SA. Bent er á að verðbólga
hafi nánast alltaf verið yfir mark-
miði Seðlabankans frá því að verð-
bólgumarkmið var tekið upp. „Mis-
brestir í miðlun peningastefnunnar
frá stýrivöxtum til annarra vaxta
og innlendrar eftirspurnar urðu til
þess að vaxtahækkanir dugðu ekki
til að slá á verðbólgu og verðbólgu-
væntingar.“
3. Betri árangur í fjármálum
hins opinbera
„Mun meira aðhald þarf í rekstri
12 fréttir Helgin 11.-13. apríl 2014