Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
F
Fáar starfsgreinar eru viðkvæmari fyrir
verkfallsaðgerðum en flugþjónusta, hvort
heldur þær aðgerðir snúa að einstökum flug-
félögum, flugumsjón eða þjónustu flugvalla.
Allar tafir valda keðjuverkun, setja ferðir
flugfélaga úr skorðum og trufla tengiflug.
Farþegaflutningar milli landa byggja að
verulega leyti á flugi – og algerlega hér á
landi.
Fjögurra klukkustunda vinnustöðvun
félaga SFR stéttarfélags,
Félags flugmálastarfsmanna
og Landssambands slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna
síðastliðinn þriðjudagsmorg-
un vegna kjaradeilu við Isavia,
sem annast rekstur flugvalla
og stýrir flugumferð á ís-
lenska flugstjórnarsvæðinu,
sýndi það ástand sem skapast,
jafnvel þótt um tímabundna
aðgerð væri að ræða. Morgun-
verkfallið, þegar annir eru
mestar á Keflavíkurflugvelli, hafði áhrif á
ferðir þúsunda manna. Náist samningar
milli aðila ekki á næstunni boða félögin til
sambærilegra aðgerða 23. og 25. apríl næst-
komandi og verkfalls frá og með 30. apríl.
Markvisst hefur verið unnið að því að
efla ferðaþjónustu hér á landi og er óhætt að
segja að vel hafi gengið, sem marka má af
örri fjölgun erlendra ferðamanna hingað til
lands undanfarin ár. Hagvöxtur síðasta árs
mældist 3,3%. Framlag utanríkisviðskipta
á síðasta ári nam 3,2% þannig að hagvöxtur
ársins byggðist nær alfarið á því. Þar vó
framlag ferðaþjónustunnar þungt en þessi
atvinnugrein hefur fært björg í bú á undan-
förnum árum. Alls námu tekjur af erlendum
ferðamönnum nær 275 milljörðum króna á
síðasta ári, eða 26,8% af heildarverðmæti út-
flutnings vöru og þjónustu. Ásamt ferða-
þjónustunni er útflutningur sjávarafurða
og áls þrír stærstu liðirnir. Útflutningur
sjávarafurða nam 25,5% og áls 21%. Þetta
er í fyrsta sinn sem ferðaþjónustan er efst á
blaði. Þróun hvað hana varðar hefur verið
hin sama það sem af er þessu ári.
Ferðaþjónustan er hins vegar viðkvæm
grein og ekki sjálfgefið að þessi þróun, sem
kalla má ævintýri, haldi áfram – og alls ekki
verði hún fyrir verulegum truflunum af völd-
um verkfallsátaka. Ferðamenn sniðganga
svæði þar sem vænta má truflana, ekki síst
ef líkur eru á að þeir komist ekki á áfanga-
stað á réttum tíma eða ef hætta er á að þeir
verði strandaglópar.
Það er því mikið í húfi, nú þegar aðal
ferðamannatími ársins er að hefjast, og
ábyrgðin mikil á deiluaðilum. Venjan er
sú þegar í brýnu slær um kjaramál og til
verkfalls er boðað að deilt sé um kaup og
kjör. Í vinnudeilu Isavia og fyrrgreindra
stéttarfélaga hafa stéttarfélögin ekki gefið
upp launakröfur sínar í prósentum en fleira
virðist koma til enda hefur verið haft eftir
Kristjáni Jóhannssyni, formanni Félags
flugmálastarfsmanna, að launin séu aðeins
hluti vandans. Hann segir starfsandann
innan Isavia lélegan og vitnar í því sam-
bandi til ítrekaðra viðhorfskannana meðal
starfsmanna félagsins. „Það er alltaf sama
falleinkunnin sem kemur í Keflavík þar sem
57 prósent starfsmanna segjast nú óánægð
í starfinu,“ sagði Kristján í viðtali og bætti
því við að forráðamenn Isavia rækju harða
starfsmannastefnu og að starfsfólkið væri
orðið langþreytt. Þessu neitar Björn Óli
Hauksson, forstjóri Isavia, sem segir það
verulega ámælisvert að farið sé með slík
ósannindi og dylgjur opinberlega í miðjum
kjaraviðræðum, „þegar nýleg könnun sýnir
að yfir 90% starfsmanna eru ekki óánægðir
í starfi sínu.“ Viðskiptablaðið hafði það eftir
heimildum sínum að starfsmenn hefðu oft
lent upp á kant við yfirmenn sína. Ótal fund-
ir hefðu verið haldnir með sálfræðingum og
sérfræðingum til að komast að rót vandans.
Það hefði engu skilað.
Kjaradeilur eru eitt en samskipti eins og
fram koma hjá stéttarfélagsformanninum
og forstjóranum eru annað. Gera verður
þær kröfur til stjórnenda og starfsmanna
burðarfyrirtækis eins og Isavia að þar séu
innanhúsdeilur leystar og starfsandi færður
í viðunandi horf án þess að það bitni að öðr-
um, svo ekki sé talað um heila atvinnugrein,
ferðagreinina, sem skilar mestum gjaldeyri
í þjóðarbúið.
Annað er óábyrgt og ólíðandi.
Innanhúsdeilur meðal ástæðna verkfalls
Ekki sjálfgefið
að ævintýrið haldi áfram
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
20% afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun.
Höfuðborgar-
svæðið
Austurver
Domus Medica
Eiðistorg
Fjörður
Hamraborg
JL-húsið
Kringlan
Landsbyggðin
Glerártorg Akureyri
Hrísalundur Akureyri
Dalvík
Hella
Hveragerði
Hvolsvöllur
Keflavík
Selfoss
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
Kjaradeilur eru eitt en samskipti eins og fram koma hjá
stéttarfélagsformanninum og forstjóranum eru annað.
Nærandi nammigott
Engi
viðbæur
sykur!
Þú finnur stjörnuspána þína
í Spádómsegginu frá Góu.
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 140597
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Vor/Sumar
2014
Litrík
sumarföt
frá
Mayoral mini
Jakki: 6995.-
Mayoral mini
Bolur: 3395.-
Mayoral mini
Buxur: 4595.-
14 viðhorf Helgin 11.-13. apríl 2014