Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 36
Alast upp við óvissu, álag og skömm
Börn alkóhólista voru fengin
til að skipa fyrsta sérfræðihóp
barna sem Umboðsmaður
barna kallar til starfa. Átta
börn á aldrinum 14-18 ára
voru fengin til að starfa. Öll
höfðu þau fengið stuðning og
ráðgjöf á vegum SÁÁ.
T alið er að allt að 22.000 börn í landinu búi við alkóhólisma foreldra sinna eða náinna að-
standenda. Neysla foreldranna snert-
ir líf barnanna bæði beint og óbeint.
Börnin eru sérfræðingar í sínu eigin
lífi og í sínum aðstæðum. Þau upp-
lifa mikla óvissu og álag og það að
alast upp við áfengis- og vímuefna-
neyslu foreldra getur haft langvar-
andi tilfinningalegar og félagslegar
afleiðingar fyrir börnin og markað líf
þeirra til framtíðar. Og það liggur að
miklu leyti í eðli vandans og í þeirri
skömm sem börnin upplifa vegna að-
stæðnanna, sem þau búa við en bera
ekki ábyrgð á, að það ríkir þöggun í
samfélaginu um áhrif neyslunnar á
heimili og líf þessara barna.
Umboðsmaður barna vill stuðla
að því að hlustað sé á það sem börn
hafa að segja um samfélagið og sína
reynslu. Ákveðið var að beina sjón-
um að aðstæðum barna alkóhólista
í tilraunaverkefni þar sem börnin
ræddu um það hvernig það er að eiga
foreldri sem á við áfengis- og vímu-
efnavandamál að stríða, hvers kon-
ar aðstoð reynist vel og hvaða þjón-
ustu þarf helst að bæta. Jafnmargar
stelpur og strákar voru í hópnum
sem hittist sjö sinnum á nokkurra
mánaða tímabili en þrír þátttakend-
ur heltust úr lestinni meðan starfið
stóð yfir. Nú liggur fyrir skýrsla um
verkefnið.
Taka á sig ábyrgð sem börn
eiga ekki að bera
Börn alkóhólista eru auðvitað eins
og önnur börn en búa álag, óöryggi
og ófyrirsjáanlegar aðstæður. Rann-
sóknir hafa sýnt að það getur haft
langvarandi áhrif á börn sem alast
upp við alkóhólisma. Þau eiga meiri
hættu en aðrir á að lenda í ýmsum
tilf inningalegum, líkamlegum,
félagslegum og námslegum vanda-
málum en aðrir, eiga meiri hættu á
að ánetjast sjálf áfengi og vímuefn-
um og eru í áhættuhópi fyrir mis-
notkun og vanrækslu. Börn alkóhól-
ista taka oft á sig ábyrgð sem hinir
fullorðnu eiga að bera. Í skýrslu Um-
boðsmanns barna er bent á að mikil-
vægt sé að þau taki ekki á sig slíka
ábyrgð og að fjölskyldan, fagfólk og
aðrir sem koma að málefnum barna
þekki einkenni alkóhólisma og komi
Ráð og reynsla sérfræðingahóps barna um alkóhólisma:
„Fannst ég vera ein.“
„Ég veit aldrei hvernig andrúmsloftið er þegar ég kem heim.“
„Stundum þarf ég að taka ákvörðun en ég fæ alltaf valkvíða.“
„Við erum ekki vandamálið en við glímum við það“.
„Það er hægt að minnka kvíðann en ekki hægt að útrýma!“
„Pabbi er bara edrú þegar hann er að vinna.“
„Ég hef ekki talað við pabba minn síðan […] 2011.“
„Bróðir minn reyndi að sjá til þess að ekkert kæmi fyrir mig og systkini mín.“
„Meiri fordómar í garð kvenna sem eru alkóhólistar.“
„Hélt að þetta væri eðlilegt ástand.“
„Góð þjónusta en langir biðlistar.“
„Fræðsla er stundum miðuð af því að þú sért með vandamál en ekki einhver í kringum þig“.
„Börn fá oft ekki að vita af þeirri þjónustu sem er í boði.“
„Allt of lítil fræðsla í skólum um hvar maður getur fengið stuðning.“
alkóhólisma fundu þau fyrir ákveðn-
um létti.
Umboðsmaður barna segir að
vinnan með þessum fyrsta sérfræði-
hópi barna hafi verið einstaklega
ánægjuleg og lærdómsrík. „Sér-
staklega var jákvætt að sjá hversu
vel börnin höfðu unnið úr erfiðum
aðstæðum. Umboðsmaður barna
hefur þó áhyggjur af þeim börnum
alkóhólista sem njóta ekki stuðn-
ings innan fjölskyldunnar eða hafa
ekki aðgang að þjónustu við hæfi, til
dæmis vegna búsetu,“ segir í skýrsl-
unni.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Skilaboð frá börnum alkóhólista til fjölskyldu:
1. Við erum börn, ekki setja ábyrgðina á okkur.
2. Ekki vera í afneitun, það gerir engum gott.
3. Ekki fela ástandið, talið um það.
4. Hátíðir og frí valda oft kvíða.
5. Við finnum fyrir óöryggi þegar fólk í kringum okkur drekkur áfengi eða notar
önnur fíkniefni.
6. Það hjálpar okkur ekki að talað sé illa um foreldri okkar.
7. Við viljum ekki lenda á milli foreldra.
8. Það er gott að alkóhólistinn fari í meðferð en það er erfitt að takast á við langa
fjarveru foreldris.
9. Þegar við viljum tala um vandann er nauðsynlegt að hlusta og sýna skilning.
10. Við viljum eiga öruggan samastað.
börnum sem búa við þær aðstæður
til aðstoðar.
Kvíði, höfnun og skömm
Aðstæður barna alkóhólista eru
mismunandi og viðbrögð þeirra við
aðstæðunum ólík og upplifun þeirra
af sjúkdómi foreldranna er ólík. Sum
búa við öflugt stuðningsnet sem önn-
ur skortir og áhrif alkóhólismans á
líf þeirra eru mismunandi. Engu að
síður hafa rannsóknir sýnt að börn
alkóhólista eiga við ýmis sameigin-
leg tilfinningaleg og félagsleg vanda-
mál að stríða. Algengast er tilfinn-
ingavandi sem birtist í reiði, depurð,
kvíða, þunglyndi, höfnunartilfinn-
ingu, sektarkennd, skömm og stjór-
nleysi á eigin tilfinningum. Þau hafa
oft neikvæða sjálfsmynd. Þau eiga
á hættu að einangrast félagslega og
eiga erfitt með að mynda og viðhalda
tengslum. Þau þurfa aðstoð til að efla
sjálfsmynd sína og við að læra að tak-
ast á við meðvirkni og önnur vanda-
mál sem fylgja því að vera aðstand-
andi alkóhólista. Það skiptir börnin
líka miklu máli að foreldrar þeirra
fái meðferð til þess að geta tekist á
við sinn vanda. Sjálf höfðu börnin í
sérfræðihópi Umboðsmanns barna
höfðu öll fengið aðstoð hjá SÁÁ og
sögðu hana skipt miklu máli. Eftir
að þau fengu aðstoð og áttuðu þau
sig á því að þau voru ekki ein um það
að eiga aðstandanda sem glímir við
Megi gæfa og gæði fylgja fermingarbörnum
Stýriker: Win 8 · Örgjörvi: Quad core processor
1,4 kg. og 8 klst. rafhlöðuending.
Tö hönnun · Frábær tölva fyrir fólk á ferðinni.
Fermingartilboð: 149.900 kr.
Verð áður: 159.900 kr. · Verð með snertiskjá: 169.900 kr.
NP905S3G-K01SE
Ativ Book 9
Lite
13,3"
SÍÐUMÚLA 9 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2900 · samsungsetrid.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL 10-18
OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12–16
Stýriker: Windows 8 · Örgörvi : Intel Core i5
Vinnsluminni: 4GB · Harður diskur: SSD 128GB
Spjaltölva og fartölva í einu og sama tækinu–SNILLD!
Fermingartilboð: 99.900 kr.
Verð áður: 179.900 kr.
SAXE700T1C-K02SE
11,6"
Stýriker: Windows 8 · Örgjörvi: Intel Pentium
Vinnsluminni: 4GB · Harður diskur: 500 GB
Verð: 119.900 kr.
15,6"
Ativ Book 2
SANP270E5G-K03SE
Vörurnar frá
Samsung
eru ávísun
á gæfuríkar
gæðagjafir
Lengi býr að bestu gerð.
Fermingargjöf frá Samsung mun
ekki aðeins veita stundargleði,
heldur líka fullvissu fyrir því
að gæðin munu endast og
gjön reynast fermingarbarninu
gæfurík.
36 fréttaskýring Helgin 11.-13. apríl 2014