Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 50
50 ferðalög Helgin 11.-13. apríl 2014
Kanada Borg sem hvað Best er að Búa í
I nnan um háhýsin í miðborg Vancouver hafa verið lagðir hjólastígar í allar áttir enda
er það yfirlýst markmið borgar
stjórans að draga úr umferð bíla á
svæðinu. Í bílastæðunum standa
svo matarvagnar sem „servera“
fjölbreyttan skyndibita til gang
andi vegfarenda. Erilinn sem ein
kennir háhýsahverfi stórborganna
er því víðsfjarri í Vancouver. Það er
kannski helsta ástæðan fyrir því að
þessi sex hundruð þúsund manna
borg er ávallt í einu af efstu sæt
unum á lista Economist yfir þær
borgir sem best er að búa í.
Hér eru hverfin í miðborg Van
couver sem nauðsynlegt er að gefa
gaum á ferðalagi um borgina. Eins
og eins og sjá má þá setur matur
inn sterkan svip á bæinn.
Gastown
Elsta hverfið er kannski það
skemmtilegasta. Alla vega ef þú
vilt kíkja í búðir og fá þér í svang
inn. Miðpunkturinn er hringurinn
sem strætin Cordova W, Walter og
Carroll mynda við lestarteinana.
Þar er úrvalið af matsölustöðum
fjölbreytt og í öllum verðflokkum.
Á mörgum þeirra er lögð áherslu
á að skapa sinn eigin stíl og notast
við hráefni úr nágrenninu. Hér
gefst því tækifæri til að prófa eitt
hvað nýtt.
Nálægðin við lestarstöðina og
Kínahverfið, þar sem útigangs
fólk er áberandi, setur svip sinn á
Gastown og gefur svæðinu brodd.
Húðflúraðir þjónar, sem tárast
þegar þeim tekst að búa til fallegt
lauf úr kaffimjólkinni, standa vakt
ina á matsölustöðum og börum
hverfisins og eru kannski lýsandi
fyrir blönduna á því fína og grófa
sem einkennir Gastown.
Granville Island
Því er víða haldið fram að matar
markaðurinn á Granville eyju sé
sá allra besti í Kanada. Kokkar
og metnaðarfullir sælkerar sækja
þangað hráefni og túristar geta
valið á milli kræsinga á óteljandi
matarbásum. Það er því ekki að
undra að Granville Island er sá
staður í borginni sem laðar til
sín flesta ferðamenn. Ferðalagið
þangað er líka pinkulítið ævin
týri því litlar trillur flytja fólk frá
bakkanum við Yaletown og yfir á
bryggjuna við matarmarkaðinn.
Skemmtilegra gæti það varla
verið.
Stanley Park
Þetta risastóra og sígræna svæði í
miðborginni er vel nýtt af íbúunum
allan ársins hring en auðvitað
mest á sumrin þegar hægt er að
leggjast á ströndina og svamla í
sjónum. Sjávardýrasafnið Van
couver Aquarium laðar einnig að
fjölmarga og er opið alla daga.
Stanley Park býður því upp á smá
tilbreytingu frá röltinu um stræti
Vancouver borgar.
Yaletown
Veitingamenn hafa tekið yfir
gömlu vöruhúsin í suðurhluta
borgarinnar og sá sem gengur
niður Hamilton stræti fer ekki
þaðan nema fá sér í svanginn.
Það er einfaldlega engin leið að
standast freistinguna. Vegna legu
borgarinnar eru sjávarréttir góðir
á þessum slóðum og heimsókn á
Rodney´s Oyester House svíkur
ekki. Þar opnar hver þjónn um tvö
þúsund ostrur á kvöldi milli þess
sem þeir hella hvítvíni í mjólkur
glös.
Áætlunarflug Icelandair til Van
couver hefst 13. maí og á Túristi.
is má lesa meira um það helsta í
borginni.
Hverfin í
Vancouver
Nafn Vancouver er reglulega að finna á listum yfir byggilegustu
þéttbýli í heimi og það kemur þeim sem heimsækja borgina
ekki á óvart. Í sumar gefst í fyrsta skipti tækifæri á að fljúga
héðan beint til vesturstrandar Kanada. Granville Island matarmarkaðurinn er hér vinstra megin við háhýsabyggðina og í
fjarska sést hinn risastóri Stanley Park, helsta útivistarsvæði íbúa Vancouver.
Kokteilbar á hinni líflegu matargötu Hamilton Street í
Yaletown.
Það er freistandi að fá sér í svanginn á hinum rómaða
matarmarkaði á Granville eyju.