Fréttatíminn - 11.04.2014, Síða 52
52 grænn lífsstíll Helgin 11.-13. apríl 2014
Metan er hægt að framleiða úr öllu líf-
rænu efni, eins og til dæmis úr lífrænum
úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum,
grasi, skólpi, orkuplöntum, þörugnum,
kúamykju, slori, sláturúrgangi og fleiru.
Metanvæðingin gerir því kleift að auka
orkuöryggi svæða með sjálfbærum
hætti. Metangas myndast þegar lífrænn
úrgangur brotnar niður og er metan
ökutækjaeldsneyti framleitt með hreins-
un á hauggasi. Metan er einfaldasta
samband kolefnis og vetnis sem til er og
er lyktarlaus gastegund og skaðlaus við
innöndun.
Síðan snemma á síðustu öld hefur
metan verið notað til húshitunar og
rafmagnsframleiðslu víða um heim.
Metan ökutækjaeldsneyti nýtur vaxandi
vinsælda um allan heim og er notað á
allar gerðir ökutækja, svo sem fólksbíla,
lögreglubíla, sjúkrabíla, sendibíla, sorp-
hirðubíla og strætó. Í um áratug hefur
Strætó bs., sem er í eigu sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu, haft tvo
metanvagna í daglegum rekstri. Metan
er einnig notað á báta og ferjur.
Íslenskt metan hefur verið framleitt
hjá Sorpu á Álfsnesi frá árinu 2000.
Metan eykur orkuöryggi
Tveir vagna Strætó eru knúnir metani.
K y n n i n g K y n n i n g
Jón Halldórsson er framkvæmdastjóri hjá Olís.
Á næstu dögum opnar Olís metanáfyllingarstöð í Álfheimum. Metanorka sá um hönnun og val á búnaði nýju stöðvarinnar.
Vinsældir metanbíla á Íslandi hafa aukist mikið á undanförnum árum en Vélamiðstöðin breytti fyrsta bílnum í metanbíl árið
2006.
Þrjár nýjar metanstöðvar á
innan við ári í Reykjavík
Í júní verður búið að opna þrjár metanáfyllingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu á einu ári. Þjón-
usta við eigendur metanbíla er því tryggð næstu árin. Metanorka hannar metanáfyllingarstöðvar
fyrir olíufélögin og á stefnuskránni hjá fyrirtækinu er að opna framleiðslustöð fyrir metan í Hval-
fjarðarsveit þar sem notast verður við úrgang frá sveitabæjum, dýrabúum og sláturhúsum.
F yrirtækið Metanorka hefur verið leiðandi í þróun á notkun metans hér á landi. Olís opnaði metaná-
fyllingarstöð í Álfabakka í júní í fyrra
og sá Metanorka um hönnun stöðvar-
innar og val á búnaði. Að sögn Sigurðar
Ástgeirssonar, tæknistjóra Metanorku,
hefur fyrirtækið einnig unnið að nýrri
metanstöð Olís sem opnuð verður í Álf-
heimum á næstu dögum. „Við vinnum
einnig með Skeljungi að undirbúningi á
opnun metanáfyllingarstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu í byrjun sumars,“ segir
hann.
Vélamiðstöðin er systurfyrirtæki
Metanorku og dótturfyrirtæki Íslenska
Gámafélagsins. Þar var fyrsta bílnum
á Íslandi breytt í metanbíl árið 2006.
Síðan hafa vinsældir metanbíla aukist
mikið. „Það var ekki mikill áhugi á met-
anbílum í góðærinu. Svo kom hrunið og
þá jókst eftirspurnin því mikill sparnað-
ur felst í því að aka metanbíl, fyrir utan
hversu miklu betra það er fyrir um-
hverfið. Við reyndumst því alveg óvart
góðir spámenn,“ segir Sigurður.
Þessa dagana er í undirbúningi hjá
Metanorku að opna framleiðslustöð
fyrir metangas á Melum í Hvalfjarðar-
sveit. Ætlunin er að nýta lífrænan
úrgang frá sveitabæjum, dýrabúum og
sláturhúsum. „Við leggjum leiðslur frá
búunum og til okkar til að takmarka
akstur, tengdan framleiðslunni,“ segir
Sigurður. Einnig er verið að skoða þann
möguleika að nota lífrænan úrgang frá
heimilum og fyrirtækjum til framleiðsl-
unnar. Sigurður segir metanið verða
selt á svæðinu en verði eitthvað afgangs
verður það selt á höfuðborgarsvæðinu.
Allt eldsneytið verður nýtt sem öku-
tækjaeldsneyti.
Við framleiðslu á metani er úrgang-
ur settur í lokað rými og gasið sem
myndast notað sem eldsneyti. „Mykjan
sem eftir verður er alveg eðal áburður,“
segir Sigurður.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunum gamur.is, metanorka.is og
metanbill.is.
Sigurður Ástgeirs-
son, tæknistjóri
Metanorku.
Olís tekur fleiri
græn skref
U mhverfisvernd er höfð að leiðarljósi í allri starf-semi Olís. Frá ársbyrjun
2013 hefur Olís blandað alla sína
dísilolíu með VLO eða vetnis-
meðhöndlaðri lífrænni olíu. Í júní
í fyrra opnaði Olís fyrstu metanaf-
greiðslustöð sína í Mjódd og á
næstu dögum verður önnur opnuð
í Álfheimum. Að sögn Jóns Hall-
dórssonar, framkvæmdastjóra hjá
Olís, hefur fyrirtækið unnið eftir
metnaðarfullri umhverfisstefnu
frá árinu 1996. „Umhverfisstefnan
snertir öll svið starfseminnar,
hvort sem það er endurnýting
umbúða, vöruþróun eða mann-
virkjagerð. Við viljum stuðla að
því að hver kynslóð skili landinu
og auðlindum þess í betra horfi til
þeirrar næstu,“ segir hann.
Vinsældir metanbíla hér á landi
hafa farið vaxandi á undanförnum
árum og eru þeir nú á annað
þúsund. Olís tekur virkan þátt í
þróuninni með opnun metanáfyll-
ingarstöðva, eins og fyrr segir,
í Mjódd og Álfheimum. Nú í vor
opnar Olís svo metanáfyllingar-
stöð á Akureyri í samstarfi við
Norðurorku. Að sögn Jóns er met-
anið framleitt hjá Sorpu á Álfsnesi
úr hauggasi sem verður til úr líf-
rænum úrgangi. „Metan er mun
umhverfisvænna en annað elds-
neyti þar sem mengun er minni
og hávaði frá metanknúnum
bifreiðum sömuleiðis.“
Um síðustu áramót tóku gildi
ný lög um endurnýjanlegt elds-
neyti í samgöngum á Íslandi sem
kveða á um að olíufélögin tryggi
að ákveðið hlutfall eldsneytis sé
af endurnýjanlegum uppruna. Í
byrjun árs 2013 hóf Olís að blanda
alla sína dísilolíu með VLO eða
vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu
og var því fyrst íslenskra olíu-
fyrirtækja til að uppfylla nýju
reglurnar. Með íblöndun VLO í
dísilolíu dregur úr losun kol-
tvísýrings og gróðurhúsaloft-
tegunda. Lífræna olían sem Olís
notar er frá finnska fyrirtækinu
Neste Oil. Jón segir hana virka
eins vel og hver önnur dísilolía
en menga minna. Þá sé hún laus
við þau vandamál sem fylgt hafa
endurnýjanlegum orkugjöfum,
eins og til dæmis botnfall.
Metanbílar á Íslandi eru nú á annað þúsund og fer fjölgandi. Olís tekur virkan
þátt í þróuninni og opnaði metanáfyllingarstöð í Mjódd í fyrra. Á næstu dögum
verður svo önnur opnuð í Álfheimum.