Fréttatíminn - 11.04.2014, Blaðsíða 54
54 grænn lífsstíll Helgin 11.-13. apríl 2014
Endurvinnsla vitundarvakning hEfur átt sér stað í Endurvinnslumálum
Þriðjungur
borgarbúa forðast
miklar umbúðir
Tæpur þriðjungur íbúa á höfuðborgarsvæðinu forðast vörur í fyrirferðarmiklum
umbúðum og mun fleiri geta hugsað sér að gera slíkt. Mikil vitundarvakning hefur
átt sér stað í samfélaginu að undanförnu þegar kemur að endurvinnslu og yfir-
gnæfandi meirihluti borgarbúa flokkar dagblöð og pappírsumbúðir. Vikulega eru
aðeins 8-10 gráar tunnur skildar eftir því þær innihalda of mikinn pappír.
27% íbúa höfuðborgar-
svæðisins forðast vörur
í fyrirferðarmiklum
umbúðum og 40% íbúa
geta vel hugsað sér að
forðast slíkar vörur
þó þeir geri það ekki í
dag. Þetta kemur fram
í niðurstöðum nýrrar
viðhorfskönnunar sem
Capacent gerði fyrir
Reykjavíkurborg í mars
og apríl. Mikil vitundar-
vakning hefur orðið í
samfélaginu að undan-
förnu þar sem fólk gerir
sér enn betur grein
fyrir því hversu mikið
af fyrirferðarmiklum
umbúðum eru hrein-
lega óþarfi .„Þetta eru
frábærar niðurstöður og
sýna að fólki er farið að blöskra umbúða-
flæmið,“ segir Margrét Gauja Magnús-
dóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði, sem stofnaði Facebook-síðuna
„Bylting gegn umbúðum“ í lok mars en
um 9 þúsund manns eru skráðir á síðuna,
sem er ætlað að vekja umræðu um óþarfa
umbúðir og getur fólk þar sent inn myndir
af umbúðum.
Samkvæmt niðurstöðum könnunar
Capacent flokkar yfirgnæfandi meirihluti
íbúa á höfuðborgarsvæðinu pappír, dag-
blöð, bylgjupappa og pappírsumbúðir og
því ekki að undra að þeir velti fyrir sér
umfangi umbúða, hvort sem þær eru úr
pappír eða plasti.
Frá október síðastliðnum hefur verið
óheimilt að henda pappír í gráar tunnur
fyrir almennt sorp en samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg gerist það 8-10
sinnum í viku að sorphirðumenn þurfa að
skilja eftir gráar tunnur undir blandaðan
úrgang því pappírinn hefur ekki verið
flokkaður frá. „Lang flestir
íbúar flokka pappírinn frá
og skila til endurvinnslu,“
segir Eygerður Margr-
étardóttir, deildarstjóri
umhverfis- og úrgangs-
stjórnunar hjá Reykjavík-
urborg, en íbúar hafa val
um hvort þeir skila pappír
í bláa tunnu, á grenndar-
eða endurvinnslustöð, eða
fá sér endurvinnslutunnu
frá einkafyrirtækjum.
Eygerður segir að í
dag séu um 11.700 bláar
tunnur í Reykjavík en
til samanburðar eru
gráu tunnurnar tæplega
37.500. Til fjölda ára hefur
verið óheimilt að setja
ýmsa flokka úrgangs í
gráu tunnurnar, svo sem
skilagjaldsumbúðir, garðaúrgang, jarðveg,
spilliefni og brotamálma. Að sögn Eygerð-
ar er verklag við eftirlit það sama og áður.
„Ekki er gramsað í tunnunum en ef aug-
ljóst er að íbúar eru ekki að flokka pappír
frá blandaða úrganginum verður gráa
tunnan ekki losuð og skilinn eftir miði
sem segir til um það ásamt leiðbeningum.
Mottó Reykjavíkurborgar er: allir flokka,
pappír er ekki rusl og íbúar hafa val um
þær leiðir sem henta þeim best til að koma
endurvinnsluefnum til skila. Ef rangt er
flokkað í gráu tunnuna, það er ef í henni
er pappír og pappi, skilagjaldsumbúðir,
garðaúrgangur, jarðvegur eða spilliefni,
er hún ekki losuð. Séu nokkrar tunnur við
hús eru eingöngu þær sem rangt er flokk-
að í skildar eftir. Íbúar verða að flokka
þessi efni úr tunnunni áður en hægt er að
losa hana,“ segir Eygerður.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hlutfall sem
flokkar alltaf
eða oftast
Íbúar
reykjavÍkur
Dagblöð, tíMarit og
skrifstofupappír
96%
bylgjupappi
93%
pappírsuMbúðir
86%
Samkvæmt könnun
Capacent fyrir
Reykjavíkurborg
Ef skilja þarf gráa
tunnu eftir vegna
rangrar flokkunar
þurfa íbúar að losa
endurvinnanlegan
úrgang úr tunn-
unni og bíða næstu
losunar. Þrjár leiðir
eru í boði ef losa þarf
tunnu fyrr.
1. Hafa samband við
reykjavíkurborg og
óska eftir aukalosun
sem kostar 3.480
krónur fyrir eina
tunnu og 480
krónur til hverja
tunnu til viðbótar.
2. Nálgast merkta
poka sem hægt er
að losa úrganginn
úr tunnunni.
pokarnir eru
síðan skildir eftir
hjá tunnunum og
verða fjarlægðir
við næstu losun.
Þeir fást á næstu
N1 stöð í reykjavík
eða í Þjónustuveri
reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14.
3. fara með úrganginn
úr tunnunni á næstu
endurvinnslustöð
sem eru 6 á höfuð-
borgarsvæðinu.
Margrét stofnaði „bylting
gegn umbúðum“ eftir
að henni ofbauð þessar
umbúðir um ostaslaufu í
Krónunni. Ljósmynd/Bylting
gegn umbúðum
íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru mjög iðnir við endurvinnslu á pappír og vikulega eru aðeins
8-10 gráar tunnur skildar eftir því þær innihalda pappír.
freyju rísegg með tíu mismunandi
gerðum af umbúðum. Ljósmynd/Bylting
gegn umbúðum
Við tökum vel á móti þér
GERÐU
ÞINN EIGIN
GJAFALISTA
Við aðstoðum við að setja saman
gjafalista við öll tækifæri.
Mikið úrval góðra gjafa í
öllum verðflokkum.
Plomo o Plata
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Mikið úrval - Vönduð vinna
legsteinar og fylgihlutir
10-50% afsláttur
Steinsmiðjan Mosaik
TILBOÐSDAGAR
edalgardar.is
• Hellulagnir
• Trjáklippingar
• Jarðvegsskipti • Smágröfuþjónusta
• Vörubíll með
krabba
Einar • 698 7258
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?