Fréttatíminn - 11.04.2014, Page 56
56 fjölskyldan Helgin 11.-13. apríl 2014
Þorum að hlusta á gagnrýni og hugsa út fyrir „Kerfið“
M ikið eruð þið, lesendur pistlanna minna, einstaklega skemmtilegar, uppörvandi og dásamlegar mannverur. Viðbrögð ykkar við orðum mínum um gröfustjór-ann eða atvinnulausa mannfræðinginn voru einsdæmi í skrifum mínum þar sem
„læk“ og „deilingar“ voru taldar í mörgum þúsundum og fjöldi fólks hafði samband við
mig í kjölfarið. Sem betur fer skilduð þið, greindu lesendur, líkingamálið og enginn hefur
enn talið að ég hafi ofgöfgað starf gröfustjórans eða niðurlægt mannfræðinga enda ekkert
fjarri mér. Bóknám sem og frjálst val um háskólanám er undursamlegur grundvallarréttur í
samfélagi okkar – en ég var og er að berjast fyrir frelsi hinna sem hentar aðrar leiðir en eru
barin niður ár eftir ár þar til námsáhugi þeirra og sjálfstraust er brotið. „Kerfið“ er ekki að
hlúa að og rækta annan áhuga og aðra getu en bóknámshæfni og þar af leiðandi tapa margir
unglingnum sínum og samfélagið verður af hæfileikum sem enginn man lengur að
hafi verið fyrir hendi í bjartsýni barnsins sem tölti af stað fyrsta skóladaginn með
skólatöskuna á bakinu.
Miðstýring, einsleitni og skoðanaeinveldi
Þessi viðbrögð, kæru pistlalesendur mínir, gáfu mér kjark til að rekja boltann áfram
og tala upphátt og á mannamáli um stöðu barnanna okkar og unglinganna í „Kerfi“
skólanna. „Kerfi“ leikskólans er ungt með tiltölulega opna námskrá og mesta frelsið
bæði faglega og rekstrarlega. Þar ríkir enda mesta fjölbreytnin í skólastefnum og
flestir finna eitthvað við hæfi síns barns. Svo kemur „Kerfi“ grunnskólans sem
samanstendur af 10 ára skólaskyldu sem er dásamlegt þegar allt gengur vel og
þannig er það auðvitað í meirihluta tilvika en því miður alls ekki öllum. Þar er kenn-
urum gert að ná sama árangri með svipuðum aðferðum og keyra alla gegnum sama
námsefni. „Kerfi“ þar sem sömu stofnanir mennta kennara ár eftir ár með mið-
stýrðu kennivaldi eða skoðaðaeinveldi í skólamálum. Nýir háskólar fá ekki leyfi til
að mennta kennara með þeirri undantekningu að landsbyggðarpólitíkin gaf Háskól-
anum á Akureyri líka aðgengi að kennivaldi í skólamálum.
Gleymum ekki ráðuneyti menntamála sem leggur fram einsleita og miðstýrða
námskrá sem allt „Kerfið“ á að fara eftir – líka sjálfstætt starfandi skólarnir sem
lögðu af stað með nýjar hugsjónir og vildu skapa nýjan valkost. Slíkir skólar fá víða erlendis
svigrúm frá miðstýrðu námskránni en hér á landi skulu allir kenna allt samkvæmt „Kerf-
inu“. Möguleikar nýrra skóla til að hefja starf eru að auki afar takmarkaðir, það þekki ég
af eigin raun. Stofnun nýs grunnskóla er hvorki spretthlaup né boðhlaup, ekki einu sinni
langhlaup. Það er hindrunarhlaup í maraþoni. Þess vegna eru nær 99% allra grunnskóla-
barna innan opinbera kerfisins þar sem embættismenn og stjórnmálamenn stjórna „Kerf-
inu“ innan hvers sveitarfélags samkvæmt „Kerfi“ opinberrar stjórnsýslu með opinberum
starfsmönnum innan skólanna. Hinu opinbera „Kerfi“ er þannig talið best treystandi fyrir
menntun, mun betur en öðrum sem vilja taka þátt í sköpun menntatilboða og því er meira að
segja þvælt inn í „vinstri“ og „hægri“ pólitík, eins óendanlega skaðlegt eins og það er. Loks
er „Kerfið“ tryggilega með alla kennara í einum hópi, ekki til að tryggja þeim réttlát laun því
það hefur mistekist heldur til að tryggja samstöðu um einsleita stefnu Loks koma foreldrar
og fjölskyldur barna sem líma „Kerfið“ saman með síðustu aldar kröfum um að einmitt
barnið mitt fái 9 og 10 á prófum og ef ekki, er það kennaranum eða skólanum að kenna. Svo
pressa sömu foreldrar á að ungmennið klári stúdentinn á „réttum“ tíma og svo beint inn í
„Kerfi“ háskólanna.
Vörn fyrir „Kerfi“ fortíðar stöðvar nýjungar
Allt þetta, elskulegu pistlalesendur, og miklu meira setur okkur á einstakan stað hvað
varðar miðstýringu, einsleitni og skoðanaeinveldi á menntunarsviðinu, það sem ég leyfi mér
að nefna menntaeinokun. Einokun þar sem allir spila vörn. Námsskráin og ráðuneytið sem
miðstýra umfram alla skynsemi, menntastofnanir fyrir kennara sem eru of fáar og of ein-
sleitar með sama fólki ár eftir ár, sveitarfélögin sem vilja ekki sleppa taki af „sínum“ skólum
og forðast samkeppni, atvinnulíf sem gerir kröfur en leggur ekki af mörkum, kennarasam-
band sem er í vinnu við að viðhalda kennslufyrirkomulagi fyrri tíma, skólar og kennarar í
streitu að uppfylla óuppfyllanlegar og þversagnakenndar kröfur, foreldrar og fjölskyldur
sem meta börnin sín eftir löngu úreltum bóknámskvörðum og ýta þeim í gamla farið.
Og að lokum, elsku foreldrar og skólafólk; kennarar, stjórnmálamenn, embættismenn og
allir hinir, ekki hlaupa í vörn. Þetta er gagnrýni á hið óumbreytanlega „Kerfi“ sem ég deili
með fjölmörgum – ekki árás á foreldra sem elska börnin sín, ekki árás á frumlega kennara
og skóla sem alltaf sinna nýbreytni eða allt hitt frábæra fólkið sem glímir hvert á sínum stað.
Málið er bara þetta. Þorum að hlusta á gagnrýni og hugsa út fyrir „Kerfið“ jafnvel þótt
að við vinnum inni í því eða fyrir það. Þorum að koma fram með skoðanir á menntamálum,
taka frumkvæði, styðja nýjar hugmyndir og skapa nýja uppeldis- og menntakosti öll saman,
skólafólk, stjórnmálafólk, atvinnulíf og allt annað áhugafólk – allir mega og eiga að hafa
skoðanir. Leyfum þúsund ólíkum blómum að blómstra hvar sem er án þess að kerfisbinda
hvert skref. Sleppum tökum á skóla „Kerfi“ fortíðar, opnum fyrir nútíðinni og leyfum okkur
alla vega að gjóa augum til framtíðar.
Menntaeinokunin
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heiMur barna
LAGERSALAN | KAUPTÚNI 3 - GARÐABÆ (GEGNT IKEA) | SÍMI 861 7541
NÝJAR VÖRUR
Á FRÁBÆRU VERÐI
OPIÐ
MÁNUDAGA TIL LAUGARDAGA KL. 11-18
SUNNUDAGA KL. 13-18
SKRIFBORÐ
29.900 KR.
TUNGUSÓFI VERÐ
59.900 KR.
BÓKAHILLA VERÐ
24.900 KR.
SKRIFBORÐSSTÓLL VERÐ
7.900 KR.
BORÐ OG 4 STÓLAR
29.900 KR.
BORÐSTOFUSTÓLL VERÐ
8.900 KR.
STANDLAMPI VERÐ
29.900 KR.
SVEFNSÓFI VERÐ
19.900 KR.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
SA
6
82
19
0
3/
14
Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu á Ísbúa árið 1989.
Fyrirmyndin var hinn vinsæli Danbo-ostur frá Danmörku,
bragðmikill ostur með flauelsmjúka áferð og margslungið
bragð sem er í senn grösugt og kjötkennt með ávaxtasætu
í endann. Ísbúi parast jafn vel með sætu og söltu meðlæti
og er virkilega skemmtilegur eftir matinn.
ÍSBÚI
HERRALEGUR
www.odalsostar.is