Fréttatíminn - 11.04.2014, Qupperneq 60
60 matur & vín Helgin 11.-13. apríl 2014
M ér finnst páskarnir yndisleg hátíð, margir frídagar til að njóta með fjölskyldunni og vor í lofti. Það er heldur ekki annað hægt
en að líka vel við hátíð þar sem eina kvöðin
er að borða súkkulaði! Páskarnir eru afar vel
til þess fallnir að gera vel við sig í mat með
vinum og vandamönnum. Fimm samfelldir
hátíðardagar gefa nefnilega svo góð tækifæri
til þess að halda matar- og kaffiboð fyrir sína
nánustu,“ segir á Eldhússögum.
Dröfn reiðir hér fram girnilegar kræsingar
sem tilvalið er að njóta um páskana. „Brúnku-
ostakakan með Dumle hnetukremi hefur sleg-
ið í gegn hjá öllum þeim sem hafa smakkað
hana hjá mér. Þessi blanda af brúnku og osta-
köku með ómótstæðilegu karamellu- og súkk-
ulaði kremi gerðu úr Dumle go nuts finnst mér
vera fullkominn endir á góðu matarboði.“
Dröfn er líka hæstánægð með Dumle go
nuts páskagottið. „Hvað get ég sagt um stökka
Dumle go nuts páskagottið annað en að páska-
eggin þurfa að vara sig! Þetta bitastæða páska-
gott ætti eiginlega að koma með viðvörun
því það er ómögulegt að hemja sig vitandi af
þessu hnossgæti í ísskápnum.“
Þá mælir Dröfn eindregið með mareng-
stertu. „Fazermint marengstertan er hnall-
þóra sem sómir sér jafnvel í kaffiboði, stór-
veislu eða sem sérlega kræsilegur eftirréttur.
Fazermint piparmyntusúkkulaðið passar
fullkomlega í tertuna og gerir hvern bita að
lostæti.“
K Y N N I N G
Gómsætar
uppskriftir
fyrir páskana
Dröfn Vilhjálmsdóttir heldur úti vinsæla matarblogginu Eldhússögur, www.eldhussogur.
com. Hún deilir hér með okkur gómsætum uppskriftum sem henta vel fyrir páskana.
Fazermint
marengsterta
Marengs:
• 2 dl sykur
• 1 dl púðursykur
• 4 eggjahvítur
• 3 bollar Rice Krispies
Ofn hitaður í 120 gráður
við blástur (ef baka á báða
botnana samtímis) eða 130
gráður við undir- og yfirhita.
Eggjahvítur, púðursykur
og sykur eru þeytt þar til
marengsinn er orðinn stífur.
Þá er Rice Krispies bætt
varlega út í marengsinn
með sleikju. Diskur eða
kökuform sem er um það bil
23 cm. í þvermál er lagt á
bökunarpappír og strikaður
hringur eftir disknum. Þetta
er gert tvisvar. Marengsinum
er skipt í tvennt settur á sitt
hvorn hringinn. Því næst er
slétt jafnt úr marengsinum
innan og hann hringsins
með sleikju eða spaða. Þá er
marengsinn bakaður í 120°C
(blástur) í heitum ofni í um
það bil 60 mínútur. Best er
að láta marengsinn kólna í
ofninum.
Rjómafylling:
• 5 dl rjómi
• 250 g fersk jarðarber,
skorin í bita
• ca. 200 g fersk bláber
• 8 molar Fazermint
(ca. 60 g), saxaðir smátt
Rjóminn er þeyttur og
berjunum ásamt Fazermint
molunum er blandað út í
rjómann. Rjómablandan er
svo sett á milli marengs-
botnanna þegar þeir eru
orðnir kaldir.
Fazermint krem:
• 4 eggjarauður
• 4 msk f lórsykur
• 12 molar Fazermint (ca. 90 g)
• 100 g Toms extra súkkul-
aði 70%
Eggjarauður og flórsykur
þeytt vel saman. Toms extra
súkkulaðið er brotið niður í
skál ásamt Fazermint mol-
unum og brætt yfir vatns-
baði. Ef súkkulaðiblandan
er of þykk er hægt að bæta
örlítilli mjólk eða rjóma út
í. Eggjarauðu- og flórsykur-
blöndunni er svo blandað út
í súkkulaðið. Kreminu er því
næst dreift yfir marengs-
tertuna. Skreytt með berjum,
t.d. jarðarberjum, bláberjum,
hindberjum, rifsberjum
og blæjuberjum. Tertan er
geymd í ísskáp og er góð, ef
ekki betri, daginn eftir.
Stökkt Dumle go
nuts páskagott
• 1 poki Dumle go nuts (175 g)
• 150 g súkkulaðihjúpað
lakkrískurl
• 100 g Toms extra súkkulaði
70%
• 200 g suðusúkkulaði
• 150 g pistasíur frá Ültje
• 2 dl Rice Krispies
Dumle bitarnir, 70% súkkul-
aðið og suðusúkkulaðið er sett
í skál og brætt yfir vatnsbaði.
Því næst er pistasíum, Rice
Krispies og súkkulaðihúðaða
lakkrískurlinu bætt út og öllu
blandað vel saman. Blöndunni
hellt í form klætt bökunar-
pappír, um það bil 20 x 20 cm,
og sett í ísskáp í minnst tvo
klukkutíma. Skorið í hæfilega
stóra bita.
Brúnku-ostakaka
með Dumle
karamellukremi
Rjómaostablanda
• 300 gr Philadelphia ostur
• ¾ dl sykur
• 1 tsk vanillusykur frá Tørsleffs
Philadelphia ostur, sykur og vanillu-
sykur er þeytt saman þar til blandan
verður slétt. Blandan er geymd á
meðan brúnkudeigið er útbúið.
Brúnku deig:
• 2 egg
• 100 gr smjör
• 2 dl sykur
• 3 msk kakó frá Cadbury
• 2 dl hveiti
• ½ tsk lyftiduft
• 1 dl pistasíur frá Ültje, saxaðar gróft
Bökunarofn hitaður í 180 gráður. Egg
og sykur þeytt þar til blandan verður
létt og ljós. Á meðan er smjör og
kakó sett í pott og hitað við vægan
hita þar til smjörið er bráðnað og
hefur blandast saman við kakóið.
Því næst er smjörblöndunni bætt út
í eggjablönduna. Að lokum er hveiti,
lyftidufti og grófsöxuðum pistasíum
blandað varlega saman við deigið með
sleikju. Bökunarform (22 cm) er smurt
að innan, helmingnum af brúnkudeig-
inu er hellt í formið og slétt úr því. Því
næst er rjómaostablöndunni dreift
varlega yfir brúnkudeigið. Að lokum
er restinni af brúnkudeiginu dreift yfir
rjómaostablönduna. Bakað neðarlega
í ofni við 180 gráður í 30-40 mínútur.
Kakan á að vera vel blaut í miðjunni
þegar hún kemur úr ofninum.
Kakan er látin kólna í forminu.
Dumle karamellu-hnetukrem
• 1 poki Dumle go nuts (175 g)
• 1-2 msk rjómi
Dumle go nuts bitarnir (gott að geyma
um það bil þrjá bita til að skreyta
með) eru settir í pott og bræddir við
vægan hita. Rjóma er bætt út í þar til
blandan hefur náð passlegri þykkt.
Þegar kakan er orðin köld er hún tekin
úr bökunarforminu og Dumle hnetu
kreminu dreift yfir kökuna. Nokkrir
Dumle bitar eru saxaðir gróft og stráð
yfir kremið. Best er að geyma kökuna
í kæli yfir nóttu áður en hún er borin
fram.
Dröfn Vilhjálmsdóttir,
matarbloggari.