Fréttatíminn - 11.04.2014, Síða 70
70 heilsa Helgin 11.-13. apríl 2014
Rekstrarvörur til fjáröflunar
– safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV
FÓ
TB
O
LT
I
BA
DM
IN
TO
N
SU
N
D
HA
N
DB
O
LT
I
KÖ
RF
UB
O
LT
I
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
1113
Er æfingaferð,
keppnisferð,
útskriftarferð eða
önnur kostnaðarsöm
verkefni framundan?
Síðustu 30 árin hafa félagar í
íþróttafélögum, kórum og öðrum
félagasamtökum aflað sér fjár
á einfaldan hátt með sölu á WC
pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og
öðrum fjáröflunarvörum frá RV.
– Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
85
33
0
4/
14
www.lyfja.is
Fyrir
þig
í Lyfju
Læg a
verð í
LyfjuCorega
Corega vörur fyrir gervigóma.
Njóttu matarins án óþæginda.
20%
afsláttur
Gildir út apríl
Eftirtalin Apótek og heilsubudin.is selja Proactiv® Solution
AkureyrArApótek, Kaupangi - LyfjAver, Suðurlandsbraut 22
borgArApótek, Borgartúni 28 - gArðsApótek, Sogavegi 108
urðArApótek, Grafarholti - ÁrbæjArApótek, Hraunbæ 115
Apótek gArðAbæjAr, Litlatúni 3 - reykjAvíkurApótek,
Seljavegi 2, Apótek HAfnArfjArðAr, Tjarnarvöllum 11
Heildsölubirgðir, Konkord ehf. S. 568 9999, heilsubudin@heilsubudin.is
Í proactiv® solution eru efni sem hreinsa húð þína
og eyða bólum. Með daglegri notkun koma efnin í
veg fyrir að nýjar bólur myndist. Við lofum því!
Æ fleiri hljólreiðamenn sjást á göt-
unum – ekki síst núna þegar farið
er að vora. Hjólreiðar eru góðar
fyrir umhverfið – en þær hafa ekki
síður jákvæð áhrif á hjólreiða-
manninn sjálfan því hjólreiðar eru
ein áhrifamesta líkamsræktin sem
hægt er að velja sér. Hér eru sjö
ástæður fyrir því að stökkva nú á
bak hjólinu og leggja bílnum.
Sjö ástæður fyrir því að
byrja að hjóla
1
2
3
5
6
7
4
Það brennir hitaeiningum
Þú getur gert það í leiðinni
Það styrkir marga
vöðvahópa
Það verndar
liðina
Allir vöðvar
styrkjast
Það styrkir hjarta
og æðakerfi
Það eykur orku
og úthald
Kona sem vegur um 65 kíló og hjólar á 20
km hraða á klukkustund brennir tæplega
500 hitaeiningum á klukkustund.
Um 60% af öllum ferðum innan
höfuðborgarsvæðisins eru styttri
en 3 km. Fjórðungur allra ekinna
ferða eru styttri en 1 km og yfir
helmingur styttri en 2 km. Hjól-
reiðamaður í meðalformi getur
farið allt að 5-6 km vegalengd á
15-20 mínútum. Þetta er því tals-
vert stórt svæði, en hringur með 5
km. radíus dekkar mest allt svæði
Reykjavíkur innan Elliðaáa, Sel-
tjarnarness og eldri hluta Kópa-
vogs. Með því að hjóla tvisvar í
tuttugu mínútur á dag brennirðu
3000 hitaeiningum á viku – sem
samsvarar hálfu kílói af fitu.
Hjólreiðafólk er þekkt fyrir að
hafa sterka, flotta fótleggi enda
eru það lærvöðvarnir, kálf-
arnir og rassvöðvarnir sem knýja
hjólið áfram. Það sem færri vita
er að efri hluti líkamans og hand-
leggsvöðvarnir styrkjast einnig
við að stýra hjólinu og halda
jafnvægi.
Finndu þér brekku sem tekur tíu mínútur að
hjóla upp. Hjólaðu upp tvisvar eða þrisvar og
hjólaðu standandi upp helming brekkunnar
í hvert skipti. Þannig styrkirðu þríhöfðann
(aftan á upphandleggnum), og maga- og
bakvöðva.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta
dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og
annarsstaðar í heiminum og látast nærri
jafnmargar konur og karlar vegna þessara
sjúkdóma. Í einni rannsókn voru konur
látnar hjóla á meðalhraða eða mesta hraða
þrisvar í viku í hálftíma í senn. Eftir ár
hafði blóðþrýstingur þeirra lækkað og
kólesteról í blóði sömuleiðis auk þess sem
úthald þeirra hafi aukist til muna.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að hjólreiðar auka úthald og orku um
20 prósent og dregur úr þreytueinkennum um 65 prósent. Hjólreiðar
auka dópamínframleiðslu í heilanum sem dregur úr þreytueinkenn-
um. Það er ekki nauðsynlegt að hjóla á fullum hraða því rannsóknir
sýna fram á að fólk sem hjólar hægt eða á miðlungshraða þrisvar á
viku fann mestan mun á því hvað það varð orkumeira.
Hjólreiðar valda miklu minna álagi á hné,
ökkla og hrygg en hlaup eða ganga. Með því
að passa upp á rétta stöðu á hjólinu er hægt
að draga úr álagseinkennum á hné. Hnéð á að
vera örlítið beygt, um það bil 25 gráður, þegar
pedallinn er í lægstu stöðu. Hækkaðu eða
lækkaðu hnakkinn ef hnéð er of mikið beygt
eða of beint.