Fréttatíminn - 11.04.2014, Síða 76
Stórmyndin The Secret Life of
Walter Mitty kemur í SkjáBíó í dag,
föstudaginn 11. apríl. Eins og þekkt
er var stór hluti myndarinnar tekinn
hér á landi auk þess sem íslensku
leikararnir Ólafur Darri, Gunnar
Helgason, Ari Matthíasson og Þór-
hallur Sigurðsson sýna Hollywood-
takta. Náttúrufegurðin í myndinni
hefur hlotið verðskuldaða athygli og
þess má geta að ferða-
skrifstofan Iceland Travel
býður nú upp á sérstakar Walter
Mitty ferðir, þar sem komið er við
á slóðum söguhetjunnar á Íslandi.
Það eru þau Ben Stiller, Kristin Wiig
og Sean Penn sem fara með helstu
hlutverk myndarinnar en Stiller er
um þessar mundir staddur í London
við tökur á Night at the Museum 3.
Það skal engan undra að The
Biggest Loser Ísland trónir á
toppi vinsældalista síðustu viku
á SkjáEinum, enda hafa íslensku
hetjurnar okkar slegið rækilega
í gegn. Í öðru sæti listans er
það gæðasmellurinn CSI: Crime
Scene Investigation þar sem Ted
Danson fer fyrir harðsvíruðum
hópi rannsóknardeildar lög-
reglunnar í Las Vegas. Listinn í
heild sinni lítur svona út:
Stjörnufréttir eru í boði SkjáSeinS
Þ essum rétti fylgja fal-legar minningar en móðir Ragnars Freys byrjaði að elda hann
þegar þau bjuggu í Kanada
á miðjum tíunda áratugnum.
„Þessi uppskrift er fengin frá
Julee Russo og Sheilu Lukins
sem gáfu út Silver Palate Co-
okbook sem kom út árið 1982
og er sérstaklega eiguleg bók.
Fyrsta útgáfa var einungis
myndskreytt með teikningum
en tuttugu og fimm ára afmæl-
isútgáfan er skreytt fallega
með ljósmyndum. Þessi réttur
er margslunginn og bragðið
er í mörgum lögum ef svo má
að orði komast. Við það að
marínera hann í sólarhring
þrengir viðbótarhráefnið sér
inn í kjúklinginn og tryggir
að hann verði einstaklega
meyr og safaríkur. Að sáldra
púðursykri yfir hann áður en
hann fer í ofninn gefur einnig
dásamlega aukavídd í réttinn.
Þetta er sannkölluð veislumál-
tíð sem maður býður bestu
vinum sínum í til að þakka
þeim fyrir eða fólki sem mann
langar til að kynnast betur.
Hvað opnar hjartað betur en
varlega elduð ástrík máltíð?“
Læknirinn í eldhúsinu hefur
göngu sína á SkjáEinum á skír-
dag klukkan 20.
Kolbeinn gæti orðið meistari
Topp tíu á SkjáEinum!
íslensk náttúra og Hollywood
Marbella-kjúklingur frá mömmu
Hráefni:
2 kjúklingar – hlutaðir niður í
átta bita hvor
150 ml jómfrúarolía
100 ml hvítvínsedik
25 ml balsamedik
1 bolli góðar grænar ólífur,
skornar í tvennt
1 bolli góðar kalamata-ólífur,
skornar í tvennt
200 g döðlur, gróft saxaðar og
200 g gróft saxaðar sveskjur
heill saxaður hvítlaukur, salt
og pipar
2 msk óreganó og 6-8
oreganólauf
handfylli fersk steinselja
250 ml hvítvín
4 msk muscovado-sykur (eða
púðursykur)
handfylli kóríander
Aðferð:
1. Hlutið kjúklinginn í átta
bita og setjið í skál.
2. Hrærið edikinu,
ólífunum, döðlunum,
sveskjunum, krydd-
inu, hvítlauknum og
steinseljunni saman við
olíuna. Saltið og piprið.
3. Hellið marineringunni
yfir kjúklinginn, hyljið
með plasti og marínerið í
ísskáp í sólarhring.
4. Raðið kjúklingabitunum
í eldfast mót og raðið
„gumsinu“ í kringum
bitana þannig að skinnið
standi upp úr. Gætið þess
að hafa bara eitt lag af
bitum í eldfasta mótinu.
5. Stráið sykrinum ofan á
skinnið.
6. Bæta má við 2 hvít-
vínsglösum til að auka
sósumagnið.
7. Bakið við 180 gráður í
þrjú kortér þar til húðin
er gullin og falleg.
8. Fersk kóríanderlauf fara
yfir réttinn og hann svo
borinn fram með hrís-
grjónum og salati.
Spennan verður í hámarki í Hollenska bolt-
anum þegar Ajax og ADO Den Haag mætast á
stærsta íþróttavelli Hollands, Amsterdam Arena,
sunnudaginn 13. apríl klukkan 14.30 í opinni
dagskrá á SkjáSport. Ef lukkan leikur við Kolbein
Sigþórsson og liðsfélaga hans gæti
Ajax mögulega hampað
meistaratitlinum
um helgina svo það
er um að gera að
láta þennan hörku-
spennandi leik ekki
framhjá sér fara.
SkjáSport finnur þú á: Sjón-
varp Símans: Rás30/230
(HD) – Vodafone
Sjónvarp:
Rás28/528(HD)
SkjárKrakkar er ólík annarri sjón-
varpsþjónustu hérlendis að því leyti
að SkjárKrakkar er ekki hefðbundin
sjónvarpsstöð sem sýnir barnaefni í
línulegri dagskrá. Hér er nefnilega um
að ræða áskriftarþjónustu á borð við
Netflix þar sem ekki er tekið sérstakt gjald
fyrir hvern leigðan þátt eða bíómynd, heldur
hafa áskrifendur ótakmarkaðan aðgang að
á þriðja hundrað klukkustundum af vönduðu
talsettu barnaefni þar sem valið er hverju
sinni hvað horfa skuli á. Meðal þess sem í boði
er á SkjárKrakkar er Latibær, Stubbarnir, Skoppa og
Skrítla, Bubbi byggir, Matti morgunn, Múmínálfarnir
og Lína langsokkur svo eitthvað sé nefnt. Bæði er um
að ræða þætti og teiknimyndir í fullri lengd og er nýju
efni bætt við jafnt og þétt.
1. The Biggest Loser Ísland
2. CSI: Crime Scene Investigation
3. The Millers
4. Blue Bloods
5. The Good Wife
6. Svali & Svavar
7. Sean Saves the World
8. Elementary
9. Law & Order
10. America’s Funniest Home Videos.
Alla þættina má nálgast á SkjáFrelsi hvort sem er
í gegnum myndlykla eða á skjarinn.is
1
2 3
Hið íslenska barna Netflix
HÁDEGISTILBOÐ
Miðstærð af bát
12” pizza 2 álegg
Aðeins 999-kr.
Aðeins 999-kr.
salat m/kjúkling / roastbeefLítill bátur eða
Aðeins 699-kr.
& gos/Kristall að eigin vali
Nýbýlavegi 32 S:577 577 3 supersub.is
Markaðstorg á netinu
Vertu með, við erum að búa
til ööugt markaðstorg
á netinu
Notað og nýtt
fermingar
veisluna
Allt fyrir2014
Nóatún býður upp á
úrval af hlaðborðum fyrir
fermingarveisluna!
sjá www.noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
76 stjörnufréttir Helgin 11.-13. apríl 2014