Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.02.2014, Síða 2

Fréttatíminn - 21.02.2014, Síða 2
Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is bakaðar kjúklingabringur Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar með ferskum kryddjurtum og rjómaosti. Gottimatinn.is Balti og Lilja stækka við sig Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur standa í fram- kvæmd- um á húsi sínu við Miðstræti í Reykjavík. Höfuðstöðvar Íslands- banka á einum stað Íslandsbanki hyggst sameina starfsemi höfuðstöðva bankans á einum stað, á Kirkjusandi, en starfsemi höfuðstöðva fer fram á fjórum stöðum í dag. Sameiningin felur í sér stækkun húsnæðis á Kirkjusandi með viðbyggingu við suðurenda bygg- ingarinnar. Stærsta breytingin mun felast í flutningi á Upplýsingatækni- og rekstrar- sviði bankans frá Lynghálsi á Kirkjusand, en á því sviði starfa um 300 manns. „Töluverð hagræðing næst með sam- einingu höfuðstöðvanna á einn stað, bæði með lægri leigukostnaði og lækkun rekstrarkostnaðar vegna upplýsingakerfa, viðhaldi vinnustöðva og rekstri mötu- neyta,“ segir í tilkynningu bankans. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á seinni hluta þessa árs og er áætlað að þær standi yfir í um tvö ár. „Með þessari sameiningu viljum við byggja upp öfluga fjármálamið- stöð á besta stað í borginni,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri. -jh Umsókn kvikmyndaleikstjórans Baltasars Kormáks og Lilju Sigurlínu Pálmadóttur um breytingar á húsi þeirra við Miðstræti 7 í 101 Reykjavík var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Baltasar og Lilja sóttu um leyfi til að byggja kvist á norðurhlið einbýlishússins. Eins og sjá má á myndinni sem tekin var á fimmtudag eru framkvæmdir þegar hafnar. Erindi hjónanna fylgdi umsögn Minjastofnunar Íslands frá því í nóvember á síðasta ári og umsögn Minja- safns Reykjavíkur frá 9. janúar. Í byggingarleyfinu er áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Baltasar og Lilja eru sem kunnugt er búsett að Hofi í Skagafirði.  SkipulagSmál kirkjuráð vill ekki taka við Skuldugri ÞorlákSbúð Hugmyndir hafa einnig verið uppi um að selja Þorláksbúð og er Friðrik Páls- son, eigandi Hótel Rangár, einn þeirra sem hefur sýnt byggingunni áhuga. Tólf milljónir hvíla á Þorláksbúð Þorláksbúðarfélagið, sem stóð að byggingu Þorláksbúðar við Skálholtskirkju, skuldar 12 milljónir. Kirkjuráð vill ekki taka við skuldugri Þorláksbúð. Vígslubiskup í Skálholti segir að Kirkjuráð verði að ganga frá sínum málum. Árni Johnsen segir það kosta um 200 milljónir að flytja eða fjarlægja bygginguna. S tyr hefur staðið um Þorláks-búð, tilgátuhús sem stendur við hlið Skálholtskirkju, allt frá því að hugmyndir um húsið voru kynntar. Nú þegar húsið er tilbúið verður það ekki tekið í notkun fyrr ljóst er hver tekur við skuldum félagsins sem stóð að byggingu þess. Skuldirnar nema 12 milljónum króna samkvæmt upplýsingum formanns þess, Árna Johnsen. Auk Árna sitja í stjórn félagsins Geir Waage, sóknar- prestur í Reykholti, og Egill Hall- grímsson, sóknarprestur í Skálholti. Raddir hafa verið uppi um að flytja eða jafnvel selja húsið. Kristján Valur Ingólfsson, vígslu- biskup í Skálholti, segir ekki vera á dagskrá að taka á móti Þorláksbúð fyrr en Kirkjuráð hafi gengið frá sínum málum. „Á sínum tíma sam- þykkti Kirkjuráð að það myndi ekki taka við Þorláksbúð nema skuld- lausri og kvaðalausri. Þorláksbúðar- félagið ber ákveðna ábyrgð því að það bauðst til þess á sínum tíma að útvega fjárstuðning við bygginguna. Þar að auki hefur heldur ekki verið samið um það hvernig eigi að sjá um viðhald á byggingunni, en hún þarfnast nú þegar viðhalds. Í dag eru skuldir á byggingunni og það eru ýmis mál í óvissu. Til að mynda telur Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar, að það eigi að flytja bygginguna og það kostar auðvitað peninga líka.“ Árni Johnsen segir það kosta um 200 milljónir að flytja eða fjarlægja bygginguna og byggja nýja, og að það komi ekki til greina af hálfu félagsins. Skuldir félagsins segir Árni tilkomnar vegna þess að ekki hafi gefist vinnufriður til að leysa úr málum félagsins. „Við höfum starfað í þessu í sjálfboðavinnu og af áhuga- mennsku en eigum eftir að gera upp ákveðna kostnaðarþætti því við höfum ekki fengið frið til að afla fjár vegna eilífra ásókna frá Eiði Guðna- syni, Vilhjálmi Bjarnasyni, Þorkeli Helgasyni og Jóni Hákoni Magnús- syni. Þessir menn vinna stanslaust í því að gera hlutina tortryggilega. Auðvitað ætluðum við að skila hús- inu til kirkjunnar skuldlausu en það eru bara of margir púkar á fjósbit- anum,“ segir Árni Johnsen. Hugmyndir hafa einnig verið uppi um að selja Þorláksbúð og er Frið- rik Pálsson, eigandi Hótel Rangár, einn þeirra sem hefur sýnt bygging- unni áhuga. Friðrik staðfesti í sam- tali við Fréttatímann að hann hafi lýst áhuga á Þorláksbúð þegar hún var hálfbyggð. „Já, ég hringdi þá í Árna Johnsen og sagði honum að ef til þess kæmi að rífa ætti húsið eða flytja það þá hefði ég áhuga.“ Halla Harðardóttir. halla@frettatiminn.is Árni Johnsen var einn forvígismanna við byggingu Þorláksbúðar í Skálholti. Húsið er tilbúið en hefur ekki verið tekið í notkun. Árni segir of marga púka á fjós- bitanum til að vinnufriður hafi gefist til að klára verkið. Þegar eru 304 ungmenni skráð í borgaralega fermingu Siðmenntar í vor sem jafngildir 7,3% allra ungmenna á ferm- ingaraldri. Töluverð aukning hefur átt sér stað milli ára en í fyrra fermdust 212 borgara- lega hjá Siðmennt og nemur aukningin því 44%. „Líklega eru nokkrar ástæður fyrir auknum vinsældum. Mögulega hefur lögskráning félagsins haft jákvæð áhrif til viðbótar við góðan orðstír fermingar- innar. Mestu skiptir að Jóhann Björnsson, heimspekingur og kennari, hefur byggt upp afar vandað námskeið sem öll ungmennin sækja á 12 vikna tímabili,“ segir Hope Knútsson, stofnandi Siðmenntar og for- maður til fjölda ára. Í vor verða þrjár athafnir í Háskólabíói í Reykjavík, tvær í Salnum í Kópavogi, ein í Hofi á Akureyri og ein á hverjum eftirtaldra staða: Fljótsdalshéraði, Höfn í Hornafirði og Suðurlandi. Bú- ast má við um að 4.000 gestir verði við athafnirnar í ár. Það eru 25 ár síðan boðið var fyrst upp á borgaralega ferm- ingu hér á landi. Sextán ung- menni voru í fyrsta hópnum en þátttakendum hefur fjölgað reglulega síðan. Sérstaklega mikil fjölgun hefur orðið síðan 2010 en þá fermdust 166 ung- menni borgaralega. Á námskeiðunum fyrir borgaralega fermingu er meðal annars fjallað um gagnrýna hugsun, frelsi, ábyrgð, mann- réttindi, samskipti unglinga og fullorðinna, og fordóma.  SamfélagSmál gríðarleg aukning er meðal ungmenna Sem Skráð eru í borgaralega fermingu 44% fleiri skráðir í borgaralega fermingu Hope Knútsson segir ánægjulegt hversu mörg ungmenni sækjast í að fermast borgaralega hjá Siðmennt. Ljósmynd/Hari Borgin semur við ÍR Jón Gnarr borgarstjóri og Hjálmar Sigur- þórsson, formaður Íþróttafélags Reykja- víkur, undirrituðu í vikunni nýjan samning til ársins 2020 en samkvæmt honum mun borgin nú þegar hefja undirbúning að nýjum æfingavelli á ÍR-svæðinu við Mjódd. Frjálsíþróttadeild ÍR, sem er ein sú stærsta í Evrópu, mun áfram reka íþróttahús Selja- skóla og íþróttahús við Austurberg, en félagið hefur haft reksturinn með höndum síðastliðin þrjú ár. Auk þess er ráðgert að endurskipu- lagningu íþróttamann- virkja ÍR í Suður-Mjódd verði lokið fyrir 1. maí 2014 og í að í kjölfarið verði gerður sérstakur samningur um framkvæmdir og fjármögnun á svæðinu. 2 fréttir Helgin 21.-23. febrúar 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.