Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 18
Hann benti mér á
að ég væri á villi-
götum í lífinu og að
ég yrði að kynnast
honum betur.
É
g er komin 22 vikur á
leið. Barnið á að fæðast
24. júní og ég verð
þrítug á árinu. Þetta
verður mjög stórt ár
hjá okkur,“ segir Þorbjörg Mar-
ínósdóttir, betur þekkt sem Tobba
Marínós. Hún á von á stúlkubarni í
sumar með sambýlismanni sínum
Karli Sigurðssyni sem einnig á
sitt gælunafn, Kalli Baggalútur.
Þetta er fyrsta barn þeirra beggja
og mikil eftirvænting ríkir hjá fjöl-
skyldum þeirra þar sem þau bók-
staflega reikna með slagsmálum
um hver fær að passa. „Við erum í
mestu vandræðum því það vilja allir
fá að passa. Ég held að við þurfum
að taka upp eitthvað númerakerfi
eða vera jafnvel með happdrætt-
isstemningu þar sem við drögum
út hver fær að passa í það skiptið,“
segir Kalli sem finnst þau afskap-
lega heppin að eiga við þennan
vanda að etja.
Skrautlegur feluleikur
Við sitjum við borðstofuborðið
á heimili þeirra við Ránargötu, í
rúmgóðri og bjartri íbúð þar sem
vel er pláss fyrir ungbarn þó þau
þurfi að stækka við sig þegar líða
tekur á. Barneignir voru ekki sér-
staklega á dagskránni en þær voru
heldur ekki útilokaðar. „Var það
ekki mamma þín sem sagðist ekki
reikna með því að við myndum
eignast börn?“ spyr Tobba sam-
býlismanninn sem bendir á að þau
hafi aldrei talað mikið um barn-
eignir út á við. „Kalli hefur sagt
að við tvö séum fjölskylda og við
þurfum ekki börn nema við viljum
það. Við höfum samt alveg verið til
í að skoða það, höfum hugsað um
að það gæti verið gaman að eignast
barn en höfum alltaf talið að það
væri betra seinna. Svo ákváðum við
bara að ég myndi hætta á pillunni
og það bara kæmi ef það kæmi. Það
þurfti síðan ekki meira til en einn
koss á milli uppvasksvakta og ég
var orðin ólétt,“ segir Tobba og þau
horfa ástúðlega hvort á annað.
Þau reiknuðu þó ekki með því
að þetta myndi gerast svona hratt
og kom óléttan í byrjun aftan að
Tobbu. „Ég er að eðlisfari mjög
kvöldsvæf en skyndilega var það
eiginlega komið út fyrir öll mörk.
Við héldum til dæmis óvænta brúð-
kaupsveislu fyrir vinafólk okkar
og ég sofnaði í veislunni sem við
stóðum fyrir. Í annað skiptið vorum
við hér með matarboð og ég sofnaði
á klósettinu. Kalli þurfti að koma
og banka, en þarna var ég alveg
búin á því eftir eitt léttvínsglas.“
Skömmu síðar fór sá grunur að
læðast að Tobbu að hún væri hrein-
lega orðin ólétt. „Ég ákvað þá að ef
ég væri ólétt þá yrði ég að kaupa
eitthvað handa Kalla sem á stæði:
„Þú ert að verða pabbi“ eða „Besti
pabbi í heimi“ og fór beint í Lyfju
í Smáralind og keypti óléttupróf.
Mér fannst afgreiðslukonan horfa
svo mikið á mig og svo sagði hún
við mig: „Gangi þér vel.“ Ég dreif
mig svo inn á klósettið í Smáralind
og pissaði á óléttuprófið en það
sýndi að ég væri ekki ólétt.“
Kalli læðir því inn að hún hafi
verið ansi svekkt. „Já, ég var drullu-
svekkt en ég vildi ekki að hann
upplifði að það væri einhver pressa.
Við vorum búin að panta borð og
fórum út að borða um kvöldið en
ég hafði bara enga lyst og sagði
honum þá að ég hefði tekið þessa
prufu og að ég hefði ætlað að kaupa
eitthvað handa honum. Ég gat samt
ekki hætt að hugsa um óléttuprófið
og þegar við komum heim rótaði
ég í ruslinu og fann prufuna – og
hún var orðin jákvæð. Ég fékk
algjört taugaveiklunarkast og hló
og hló,“ segir Tobba en Kalli vissi
ekki hvaðan á hann stóð veðrið þar
til hún, milli hláturekkasoganna,
útskýrði málið. „Við ákváðum þá að
taka fleiri próf og Kalli var sendur
út í Pétursbúð og apótekið seint um
kvöld til að kaupa eitt KitKat og
eitt óléttupróf. Við röðuðum síðan
öllum prófunum saman og þau voru
öll jákvæð. Við bókuðum síðan tíma
í sónar og þá sást að ég var komin
4-5 vikur á leið.“
Tobba á afar erfitt með að þegja
yfir leyndarmálum og til marks um
það hefur hún ítrekað gefið Kalla
jólagjöfina fyrir jól því hún hefur
verið svo spennt yfir gjöfinni og
þurft að kaupa nýja undir jólatréð.
„Mér fannst mjög erfitt að þegja yfir
þessu og þurfti að búa til alls konar
sögur. Það vakti til dæmis upp
spurningar þegar ég fór út að borða
með vinnufélögunum og fékk mér
hvorki sushi né hvítvín. Ég þóttist
vera á detox og alls konar kúrum.
Ég upplifði það þarna að það er
hreinlega bara dónalegt að spyrja
konu hvort hún sé ólétt. Á þessum
fyrstu þremur mánuðum er maður
hræddur um að þetta gangi ekki
upp og maður missi barnið. Það
er því töluverð árás að spyrja konu
hvort hún sé ólétt því það kallar
annað hvort á lygi eða að konan þarf
að tala um eitthvað sem hún er ekki
tilbúin til að deila.“ Yfirleitt var það
þó bara í gríni sem hún var spurð,
sérstaklega í veislum, og ákváðu
Tobba og Kalli fljótt að hafa þann
háttinn á að þau væru alltaf bæði
með léttvínsglas í hendi en skiptust
á þannig að Kalli drakk úr þeim
báðum. Hann segir kómískt frá því
hvað þetta gat verið flókið. „Þetta
voru erfiðar veislur fyrir mig. Ég
skrönglaðist út, Tobba hálfpartinn
hélt mér uppi og við læddumst fyrir
hornið og sóttum bílinn, því auðvit-
að þóttumst við ekki vera á bíl.“
Geta rifist eins og hundur og
köttur
Fyrstu mánuðina var Tobbu líka
mjög flökurt en hún reyndi líka að
fela það eftir besta megni. „Ég er í
Tobba Marínós og Kalli Baggalútur, eins og þau eru jafnan
kölluð, eiga von á sínu fyrsta barni í júní en eftir að þau upp-
götvuðu óléttuna tók við afar fjörugur feluleikur þar til hægt
var að deila fréttunum. Tobba segir að í sambandinu hafi hún
stundum talið að illa gengi ef ekki væru súkkulaði og rósir um
allt en Kalli hafi kennt henni að meta smáatriðin sem skipta svo
miklu. Fleiri tímamót eru í lífi þeirra beggja á næstunni, fjórða
bók Tobbu er væntanleg í vor og Kalli hefur ákveðið að finna
sér aðra dagvinnu en að vera í framlínunni í stjórnmálum.
Lífið er meira en
rósir og súkkulaði
mjög krefjandi starfi, ég stýri mark-
aðsdeild Skjásins og sit þar í fram-
kvæmdastjórn, og þeir eru ófáir
fundirnir þar sem ég hef hugsað
um hvað myndi gerast ef ég gubb-
aði á fundarborðið og stundum faldi
ég mig inni á klósetti í fósturstell-
ingunni því ég gat engan veginn
verið. Ég missti þrjú, fjögur kíló
þarna til að byrja með en ég er búin
að ná þeim kílóum aftur,“ segir
hún og strýkur kúlunni sem henni
finnst enn ægilega lítil.
Í 20 vikna sónarnum fengu þau
að vita kyn barnsins. „Þetta er
stelpa. Hún er svolítill stríðnis-
púki þannig að það var erfitt að sjá
kynið. Þegar það kom í ljós hrópaði
ég strax af gleði að við gætum klætt
hana í tjullpils og allskonar fínirí,“
segir Tobba af sinni óendanlegu
glaðværð. „Og Kalli sagði bara: Ó,
fokk!“ Hann segist á undanförnum
árum hafa reynt að tileinka sér
langlundargeðið sem pabbi Tobbu
hefur þróað með sér og hún skýtur
inn að þar sem pabbi hennar hafi
búið með fjórum konum, þar af
þremur dætrum, hafi hann ósjaldan
verið sendur út á Select til að kaupa
dömubindi. „Þessi maður hefur
þróað með sér mesta langlundar-
geð sem ég þekki,“ segir Kalli og
brosir.
18 viðtal Helgin 21.-23. febrúar 2014