Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 34
34 matur & vín Helgin 21.-23. febrúar 2014
vín vikunnar
Era Montepulciano
d'Abruzzo
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Montepul-
ciano.
Uppruni: Ítalía, 2011.
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum:
1.899 kr. (750 ml)
Umsögn: Virkilega
spennandi Montepul-
ciano-vín frá Ítalíu
og lífrænt ræktað í
þokkabót. Verðið er
gott, bragðið er gott
og vínið hentar vel
með bragðmiklum
pastaréttum. Ekki síst
kröftugri sósu, jafnvel
bragðbættri með
ansjósum.
Delicato
Chardonnay
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Chardonnay.
Uppruni: Bandaríkin,
2011.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum:
1.999 kr. (750 ml)
Umsögn: Delicato er
magnframleiðandi
frá Kaliforníu sem
stendur alltaf fyrir
sínu. Vínin eru jöfn
að gæðum og þú
veist alltaf að hverju
þú gengur. Þetta
Chardonnay er
bragðmilt og hentar
með alls konar mat,
ekki síst feitari fiski.
Chateau Michelle
Riesling
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Riesling.
Uppruni: Bandaríkin,
2011.
Styrkleiki: 11%
Verð í Vínbúðunum:
2.497 kr. (750 ml)
Umsögn: Chateau
Michelle er
frábær framleiðandi
í Columbia-dalnum
í Washington-fylki
í Bandaríkjunum.
Þaðan koma mörg
afbragðs vín og
þessi Riesling gefur
bræðrum sínum frá
Alsace ekkert eftir.
Gættu þess að drekka
vínið ekki beint úr
ísskápnum, leyfðu því
að standa smá stund
og opna sig.
Klassík á konudegi
Konudagurinn er á sunnudaginn. Hann hefur sumpartinn átt undir högg að sækja
því mörgum finnst þetta fyrirbæri orðið hálf gamaldags. Við viljum hins vegar halda
gömlu hefðunum í heiðri og gera það á eins skemmtilegan hátt og hægt er.
Rósavín hefur ekki átt mikið upp á pallborðið hjá okkur Íslendingum sem er synd
því gott rósavín getur verið hreint afbragð. Því miður hefur úrval af
þessari ágætu vöru ekki verið upp á marga fiska hér á landi.
Mateus á vel við á konudeginum því það hefur fylgt þjóðinni lengi og
var jafnan að finna í vínskáp allra góðra kvenna. Þetta er vínið sem
mömmur og ömmur dreyptu á í sumarbústaðaferðunum.
Mateus er í gamaldags flösku en drykkurinn sjálfur hefur breyst frá því sem áður var,
nú er hann orðinn ljósari. Mateus tilheyrir léttari tegund rósavína. Áfengisprósentan
er lág sem tengist oft því að vínin séu sæt. Hins vegar er Mateus ekkert sérstaklega
sætt en það er hins vegar ávaxtaríkt með sætum og léttum keim. Það freyðir
pínulítið sem gerir það mjög frískandi.
Mateus
Gerð: Rósavín.
Þrúgur: Baga, Rufete o.fl.
Uppruni: Portúgal.
Styrkleiki: 10%
Verð í Vínbúðunum: 1.499 kr. (750 ml)
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Fullkominn konudagskokteill
Konudagurinn er á sunnu-
daginn og þá er viðeigandi að
karlmenn gleðji konur sínar.
Auk hefðbundinnar þjónustu
er tilvalið að gleðja frúna með
því að færa henni kokteil fyrir
matinn eða þegar ró er komin
á um kvöldið.
Við fengum Ása á
Slippbarnum, Ásgeir Má
Björnsson, til að reiða fram
snilldarkokteil fyrir þetta
tilefni. Ásgeir og félagar eru
rómaðir kokteilgerðarmenn
og það verður enginn svikinn
af þessum.
Winter Sour
Uppskrift
60 ml Red Stag Cherry
Bourbon infusað með eplum
og kanil.
15 ml peru og sítrónu timían
síróp.
30 ml ferskur sítrónusafi.
Múskat á toppinn.
Aðferð
Allt nema múskatið hrist
saman og síað í kælt kokteil-
glas og múskat rifið yfir.
Bourbon Infuse
Krukka fyllt með skornum
rauðum eplum sem búið er
að fjarlæga stein og stilk, 2-4
kanilstöngum bætt við og Red
Stag hellt yfir, krukkunni lokað
og látið liggja í 3-6 daga. Að
því loknu eru eplin og kanillinn
síuð frá.
Peru og timían síróp
Jöfn hlutföll af afhýddum og
steinhreinsuðum perum og
sykri sett í ílát ásamt knippi af
sítrónu timían. Í rólegheitunum
er sykurinn látinn leysast
upp í perusafanum. Þetta er
látið liggja í 2-3 daga og þá er
sykurlögurinn síaður frá.
Ási á Slippbarnum mælir með Winter Sour fyrir konuna á sunnudaginn. Ljósmyndir/Hari
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero 1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Skráðu þig inn...
...drífðu þig út