Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 56
Þær Eirún, Jóní og Sigrún hafa unnið saman gjörninga í 18 ár en láta nú reyna á leiklistarformið í nýju verki. Ljósmynd/Hari
Frumsýning gjörningaklúbburinn í listasaFni íslands
Hugsa minna - skynja meira
Gjörningaklúbburinn býður upp á klukkutíma upplifun Listasafni Íslands. Til að taka þátt þarf
að tryggja sér miða því sýningarfjöldi er takmarkaður, mæta svartklæddur eftir lokun á safnið
og helst að skilja rökhugsunina eftir heima. Gestir mega búast við öðruvísi sýningu, sjónrænni
veislu sem örvar öll skynfæri og leikur sér að mörkum leikhúss og myndlistar.
V ið erum að leggja áherslu á hversu mikil-vægt það er að treysta
skynjuninni því við búum í þjóð-
félagi sem byggir svo mikið á
rökhyggju. Við erum ekkert
endilega að gagnrýna rökhugs-
unina heldur viljum við bara
leggja áherslu á að maður eigi
að líka að treysta tilfinningum
sínum og skynfærum. Þetta er
nú skringileg skipun en kannski
er þetta frekar hvatning. Þetta
er eiginlega boð og skipun,“
segir Eirún Sigurðardóttir, einn
meðlima Gjörningaklúbbsins,
og hlær. Eirún og samstarfs-
konur hennar láta nú reyna á
leiklistarformið í nýju verki.
Hún segir rökhugsunina
oftast ná yfirhöndinni yfir til-
finningunum. „Í mörgu í lífinu
þá treystum við öðru en rökum,
til dæmis ástinni eða listinni.
Við ættum að taka þessa þætti
meira til greina. Þennan heim
ætlum við að bjóða fólki að
koma inn í eftir lokun safnisins.
Fólk fær að koma og sjá sýningu
sem er allt öðruvísi en sýningar
sem það á að venjast hér í Lista-
safninu. Það er ekki hægt að sjá
verkið á venjulegum opnunar-
tíma og fólk verður að koma
sérstaklega til að sjá verkið og
verða hluti af því. Það er nauð-
synlegt að upplifa það.“
Gjörningaklúbbinn skipa þær
Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jóns-
dóttir og Sigrún Hrólfsdóttir.
Þær hafa fléttað saman líf og
list í 18 ár og gjörningurinn er
þeirra tjáningarmáti, en þetta
er í fyrsta sinn sem þær róa
svo langt út á leiklistarmiðin.
„Oftast gerum við bara gjörning
einu sinni en núna erum við að
fá lánað þetta skipulag leikhúss-
ins, verðum með 12 sýningar og
það er takmarkaður sýningar-
fjöldi
Áhorfendur eru þátttakendur
í verkinu og mega búast við
veislu fyrr öll skynfæri. Gest-
irnir þurfa að huga að ýmsu.
Í fyrsta lagi þurfa þeir að vera
alveg svartlæddir og svo þurfa
þeir að koma hér í skjóli nætur.
Ganga svo inn í verkið sem
ein stór svört heild og reyna á
ýmis skynfæri, en án þess þó að
nokkur sé tekin úr hópnum. Við
erum að leggja áherslu á hráa
skynjun og þetta lítur kannski
út fyrir að vera mjög súrrealískt
en það eru þarna allskyns til-
vitnanir,“ segir Eirún.
Þær stöllur hafa aldrei unnið
jafn umfangsmikið verk hér-
lendis en þær hafa fengið 16
listamenn til samstarfs við sig.
Sigrún segir það skemmtilega
og gefandi nýbreytni að vinna
með jafn mörgum ólíkum lista-
mönnum. „Þetta eru leikarar,
dansarar, myndlistamenn,
arkitektar og tónlistamenn.
Allar listgreinar koma að þessu.
Við höfum yfirleitt unnið þrjár
saman svo þetta er alveg nýtt
fyrir okkur. Allir fengu frekar
skýrar línur frá okkur en svo
kemur hver og einn með sitt
innlegg.“
Jóní segir aðferð þeirra við
að nálgast efnið ekki vera neitt
öðruvísi núna þegar þær eru
að gera leikhús. „Við köstum
á milli okkar spurningum og
hugmyndum, spáum í sam-
tímann, fortíðina og framtíðina.
Samstarfið milli okkar er og
hefur alltaf verið mjög lífrænt.
Við erum sem einstaklingar á
mjög svipuðum nótum, oftast
frekar samstíga enda með líkan
bakgrunn, erum hvítar konur
úr sama samfélagi. Svo höfum
við unnið saman í 18 ár og erum
mjög góðar vinkonur.“
Hún vill ekki gefa of mikið
uppi um efnistök verksins en
segir þeirra hugðarefni fá eitt-
hvert pláss. Þær spegli söguna
og framtíðina í karaktersköpun
og sjónrænni framsetningu.
„Við spáum mikið í jafnrétt-
isbaráttu og pólitík og viljum
leggja okkar af mörkum með
listinni. Í þessu verki erum við
soldið að hugsa um framtíðina,
það er svo auðvelt að spá í hana
því allt endurtekur sig. Við
vitum að það hafa verið bólur og
að það verða bólur og í kjölfarið
kreppur. Við rýnum í fortíðina
og sjáum það sama, stríð og
kreppur. Fólk hefur alltaf fengið
yfir sig sömu hluti og eru að við-
gangast núna.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
jón kalman ausinn loFi í Verdens gang
Þríleikur Jóns Kalmans Stefánsson-
ar sem hófst með Himnaríki og hel-
víti og lauk með Hjarta mannsins er
allur kominn út á norsku. Norski rit-
höfundurinn og gagnrýnandinn Ga-
briel Michael Vosgraff Moro skrifar
ritdóm um lokabindið, Menneskets
hjerte, í Verdens Gang og fer ekki
leynt með hrifningu sína.
Moro segir þessar þrjár bækur
Jóns um líf fólks á Íslandi fyrir
hundrað árum síðan hafa fengið
glimrandi dóma á Íslandi og að
með vandaðri norskri þýðingu Tone
Myklesbosts fái norskir lesendur
nú loks að njóta til fullnustu eins af
metnaðarfyllstu skáldverkum Norð-
urlanda á síðustu árum.
Jón Kalman er sagður vekja
sögupersónur sínar til lífsins með
ljóðrænum og harmrænum texta
sínum. Langar setningar og frá-
sagnarháttur Jóns framkalli skýrar
myndir af persónunum og krefjist
um leið mikils af lesandanum.
Moro segir Menneskets hjerte
ekki vera auðlesna bók en fegurð
hennar nái slíkum tökum á lesand-
anum að hún hafi varanleg áhrif á
hann.
Skínandi skáldskapur
Jóni Kalman er hrósað í hástert í
ritdómi um Hjarta mannsins í Verdens
Gang.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Lau 8/3 kl. 20:00 frums Mið 19/3 kl. 20:00 aukas Sun 30/3 kl. 20:00 10.k
Þri 11/3 kl. 20:00 aukas Fim 20/3 kl. 20:00 aukas Lau 5/4 kl. 20:00 aukas
Mið 12/3 kl. 20:00 2.k Fös 21/3 kl. 20:00 6.k Sun 6/4 kl. 20:00 11.k
Fim 13/3 kl. 20:00 3.k Lau 22/3 kl. 20:00 7.k Fös 11/4 kl. 20:00 12.k
Fös 14/3 kl. 20:00 aukas Sun 23/3 kl. 20:00 8.k Lau 12/4 kl. 20:00 13.k
Lau 15/3 kl. 20:00 4.k Fös 28/3 kl. 20:00 aukas Sun 13/4 kl. 20:00 14.k
Sun 16/3 kl. 20:00 5.k Lau 29/3 kl. 20:00 9.k Sun 27/4 kl. 20:00 15.k
Ótvíræður sigurvegari á merkustu leiklistarhátíðar Breta
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 21/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00 lokas
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýir tímar, nýr Hamlet. Lokasýningar
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Fös 14/3 kl. 20:00
Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Lau 15/3 kl. 20:00
Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Sun 16/3 kl. 20:00
Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Fim 6/3 kl. 20:00 aukas Mið 19/3 kl. 20:00
Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Fös 7/3 kl. 20:00 aukas Fim 20/3 kl. 20:00
Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Lau 8/3 kl. 20:00 20.k Fös 21/3 kl. 20:00
Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k Lau 22/3 kl. 20:00
Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Fim 13/3 kl. 20:00 Sun 23/3 kl. 20:00
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Sun 23/2 kl. 20:00 5.k Lau 8/3 kl. 20:00 aukas Lau 15/3 kl. 20:00 aukas
Lau 1/3 kl. 20:00 Sun 9/3 kl. 20:00 aukas
Sun 2/3 kl. 20:00 aukas Fös 14/3 kl. 20:00 aukas
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Sun 23/3 kl. 20:00 Sun 30/3 kl. 20:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k Sun 9/3 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
Óskasteinar – „Verulega góð kvöldskemmtun” – SA, tmm.is
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ENGLAR ALHEIMSINS – HHHHH
„Leikhús á öðru plani...fullkomin útfærsla á skáldsögunni.“ Fbl SÁS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn Sun 9/3 kl. 19:30 78.sýn Mið 26/3 kl. 19:30 Aukas.
Lau 1/3 kl. 19:30 75.sýn Mið 19/3 kl. 19:30 77.sýn Fim 27/3 kl. 19:30 Aukas.
Sun 2/3 kl. 19:30 76.sýn Sun 23/3 kl. 19:30 81.sýn Sun 30/3 kl. 19:30 lokas
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013. Síðustu sýningar!
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums. Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 16/3 kl. 16:00 Aukas.
Lau 22/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Fim 20/3 kl. 19:30 11.sýn
Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 12.sýn
Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 13.sýn
Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Fös 28/2 kl. 19:30 Frums. Fös 14/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 29/3 kl. 19:30 13.sýn
Mið 5/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 15/3 kl. 19:30 8.sýn Fim 3/4 kl. 19:30 14.sýn
Fim 6/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 16/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 4/4 kl. 19:30 15.sýn
Fös 7/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 5/4 kl. 19:30 16.sýn
Lau 8/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 13/4 kl. 19:30 17.sýn
Mið 12/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 22/3 kl. 19:30 11.sýn
Fim 13/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 28/3 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 22/2 kl. 20:00 23.sýn Fim 6/3 kl. 20:00 30.sýn Fim 20/3 kl. 19:30 37.sýn
Lau 22/2 kl. 22:30 24.sýn Fös 7/3 kl. 20:00 31.sýn Fös 21/3 kl. 19:30 38.sýn
Mið 26/2 kl. 20:00 25.sýn Fös 7/3 kl. 22:30 32.sýn Fös 21/3 kl. 22:30 39.sýn
Fim 27/2 kl. 20:00 26.sýn Fim 13/3 kl. 20:00 33.sýn Lau 22/3 kl. 19:30 Aukas.
Fös 28/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 14/3 kl. 20:00 34.sýn Lau 22/3 kl. 22:30 Aukas.
Fös 28/2 kl. 22:30 28.sýn Fös 14/3 kl. 22:30 35.sýn Mið 26/3 kl. 20:00
Mið 5/3 kl. 20:00 29.sýn Mið 19/3 kl. 20:00 36.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 23/2 kl. 13:00 Sun 2/3 kl. 13:00 Sun 9/3 kl. 13:00 Lokas.
Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 1/3 kl. 13:30 Lau 8/3 kl. 13:30 Lau 15/3 kl. 13:30
Lau 1/3 kl. 15:00 Lau 8/3 kl. 15:00 Lau 15/3 kl. 15:00
Það miklu betra að hitta Karíus og Baktus í leikhúsinu en að hafa þá í munninum.
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 22/3 kl. 13:00 16.sýn Lau 29/3 kl. 13:00 18.sýn Lau 5/4 kl. 13:00 20.sýn
Lau 22/3 kl. 16:00 17.sýn Lau 29/3 kl. 16:00 19.sýn Lau 5/4 kl. 16:00 21.sýn
1001 galdur - brúðuleiksýning fyrir 4ra til 94 ára. Allra síðustu sýningar.
Handprjónasamband Íslands
Skólavörðustíg 19
s. 552-1890
www.handknit.is
Lóan er komin
Sumarvesti
56 menning Helgin 21.-23. febrúar 2014