Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 59
Siemens leggur mikla áherslu á nýsköpun í starfi sínu og nú hefur
fyrirtækið þróað nýtt útifatnaðarkerfi fyrir þvottavélar sínar.
Þetta nýja kerfi verndar útifatnað svo að öndunar- og
vatnsfráhrindandi eiginleikar hans haldi sér betur.
Það getur sannarlega borgað sig að hugsa vel um útifatnaðinn.
Hvort sem menn stunda fjallgöngur, hjólreiðar, hlaup eða finnst
einfaldlega gaman að vera úti í rigningunni að drullumalla hentar
sérkerfið Útifatnaður vel.
Nokkrar gerðir af glæsilegum þvottavélum með þessu sérkerfi. Hafðu
samband við sölumenn okkar og fáðu frekari upplýsingar.
Einnig er hægt að fá upplýsingar á heimasíðunni:
www.sminor.is/utifatnadur.html.
Gildir til og með 28. febrúar eða á meðan birgðir endast.
www.sminor.is
Útifatnaður /
vatnsvörn
Útifatnaður
Nýjung sem verndar
útivistarfatnað
Cintamani-gjafabréf að verðmæti 20.000 kr. fylgir nú með
Siemens þvottavélum með sérker�inu Útifatnaður.
Þetta er mikill heið-
ur fyrir okkur sem
eru Python-aðdá-
endur að fá að taka
þátt í þessu.
þeim. Franska riddara sem sví-
virða þá og svo framvegis og
framvegis. Ég held að ég leiki
þarna einhver átta hlutverk.
Minna má það ekki vera.“
Stefán Karl segir æfing-
arnar búnar að vera ótrúlega
skemmtilegar og hvað sig
varðar spillir ekki fyrir að
hann er mikill Python-aðdá-
andi. „Ég er mikill aðdáandi
Monty Python og hef alltaf
verið. Kannski ekkert af öllu
þeirra efni en Holy Grail og
þessar bíómyndir hafa verið
í miklu uppáhaldi hjá mér
og sjónvarpsþættirnir auð-
vitað. Þetta er mikill heiður
fyrir okkur sem eru Python-
aðdáendur að fá að taka þátt í
þessu. Það er ekki spurning
og þetta verður mikil Pyt-
hon-veisla fyrir þá sem fíla
Python.“
Stefán Karl segir einlæga
aðdáendur Monty Python
ekki þurfa að óttast. „Það var
kona sem sagði við mig um
daginn að hún væri svo mikill
Monty Python-aðdáandi að
hún þori ekki á sýninguna.
Ég sagði henni að þetta væri
svona svipað og að segja að
manni finnist matur svo góður
að maður ætli ekki að fara út
að borða. Eða að ég ætli ekki
að fara á Hamlet af því að ég
elska Shakespeare. Þetta er
einmitt fyrir Monty Python-
aðdáendur. Eini munurinn er
bara að þeir sjálfir eru ekki að
leika enda eru þeir á grafar-
bakkanum.“
Auk Stefáns Karls og Egg-
erts leika Friðrik Friðriksson,
Jóhannes Haukur Jóhannes-
son, Maríus Sverrisson, Oddur
Júlíusson, Salóme Rannveig
Gunnarsdóttir, Selma Björns-
dóttir, Sibylle Köll, Stefán
Karl Stefánsson, Unnur Birna
Björnsdóttir, Þorleifur Einars-
son, Ævar Þór Benediktsson,
Örn Árnason og Ágústa Eva
Erlendsdóttir í sýningunni.
Hilmir Snær Guðnason
leikstýrir og Bragi Valdimar
Skúlason þýddi verkið.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Nýtt verk Högna Egilssonar frumflutt í Hörpu
TónlisT BlásarakvinTeTT reykjavíkur á Tónleikum kammermúsíkklúBBsins
Nýtt verk eftir Högna Egils-
son tónskáld verður frum-
flutt á sunnudagskvöld þegar
Blásarakvintett Reykjavíkur
leikur á tónleikum á vegum
Kammermúsíkklúbbsins. Tón-
leikarnir fara fram í Norður-
ljósasal Hörpu og hefjast
klukkan 19.30. Píanóleikar-
inn Peter Máté leikur með
Blásarakvintettinum. Á efnis-
skránni eru verk eftir Anton
Reicha, Ludwig van Beet-
hoven og Francis Poulenc,
auk verks Högna Egilssonar.
Verk Högna kallast Andartak
Tetiönu Chornovol. „Tetiana
Chornovol var úkraínskur
aktivisti og blaðakona sem lést
um síðustu jól af völdum bar-
smíða í Kænugarði. Hún hafði
þá nýlokið grein um spillingu
innan stjórnsýslunnar. Atvikið
vakti sterk viðbrögð, bæði í
Kænugarði og annarsstaðar
í heiminum. Borgarastyrjöld
geisar nú í Kænugarði,“ segir
Högni um verk sitt.
Blásarakvintett Reykjavíkur
var stofnaður árið 1981 og
skipuðu hann þeir Bernharður
Wilkinson flauta, Daði Kol-
beinsson óbó, Einar Jóhann-
esson klarinett, Hafsteinn
Guðmundsson fagott og Jósef
Ognibene horn. Þeir voru allir
fastráðnir hljóðfæraleikarar
við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Nú er Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari kvintettsins
og Darri Mikaelsson fagott-
leikari.
Nýtt verk Högna Egilssonar
verður frumflutt í Norðurljósa-
sal Hörpu á sunnudagskvöld.
Ljósmynd/Hari
Blásarakvintett Reykjavíkur leikur á tónleikunum sem eru á vegum
Kammermúsíkklúbbsins.
menning 59 Helgin 21.-23. febrúar 2014