Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 42
Þegar ískalt er úti er gott að vera bara heima og föndra. Origami er japönsk pappírslist sem snýst um að búa til þrívíð form úr flötum pappír. Sam- kvæmt aldagömlum japönskum hefðum er pappírinn einungis brotinn saman en aldrei límdur eða klipptur. Hægt er að búa til fjöldann allan af formum, þau takmarkast bara af ímyndunar- afli þess sem brýtur saman pappírinn. Frægasta formið af origami er sennilega hegrinn en gömul þjóðsaga segir að brjótir þú saman eitt þúsund pappírshegra getir þú fengið þína heitustu ósk uppfyllta. Almennt er hegrinn talinn færa hamingju í Japan og origami hegrinn því vinsæl gjöf. Hægt er að notast við næstum hvaða pappír sem er, en formið er alltaf ferhyrnt og algengasta stærðin er 7,5 x 7,5 cm. Hér- lendis er hægt að nálgast ori- gami pappír með hefðbundnum komino mynstrum í Tiger en svo er að sjálfsögðu hægt að kaupa bara pappír og klippa út ferhyrnda kassa. Þegar fram- leidd hafa verið nokkur stykki af fuglum, drekum, stjörnum, blómum, eða bara hverju sem er, er sniðugt að finna nál og grófan tvinna og þræða formin upp í óróa. Svo er alltaf hægt að færa einhverjum fegurðina að gjöf og hver veit nema hamingja fylgi í kjölfarið. Á alnetinu er endalaust mikið af síðum sem kenna origami gerð og svo er alltaf gott að styðjast við you-tube kennslu. Hér eru nokkrar góðar síður: www.en.origami-club.com, www.origami-fun.com, http:// www.origami-make.com/ - hh 42 fjölskyldan Helgin 21.-23. febrúar 2014 Kvíðahnútur fermingarbarnsins H elena var með kvíðahnút í maganum. Hún vissi ekki hvort hún fengi að hitta pabba sinn eða afa og ömmu að athöfn lokinni. Mamma hennar og pabbi töluðu ekki saman. Veislan var aðeins með fólkinu hennar mömmu og stjúpa. Pabbi hennar ætlaði að hafa boð helgina á eftir. Hvernig fólk hagar sínum veisluhöldum er að sjálfsögðu einkamál hvers og eins. Það er ekkert óalgengt að fólk haldi fleiri en eina afmælisveislu fyrir barn, hvort sem foreldrar búa saman eða ekki. Það eru haldin bekkjarafmæli, fjölskylduaf- mæli og vinaafmæli ef því er að skipta. Af hverju ætti eitthvað annað gilda um fermingarveisluna? Halda má eina veislu eða fleiri. Aðalatriðið er að barnið og þeir sem að því standa séu sáttir. Hvað svo sem öllum öðrum finnst um fyrirkomulagið. Óhjákvæmilega er það dýrara að hafa margar veislur en hver og einn verður að gera það upp við sig hverju hann hefur ráð á. Ætli fólki hins- vegar að halda veislu saman þarf að komast að samkomulagi um kostnað, vinnuframlag og þess háttar. Góð regla er að ráðstafa hvorki tíma né peningum annarra án samráðs við viðkomandi vilji fólk eiga góð samskipti. Muna þarf líka eftir að eiga samráð við stjúpforeldra séu þeir til staðar. Það er örlítið flóknara með ferminguna sjálfa hvort heldur um er að ræða kirkjulega eða borgaralega at- höfn. Ferming er einstakur atburður og verður ekki endurtekinn. Spurningin er, hvaða minningar viljum við að börnin eigi um athöfnina og það sem henni fylgir? Rétt eins og langvarandi áhyggjur og ótti hafa nei- kvæð áhrif á heilsu og velferð barna og fullorðinna, þá hefur það jákvæð áhrif að finna ást og öryggi hjá þeim sem næst okkur standa. Við verðum betur í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem lífið leggur okkur á herðar. Börn læra að verða vongóð í stað þess að líta á sig sem fórnarlömb sem lítil áhrif geta haft á líf sitt. Skilnaður foreldra er yfirleitt börnum áfall í fyrstu en flest jafna sig smám saman nái foreldrar að leysa sín mál á uppbyggilegan máta. Takist það ekki er líklegt að mikill og langvarandi ágreiningur valdi börnunum streitu og kvíða. Á það líka við um börn sem búa með báðum foreldrum sínum. Erfið samskipti fyrrverandi maka geta líka haft áhrif á aðlögun barna í stjúpfjöl- skyldum þar sem koma barnsins verður kvíðvænleg vegna þeirra deilna, sem ósjaldan fylgja inn á heimilið. Þegar deilur eru miklar er börnum stundum bannað að tengjast stjúpforeldri sínu og ræða það sem gerist á öðru heimilinu á hinu heimilinu. Ekki veit ég hvað full- orðnu fólki þætti um að mega hvorki ræða vinnuna eða vinnufélaga sína heima eða fjölskyldu sína í vinnunni? Eða það lenti í sífelldum yfirheyrslum um hvað gerðist á hvorum staðnum um sig. Hvað þá ef það mætti ekki tengjast ákveðnum vinnufélaga sem væri bara við- kunnanleg manneskja? Hætta er á að foreldrar missi traust barna sinna og staða barnanna verður í senn einmanaleg og flókin. Hvort haldin verði ein eða tvær veislur er því kannski ekki stóra málið fyrir barnið heldur laskað traust til for- eldra og stjúpforeldra séu þeir til staðar. Þegar kemur að athöfninni sjálfri eiga börn ekki annarra kosta völ, mæti báðir foreldra og fjölskyldur, en að hafa þau á sama stað á sama tíma. Það er því mikil- vægt að athöfnin sé undirbúin – og þau viti hvað bíður þeirra í stað þess að ala á kvíða og óvissu. Enn er tími til stefnu vilji fólk finna út úr hlutunum og setja má sér það markmið að enda deilur eða a.m.k. finna leið til að lágmarka áhrif þeirra á börnin. Börnin eiga líklega eftir að gifta sig og skíra í framtíðinni og æskilegt að þau séu ekki að glíma við skilnað foreldra sinna langt fram á fullorðins ár – hvað þá ófædd barnabörn. Þeir sem sjá um athöfnina og undirbúning hennar geta gegnt mikilvægu hlutverki við að aðstoða foreldra og börn sem eru í þessum aðstæðum – það þarf bara að opna umræðuna og sjá hvað hentar hverjum og einum. Ættum við ekki frekar að hafa áhyggjur af kvíðahnút barnsins en hvort það fær eina eða tvær fermingar- veislur? Ein eða tvær fermingarveislur? Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari Heimur barna Ferming er einstakur atburður og verður ekki endurtekinn. Í Japan er hegrinn talinn færa hamingju. Ódýr og skapandi skemmtun Opið í Bláfjöllum: Venjuleg helgaropnun kl. 10–17. Einnig opið föstudag, mánudag og þriðjudag kl. 11–21. Skálafell verður einnig opið á föstudag kl. 12–21 og um helgina kl. 10–17. Lengjum opnunartímann í vetrarfríinu Ferðir samkvæmt áætlun. Aukarúta fer á föstudegi frá Olís í Mjódd kl. 11 og frá Bláfjöllum kl. 15. Upplýsingasími 530 3000 Nánari upplýsingar skidasvaedi.is PIPA R \TBW A • SÍA • 140526 H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S H E L G A R B L A Ð H E L G A R B L A Ð H E L G A R B L A Ð Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S Ó K E Y P I S ÓKEYPIS ÓKEYPI S Fermingarblað Fermingarblað Fréttatímans fylgir blaðinu 21. mars næstkomandi. Markmið okkar er, eins og áður, að gefa út gæðablað með áhugaverðu efni fyrir alla sem huga að fermingu þetta árið. Hvort sem það snertir matinn, veisluna, fötin, gjar eða annað sem tengist fermingunni, verður allað um það á vandaðan máta. Hað samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3300 eða á auglysingar@frettatiminn.is og við nnum réttu leiðina fyrir þig til þess að nálgast markhópinn þinn. 1986
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.