Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 60
Í takt við tÍmann tanja Ýr Ástþórsdóttir
Berst fyrir réttindum dýra
Tanja Ýr Ástþórsdóttir er 22 ára Reykjavíkurmær sem var krýnd Ungfrú Ísland í fyrra og býr sig nú
undir að taka þátt í keppninni Ungfrú heimur síðar á árinu. Tanja Ýr er að læra hugbúnaðarverk-
fræði við Háskólann í Reykjavík, elskar mexíkóskan mat og að ferðast til heitra landa.
Staðalbúnaður
Ég er með ósköp venjulegan fatastíl, held
ég. Ég elska skyrtur og geng í fínum skyrt-
um eiginlega á hverjum degi. Ég vil frekar
vera fínni en hversdagsleg en þegar ég er
heima hjá mér þá tjilla ég bara í kósíföt-
unum. Þegar ég fer til útlanda nýti ég tæki-
færið og kaupi mér föt en hér heima versla
ég í Júník og Zöru. Mér finnst skartgripir
Hendrikku Waage geðveikir, ég fer ekki
út úr húsi án armbandanna hennar. Mér
finnst ógeðslega gaman að vera á fínum
hælum en það er ekki alltaf hægt því ég er í
skóla. Við mamma erum báðar mikið fyrir
skó, hún á örugglega yfir hundrað pör.
Hugbúnaður
Ég er byrjuð að undirbúa mig fyrir Ungfrú
heim en keppnin verður í London í ágúst
eða september. Ég er í einkaþjálfun hjá
Aðalheiði Ýr og Heiðar snyrtir er líka að
hjálpa mér. Svo var ég að opna heimasíðuna
Tanjayr.com þar sem hægt er að fylgjast
með mér. Ég geri því mikið af því að hanga
í tölvunni þessa dagana, bæði vegna heima-
síðunnar og skólans. Einu sjónvarpsþætt-
irnir sem ég býð spennt eftir eru Pretty
Little Liars. Ég er ekki mikið fyrir að fara
niður í bæ að skemmta mér þó það komi
auðvitað fyrir. Við vinkonurnar förum hins
vegar oft út að borða eða kíkjum í Borgar-
nes þar sem góð vinkona mín býr. Það
er gaman að kíkja á sveitastemninguna.
Mér finnst leiðinlegt að fara ein í ræktina
og mæti því í ótrúlega marga opna tíma í
World Class. Ég var að æfa loftfimleika en
það hafa ekki verið námskeið að undan-
förnu sem ég hef komist á.
Vélbúnaður
Ég er alger Apple-manneskja, er með
Macbook Air eins og er en átti Macbook
Pro áður. Svo er ég með iPhone og nota
hann oft meira en tölvuna. Uppáhalds
appið mitt er Instagram en ég spila enga
leiki í símanum. Það er reyndar skrítið því
ég var mikið í tölvuleikjum, Counterstrike
og öllum þeim.
Aukabúnaður
Mexíkóskur matur er í uppáhaldi hjá mér
og ég fer oft á Culiacan og fæ mér taco
skeljar. Þær eru algjört nammi. Ég hef nú
að mestu látið mömmu sjá um eldamennsk-
una en núna elda ég stundum kjúkling. Ég
er samt mest í þessu létta eins og ommi-
lettu. Ég hef alltaf elskað snyrtivörur og
finnst gaman að prófa mig áfram með þær.
Bláa lóns vörurnar eru til dæmis í miklu
uppáhaldi, ég nota þær daglega. Ég hef
mikla ástríðu fyrir dýrum og berst fyrir
réttindum þeirra. Sjálf á ég chihuahua-
hund sem heitir Bella. Ég er mikið fyrir
útiveru og adrenalín-íþróttir, ég fer á snjó-
bretti, skíða og þegar það kemur gott veður
í sumar ætla ég að drífa mig á brimbretti.
En um leið finnst mér æðislegt að ferðast til
heitra landa. Ég var á Mallorca í fjóra mán-
uði sumarið 2012 og myndi velja Spán fram
yfir flest önnur lönd.
Tanja Ýr tekur þátt í keppninni
um Ungfrú heim í haust og nýtur
leiðsagnar Heiðars snyrtis við
undirbúninginn. Ljósmynd/Hari
appafengur
Homestyler
Interior Design
Homestyler Interior Design er eiginlega bara
alveg fáránlega sniðugt app, og þó það sé
hægt að nota það á snjallsíma er enn betra að
nota það á því í spjaldtölvu skjárinn er auðvit-
að mun stærri. Eins og nafnið gefur til kynna
er þetta app til innanhúshönnunar og það er
ekki flóknara en svo að þú getur tekið mynd
af svefnherberginu þínu, stofunni eða bað-
herberginu og endurhannað það með appinu
á ótrúlega raunverulegan hátt. Það eru tíðindi
að þetta flotta app er frítt en það skýrist af því
að húsgögnin, ljósakrónurnar og speglarnir
sem þú velur úr þegar þú endurhannar rýmið
eru öll til sölu einhvers staðar og í gegn um
appið getur þú nálgast þessa hluti. Hefðbund-
inn notandi getur þó allt eins mátað rautt sófa-
sett í stofuna sína og málað veggina græna án
þess að greiða krónu fyrir, og farið svo bara í
Ikea og Litaval.
Ýmislegt annað er hægt að gera með app-
inu, hægt er að skoða rými sem aðrir hafa
hannað og jafnvel dundað sér við að endur-
hanna þau, og svo er einfalt að senda myndir
af eigin hönnun til vina og ættingja.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
60 dægurmál Helgin 21.-23. febrúar 2014
Sigurvegari í keppninni
Kaka ársins 2014
Kræsingar fyrir öll tilefni
OPIÐ ALLA HELGINA
Skipholti, Hólagarði og Arnarbakka. Sími: 557 2600
Sveinsbakarí - www.sveinsbakari.is
tertur snittur brauðtertur