Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 20
Sumarbúðir fyrir unglinga 14 til 17 ára í Tarifa á Spáni,
spænska,sport og útivist 26. júní til 7.júlí.
Verð með flugi 230.000 isk. Skráningarfrestur til 1. mars.
Nánari uppl. má finna á www.alandalustarifa.com; info@alandalustarifa.com.
Sími: 0034 671948150.
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 13.02.14 - 19.02.14
1 2
Sannleikurinn um mál
Harrys Quebert
Joel Dicker
Marco áhrifin
Jussi Adler Olsen
5 6
7 8
109
43
Mánasteinn
Sjón
Iceland Small World - lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
5:2 Mataræðið
Unnur Guðrún Pálsdóttir
Óskalistinn
Grégoire Delacourt
5:2 Mataræðið
Michael Mosley / Mimi Spencer
Skrifað í stjörnurnar
John Green
HHhH
Laurent Binet
Veistu hvað ég elska þig mikið ?
Sam McBratney
vera atvinnustjórnmálamaður. „Ég
er menntaður tölvunarfræðingur,
starfaði lengi við forritun og hug-
búnaðarprófanir, auk þess sem ég
hef starfað við tónlist og hef víð-
tæka reynslu úr skemmtanabrans-
anum,“ segir hann en nafnbót Kalla
kemur til af því að hann er einn
meðlima í hinum kostulega Bagga-
lúti sem hefur gert garðinn frægan
á hinum ýmsu sviðum, svo sem
með tónlist og gríni. „Það er margt
sem mig langar að gera og ég segi
bara eins og Marta María: „Maður
á aldrei að gera neitt nema það sé
ógeðslega skemmtilegt.“ Hún sagði
þetta við mig og ef það er ekki
skemmtilegt þá er það leiðinlegt og
það viljum við ekki.“
Tobba hefur líka ákveðnar
skoðanir á starfi stjórnmálamann-
ins. „Fólk virðist halda að það sé
rosalega flott að starfa í pólitík.
Hann hins vegar lækkaði gríðarlega
í launum við að verða borgarfulltrúi
því þeir eru auðvitað bara á taxta og
stundum kom hann ekki heim fyrr
en klukkan tíu eða ellefu á kvöldin
því hann var á borgarstjórnarfund-
um. Þetta er skrýtið starf þar sem
sífellt er verið að öskra á fólk,“ segir
hún. Kalli rifjar upp eftirminnilegt
atvik þegar hann og Tobba voru
saman úti að borða og ókunnugur
maður vindur sér upp að þeim.
„Hann fór að kvarta undan því að
það væri ekki búið að klippa trén í
kringum húsið hans. Kjörnir full-
trúar hafa auðvitað sín takmörk.
Það er gömul vinnubrögð að pólitík-
usar reddi hlutum fyrir einstaka
aðila, óháð heildarstefnunni, en það
er fólk sem í alvöru heldur að við
gerum þetta á nýjum tímum. Það
er meira að segja fólk sem trúir því
ekki að Besti flokkurinn sé ekki að
hygla vinum sínum í lista- og menn-
ingarlífinu, og þetta er jafnvel sama
fólk og kaus okkur til að gera það
ekki.“
Las Tobbu hárrétt
Það vakti mikla athygli á sínum
tíma þegar Tobba og Kalli byrjuðu
að draga sig saman. „Fólk sagði
ýmist að ég væri of mikið flipp fyrir
hann eða að hann væri of gáfaður
fyrir mig,“ segir hún en ellefu
ára aldursmunur vakti ekki síður
athygli. Tobba var blaðamaður á
Séð&Heyrt þegar hún las í blaðinu
að Kalli væri eini borgarfulltrúi
Besta flokksins sem væri einhleyp-
ur og einsetti hún sér að koma
honum út, en hún hafði einnig
starfað sem stjórnandi stefnumóta-
þáttarins Djúpa laugin. Þegar þau
hittust fyrir tilviljun kvöld eitt á Öl-
stofunni ákvað hún að koma honum
saman við stúlku sem hún sá þar.
„Þetta var eflaust ágætis stúlka en
ég hafði minni áhuga á henni og
meiri áhuga á Tobbu,“ segir Kalli
sem viðurkennir að hafa strax orðið
skotinn í henni. „Ég sá strax að
það var fjör í henni.“ Hún segir að
einn af leyndum hæfileikum Kalla
sé ákveðni. „Þú sérð það ekki á
honum; hann er sætur og góður og
heldur á börnum ókunnugra, en
hann jaðrar alveg við það að vera
frekur. Ef hann ætlar sér eitthvað
þá fær hann það. Hann sagðist
klárlega vera maðurinn fyrir mig
og að allt annað væri misskilning-
ur. Hann benti mér á að ég væri á
villigötum í lífinu og að ég yrði að
kynnast honum betur.“ Kalli tekur
hógvær fram að þetta hafi hann
ekki sagt þetta fyrsta kvöld heldur
nokkrum vikum síðar en Tobba
kunni vel að meta þetta: „Það er allt
of sjaldan að karlmenn eru til í að
hafa fyrir hlutunum.“ Og hógvær
að venju segist Kalli hafa lesið
Tobbu alveg rétt: „Hún gaf mér þau
skilaboð að ég þyrfti að vinna fyrir
þessu og ég gerði það. Það gerist
ekkert sjálfkrafa.“
Tobba segir það einkennandi
fyrir samband þeirra hvað þau eru
óhrædd við að viðurkenna bara að
stundum gengur vel en stundum
gengur illa. „Ég var þannig að ef
það voru ekki rósir og súkkulaði
um allt þá gekk illa en Kalli kenndi
mér margt og benti mér á hvað
litlu hlutirnir skipta miklu máli. Ég
gleymi því aldrei, þegar við höfðum
verið saman í um ár, ég kem að
sækja hann og þegar hann kemur
út í bíl muldra ég áhugalaus „hæ.“
Líklega var þetta erfiður dagur, en
hann spurði mig bara: „Af hverju
tekurðu ekki betur á móti mér?
Ertu ekki glöð að sjá mig? Ég er
búinn að hlakka til að sjá þig í allan
dag.“ Ég fór þá að hugsa að það er
ekki sjálfgefið að hittast á hverjum
degi og núna er það smá „móment“
Kalli og Tobba eiga von á stúlku-
barni í sumar og þau eiga eftir að
komast að niðurstöðu um hvort
barnið verður skírt en þau voru alin
upp við ólíkar hefðir. Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 21.-23. febrúar 2014