Fréttatíminn - 21.02.2014, Page 30
Elskuð, dáð og eftirsótt
F
Foreldrar skipta vitaskuld mestu máli í
lífi afkvæma sinna en ekki má vanmeta
hlutverk ömmunnar. Hún heldur utan
um sitt fólk og er til staðar þegar á þarf
að halda, elskuð, dáð og eftirsótt vegna
þeirra strauma sem hún gefur frá sér –
og afinn fær mola sem af gnægtaborði
hennar falla í umgengni við smáfólkið.
Hlýja ömmunnar hefur reyndar verið
vegsömuð í gegnum tíðina – mjög að verð-
leikum – en hlutverk hennar breytist eins
og annarra. Ömmur nútímans eru í fullri
vinnu utan heimilis en þær eru engu að
síður fyrsti kostur foreldra ef aðstoðar er
þörf, hvort heldur er að sækja barn á leik-
skóla, sitja yfir því veiku, gæta að kvöldi
eða taka í nætur- eða helgargistingu.
Dásemdin er hins vegar sú að það þarf
ekki sérstakt tilefni til samvistanna. Svo
ég tali aðeins út frá reynslu okkar hjóna,
en við eigum átta barnabörn á aldrinum
eins til ellefu ára, sækja þau í samvist-
irnar við ömmuna vegna þess að hún er
gefandi í samskiptum, les fyrir þau og
syngur, bakar, föndrar og heldur kósí-
kvöld. Ógleymdar eru fjöruferðir til að
skoða kuðunga og skeljar og labbitúrar
að andapollinum svo fuglarnir fái sitt.
Afinn fylgir með í pakkanum, aðstoðar
eftir þörfum og gætir þess að eiga nóg af
teikniblöðum og vatnsliti í skúffu. Hann
er enn fremur sendur í bakaríið ef splæsa
skal snúðum á hópinn og hefur jafnframt
það hlutverk að búa til kakó.
Eftirsóknarverðast er þó að fara með
ömmu og afa í sveitina – og amman er
spurð hvort það megi. Það mátti um liðna
helgi. Þá hélt helmingur barnabarnanna
okkur félagsskap – og sá um að halda
okkur ungum frá föstudegi til sunnu-
dags – tvö systkinapör, fjögurra ára gutti
og sjö ára stóra systir annars vegar og
þriggja ára gutti og níu ára stóra systir
hins vegar.
Strákarnir sofnuðu á leiðinni, bundnir
í sína barnastóla. Við öðru var ekki að
búast. Við höfum áratuga reynslu af því
að bera sofandi börn úr bílum. Dreng-
irnir sváfu áfram eftir að inn var komið
– en það þýddi óhjákvæmilega að þeir
vöknuðu snemma á laugardagsmorgn-
inum. Dugðu þá ekki fortölur syfjaðra.
Það var kominn dagur að mati sveinanna.
Við vissum raunar hvað okkar beið og
treystum á að barnaefnið í sjónvarpinu
kæmi sterkt inn, jafnvel þótt aðeins sé
ein rás í sveitinni. Ungir menn þurfa
engu að síður lágmarksþjónustu meðan á
teiknimyndaglápi stendur, morgunmat og
eitthvað að drekka.
Minna þurfti fyrir stelpunum að hafa.
Þær eru blessunarlega komnar á þann
aldur að sofa lengur á morgnana og sá
dásamlegi eiginleiki á bara eftir að batna
eftir því sem nær dregur unglingsárum,
að minnsta kosti að mati ömmu og afa
sem síður þurfa að hafa áhyggjur af þess-
um svefnvenjum á virkum dögum þegar
foreldrar verða að vekja liðið í skólann.
Það breytir ekki því að við höfðum í
nógu að snúast báða helgardagana, með
fjögur börn á aldrinum þriggja til níu ára.
Það vildi til að veðrið var eins gott og það
verður í febrúar, sól og svolítið frost. Þeg-
ar barnatímanum lauk var ekki annað að
gera en dúða ungviðið, klæða það í galla
og finna til húfur og vettlinga. Sumar-
tólin voru tekin í gagnið þótt svolítið hart
væri að lenda á klaka neðan við renni-
brautina. Trampólínið var óspart notað
en kallaði á deildaskiptingu. Það fara
ekki saman hopp þriggja og fjögurra ára
annars vegar og sjö og níu ára hins vegar.
Guttarnir skutust stjórnlaust til og frá
undan heljarstökkum meyjanna og urðu
að fá að spreyta sig einir. Ella var hætta
á skrokkskjóðum. Þau rúmuðust hins
vegar öll í heita pottinum og skutu bæði
ömmu og afa miskunnarlaust með vatns-
byssum og öðrum tiltækum vopnum.
Ég leyfði mér þann munað, þrátt fyrir
að vera afi í ábyrgðarhlutverki, að verð-
launa mig með einum köldum meðan ég
grillaði laugardagsmatinn. Minna mátti
það eiginlega ekki vera, enda kallinn með
lafandi tungu eftir hopp og hí ungdóms-
ins. Amman hefði svo sem getað fengið
sér annan, svona til að róa taugarnar, en
lét það vera. Bæði vissum við af rauðvíns-
flösku sem við áttum í handraðanum en
þegar til kom gafst varla tími til að bragða
á þeim eðalveigum.
Það var kannski eins gott því ballið
byrjaði fyrir alvöru aðfararnótt sunnu-
dagsins. Þá vorum við minnt á það sem
fylgir umsjón smábarna. Þau fá nefni-
lega gubbupest, einhvern veginn upp úr
þurru. Það henti einmitt yngsta barnið í
hópnum. Þá reyndi svolítið á afann – en
meira á ömmuna sem tók ástandinu með
stöku jafnaðargeði. Litli drengurinn, sem
svaf við hlið stóru systur í tvíbreiðu rúmi,
gubbaði sem sagt yfir koddann sinn,
lakið og sængina. Amman tók sveininn
til sín, huggaði hann, klæddi í ný náttföt
og fjarlægði lak, kodda- og sængurver.
Afinn fékk það hlutverk að koma upp
barnarúmi sem við gátum haft hjá okkur.
Þegar það var klárt með nýju laki, kodda-
og sængurveri vonuðumst við til þess
að drengurinn sofnaði. Hann hafði hins
vegar varla lagt höfuðið á hreina kodda-
verið er hann gubbaði á ný – yfir kodd-
ann, sængina og lakið.
Amman kippti sér ekkert upp við þetta
– öllu vön – huggaði á ný og fann aftur til
hreint á barnarúmið. Hún stóð jafnframt
klár á næstu gubbusyrpum uns dreng-
urinn sofnaði og svaf til morguns. Þá
vaknaði hann stálsleginn – sem er meðal
undra bernskunnar – þótt amma og afi
væru svolítið teygð.
Hann var þegar við heimkomu, rétt
eins og hin, til í næstu ferð í sveitina.
Amma er nefnilega svo góð – og afi svo
sem sæmilegur líka.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Gott rval notaðra b la staðnum.
Komdu heims kn eða skoðaðu heimas ðuna;
www.hyundai.is / notaðir b lar.
S mi 575 1200
ALLT AÐ 80% FJ RM GNUN
HYUNDAI SANTA FE II CRDI
Nýskr 06/2006, ekinn 101 þús.
dísil, sjálfskiptur
TOYOTA AVENSIS S/D SOL
Nýskr 04/2009, ekinn 105 þús.
bensín, beinskiptur
LEXUS GS300
Nýskr 02/2008, ekinn 62 þús.
bensín, sjálfskiptur
NISSAN MICRA VISIA
Nýskr 06/2012, ekinn 45 þús.
bensín, sjálfskiptur
HYUNDAI TUCSON 4x4
Nýskr 06/2006, ekinn 136 þús.
bensín, sjálfskiptur
BMW 320i
Nýskr 02/2006, ekinn 145 þús.
bensín, sjálfskiptur
TOYOTA LAND CRUISER 120 GX
Nýskr 06/2006, ekinn 147 þús.
dísil, sjálfskiptur
VERÐ:
1.990.000 kr.
VERÐ:
3.980.000 kr.
VERÐ:
1.990.000 kr.
VERÐ:
1.390.000 kr.
VERÐ:
1.990.000 kr.
VERÐ:
4.190.000 kr.
HYUNDAI
VERÐ
2.550 þús.
HYUNDAI
NOTAÐIR
NEW THINKING.
NEW POSSIBILITIES.
Kaupt ni 1
Nr. 120306
Nr. 281081
Nr. 130761
Nr. 130785
Nr. 310046
Nr. 120286
Nr. 120355
30 viðhorf Helgin 21.-23. febrúar 2014