Fréttatíminn - 21.02.2014, Síða 44
44 heilsa Helgin 21.-23. febrúar 2014
É g ákvað að prófa Femarelle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í blaði þar sem hún lýsti ánægju sinni
með vöruna,“ segir Soffía Káradóttir sem
á þeim tíma var að byrja á breytingaskeið-
inu en vildi ekki nota hormóna. „Ég fann
fyrir hitakófum, fótaóeirð, skapsveiflum,
líkamlegri vanlíðan og vaknaði oft upp á
nóttunni.“
Eftir að Soffía hafði tekið Femarelle inn í
aðeins 10 daga hurfu öll einkenni breytinga-
skeiðsins. „Nú fæ ég samfelldan svefn, finn
ekki lengur fyrir hitakófum eða fótaóeirð
og líður mun betur á allan hátt og er í góðu
jafnvægi.“
Soffía mælir hiklaust með Femarelle við
vinkonur sínar. „Ein þeirra hætti á horm-
ónum og notar Femarelle í dag. Ég mæli
með því að allar konur á breytingaaldrinum
prófi Femarelle og get ekki ímyndað mér
hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki
kynnst þessu dásamlega undraefni.“
Virkni Femarelle hefur verið staðfest
með fjölda rannsókna á undanförnum
13 árum. Femarelle er fáanlegt í apó-
tekum, heilsuverslunum og í heilsuhill-
um stórmarkaða. Nánari upplýsingar
má nálgast á icecare.is og á Facebook-
síðunni Femarelle.
Femarelle er náttúruleg vara, unnin úr
soya og vinnur á einkennum tíðahvarfa hjá
konum. Hitakóf, nætursviti, skapsveiflur
og verkir í liðum og vöðvum eru algeng
einkenni tíðahvarfa.
KYNNING
Femarelle er dásamlegt fyrir
konur á breytingaskeiði
Soffía Káradóttir
hefur notað Fem-
arelle í rúmlega ár
og segir árangurinn
mjög góðan.
Eftir aðeins 10 daga
notkun hurfu öll
einkenni breytinga-
skeiðsins. Fem-
arelle er náttúruleg
vara, unnin úr soya
og hefur virkni þess
verið staðfest með
fjölda rannsókna
á undanförnum 13
árum.
UMBÚÐIR
NÁTTÚRULEGA
BETRI
Það er lítið mál að endurvinna nýju Smjörva umbúðirnar.
Þú tekur bara pappann af plastöskjunni og setur í pappírstunnuna.
Gámar fyrir plastumbúðir eru á næstu grenndarstöð eða
endurvinnslustöð.
NÚ Í400gUMBÚÐUM
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
61
3
27
Heilsa Friðsæll Febrúar verður settur á sunnudag
Hugleiðsluvika
í febrúarlok
Síðasta vikan í febrúar er tileinkuð friðsæld að þessu sinni þar sem fólk og fyrirtæki kynna hug-
leiðslu fyrir almenningi án endurgjalds. Tímaritið Í boði náttúrunnar stendur fyrir Friðsælum
febrúar og stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður. Verkefnisstýra segir hugleiðslu vera
mikilvægt tæki til að takast á við kvíða, þunglyndi og streitu.
Þ að er svo mikill hraði í sam-félaginu og í amstri dagsins gefum við okkur ekki tíma
til að staldra við og kyrra hugann,“
segir Gyða Dröfn Tryggvadóttir,
verkefnistýra Friðsældar í febrúar
– viðburðar sem ætlað er að vekja
athygli á hugleiðslu. Friðsæld í
febrúar er ætlað að verða árlegur
viðburður þar sem athygli er beint
að hugleiðslu og þeim ávinningi
sem í kyrrðinni felst.
„Kvíði, þunglyndi og streita hrjáir
æ fleiri og hugleiðsla er tæki sem
hægt er að nota til að takast á við
þessa kvilla. Hugleiðslan hjálpar
okkur að þekkja eigin hug og þar af
leiðandi takast betur á við líf okkar,
þar sem skiptast á skin og skúrir.
Við búum við endalaust áreiti og því
er mikilvægt að gefa sér tíma til að
staldra við, kyrra hugann og vera til
staðar hér og nú,“ segir Gyða Dröfn.
Forsvarsmenn Friðsældar í febrú-
ar höfðu samband við aðila sem
bjóða upp á hugleiðslu á höfuðborg-
arsvæðinu og víðar og buðu þeim að
vera með. „Við fengum ótrúlega góð
viðbrögð og bjuggumst satt að segja
ekki við svona góðri þátttöku,“ segir
Gyða. Meðal þess sem kynnt verður
í vikunni er iðkun SGI búddista, Zen
hugleiðsla, jóga Nidra, heilunarhug-
leiðsla og Gong slökun. Yfirlit yfir
alla viðburðina á finna á vefnum ibn.
is/vidburdir/ sem og á Facebook-
síðu Friðsældar í febrúar.
Guðbjörg Gissurardóttir, ritstýra
Í boði náttúrunnar og forsprakki
þessarar hugleiðsluviku, ritar um
mikilvægi hugleiðslu á vef tímarits-
ins og gefur leiðbeiningar fyrir þá
sem eru að hefja hugleiðslu:
„Komdu þér vel fyrir á stól
með góðan stuðning við bakið og
hendur í kjöltu eða á lærum. Mikil-
vægt er að ganga úr skugga um
að maður verði ekki fyrir truflun.
Dragðu djúpt inn andann, alveg
niður í maga. Á útöndun lætur þú
alla spennu líða úr líkamanum.
Endurtaktu þetta nokkrum sinnum
eða þangað til þú hefur náð góðri
slökun. Beindu athyglinni að öndun-
Hugleiðslan hjálpar okkur að
þekkja eigin hug og þar af leið-
andi takast betur á við líf okkar,
þar sem skiptast á skin og skúrir.