Fréttatíminn - 21.02.2014, Blaðsíða 48
48 bílar Helgin 21.-23. febrúar 2014
ReynsluakstuR FoRd Fiesta
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
3,6 L/100KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI C02 ÚTBLÁSTUR AÐEINS 94 g
HONDA CIVIC 1.6 DÍSIL KOSTAR FRÁ KR. 3.940.000
Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn
Samkvæmt What Car og Warranty Direct hefur Honda verið
valin áreiðanlegasti bílaframleiðandinn átta ár í röð.
Bí
ll á
m
yn
d:
H
on
da
C
ivi
c 1
.6
i-D
TE
C
E
xe
cu
tiv
e.
HONDA CIVIC 1.6 DÍSIL
3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km
Utanbæjar akstur
Blandaður akstur
Innanbæjar akstur
CO2
útblástur
94 g/km
Komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil,
með nýrri Earth Dreams Technology dísilvél, sem
býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts.
Umboðsaðilar:
Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800
Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020
Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
www.honda.is
HONDA CIVIC 1.4 BENSÍN - BEINSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.490.000
HONDA CIVIC 1.8 BENSÍN - SJÁLFSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.940.000
F ord Fiesta var mest seldi bíll-inn í sínum flokki í Evrópu í fyrra og það var hann líka
árið áður. Þetta kemur alls ekki
á óvart því þessi bíll hefur allt
sem til þarf fyrir einstaklinga og
litlar fjölskyldur, hvorki meira né
minna. Bíllinn sem ég reynsluók
var hefðbundinn Ford Fiesta Trend
bensínbíll og er því svo haganlega
fyrirkomið að það er engin leið að
setja dísil á bensínbílinn, og öfugt.
Ekki að ég kannist við að hafa lent í
slíku óhappi.
Bíllinn var ekki búinn neinum
aukabúnaði en var þó búinn öllu
sem þarf þó ég væri svolítið spennt
fyrir upphitanlegri framrúðu sem
hægt er að panta sérstaklega. Þó
er hann mjög fljótur að hitna sem
skiptir miklu á köldum febrúar-
morgnum, ekki síst þegar dagurinn
hefst á að keyra barn á leikskóla.
Ég ætlaði nú ekki að skrifa það í
þennan dóm en rétt áður en ég tók
fyrstu beygjuna tók ég sérstaklega
eftir því hvað mér fannst blikk-hljóð-
ið í stefnuljósinu vera notalegt. Síðar
hafði ljósmyndari Fréttatímans sér-
staklega á orði hvað honum fyndist
einmitt þetta hljóð vera óþolandi.
Það kom mér á óvart að þetta skyldi
vera svona umdeilt hljóð, en ég
stend vitanlega fast á mínu.
Ég er alltaf svolítið vandfýsin
á liti á bílum og var svo heppin
að fá eldrauðan Fiesta til afnota.
„Þú færð rauðan, í stíl við úlpuna
þína,“ sagði sölustjórinn í Brim-
borg en þegar litið er yfir Evrópu
eru vinsælustu litirnir hvítur,
svartur og grár. Í útliti er hann
bara heldur töff, með fallegar
línur og gaman að spóka sig á
honum, en á síðasta ári var fram-
endi Fiesta endurhannaður með
góðum árangri.
Við hönnun bílsins var lögð á að
hann væri eins umhverfisvænn og
mögulegt væri, hann er búinn eins
lítra EcoBoost-vél, auk Start/stop-
tækninnar og honum má leggja
ókeypis í bílastæði Reykjavíkurborg-
ar sem er ótvíræður kostur. Öryggið
skiptir alltaf máli og Fiesta fékk
hæstu einkunn í árekstraprófunum,
bæði hjá evrópsku og bandarískum
umferðaröryggisstofnunum, Euro
NCAP og IIHS. Þá er bíllinn búinn
ISOFIX-festingum fyrir tvo bílstóla
en ekki er pláss fyrir mikið meira í
aftursætunum. Lítið farangursrými
er líka óhjákvæmilegur fylgifiskur
þess að eiga smábíl en fólk verður
vitanlega að forgangsraða eftir eigin
þörfum.
Hvað stjórntæki varðar er bíllinn
með My Key-tækni sem gerir fólki
kleift að forrita lyklana með takmörk-
um á hámarkshraða og hljóðstyrk
hljómtækja, svo dæmi séu tekin, sem
líklega hentar best þegar lítt reyndir
ökumenn taka við stýrinu.
Stóri kosturinn er gott og mjög
sanngjarnt verð. Um tíma hugsaði
ég með mér að þetta væru fullkomin
fyrstu kaup fyrir ungt fólk en eftir
að vinur minn, sem ég skutlaði á
bílnum, hafði á orði að bíllinn færi
mér sérlega vel varð ég að viður-
kenna að hann hentar þörfum mín-
um og minnar litlu fjölskyldu algjör-
lega, og dóttir mín hafði sérstaklega
Umhverfisvænn og hlaðinn öryggisbúnaði
Ford Fiesta er lipur og fal-
legur bíll á góðu verði. Hann er
hlaðinn öryggisbúnaði og hefur
hlotið hæstu einkunn á öryggis-
prófunum. Vegna þess hversu
umhverfisvænn hann er má
leggja honum frítt í gjaldskyld
bílastæði í Reykjavík. Kröfuhörð
börn vilja geta séð vel út um
glugga úr aftursætinu og það er
sannarlega hægt í Ford Fiesta.
Kostir
Hagkvæmur
Töff hönnun
Lipur í akstri
Gott verð
Umhverfisvænn
Frítt í stæði
Lítið farangursrými
Helstu upplýsingar
Ford Fiesta Trend
Beinskiptur, 5 dyra
Vél 1,0i
Hestöfl 100
Togkraftur 170
4,3 l/100 km í blönduðum akstri
CO2: 99 g/km
Lengd 3969 mm
Breidd 1722 mm
Farangursrými 290 lítrar
Verð frá 2.450.000 kr
Framendi Ford Fiesta var endurhannaður á síðasta ári og er bíllinn því enn rennilegri en áður. Ljósmynd/Hari
orð á því hvað hún sæi vel út um
gluggana úr aftursætinu.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is