Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Side 6

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1950, Side 6
4 SVEITARSTJÓRNARMÁL Sildarsöltun i Húsavik. mest undir komið. Sumartíminn var þar að- alsjósóknartíminn, en með hafnargerð hafa fengizt þar skilyrði til útgerðar allt árið, ef fiskur er á miðum. Aflasæld hefur verið mjög breytileg frá ári til árs. Talið er samt, að Húsavík hafi allgóð þorskveiðiskilyrði. Koli og ýsa aflast oft vel. Jafna beztu veiðisvæði Norðurlands- síldarinnar eru þar skammt undan. Hrogn- kelsaveiði á vorin, — stundum í stórum stíl. Vöðuselur var skotinn allmikið fyrr á ár- um. Róið var í selinn síðla vetrar og á vorin, en er nú að rnestu hætt. Ein tveggja rnanna snekkja fékk þó síðastliðið vor nálega 40 skotseli. Útgerð fiskimanna er eingöngu vélbátar. eins og sakir standa: 8 þilbátar frá 13—65 lestir, 26 opnir bátar rninni. Landbúnað stunda margir Húsvíkingar, flestir þó sem hjáverk. Túnrækt er mikil og setur hún hlýlegan gróðursældarsvip á bæinn á sumrin. Túnin niunu vera á tíunda hundrað dagsláttur. Úr- gangur sjávarafla hefur verið mikið notaður við ræktunina. Nautgripir voru fyrir nokkrum árum 140, en eru nú ekki nema um 90. Hefur þeim fækkað síðan mjólkursamlag var sett á stofn (1948). , Sauðfé var s. 1. vetur um 13 hundruð á fóðr- um. Hross um 30. Alifuglarækt talsverð. Garðrækt liafa flest heimili, (einkum eru kartöflur ræktaðar). Landbúnaðurinn í Húsavík veitir bæjar- búum mikið afkomuöryggi, þótt hann skili sjaldan taxtakaupi. Hann er sem hjáverk holl atvinnubótavinna til sjálfsbjargar og hefur þýðingarmikil uppeldisáhrif. Iðnaður fer vaxandi. Kaupfélagið rekur kembivélar, brauðgerð og pylsugerð. Þrjár trésmiðjur eru á staðnum, stein-

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.