Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Page 15

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Page 15
Menntamálaráðherra svarar fyrirspurnum um skólamál. Talið frá vinstri: Hörður Lárusson, fulltrúi í Skólarannsóknadeild menntamála- ráðuneytisins, Runólfur Þórarinsson, fulltrúi ( menntamálaróðuneytinu, dr. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, Indriði Þorláksson, full- trúi í menntamálaráðuneytinu, Birgir ísl. Gunnarsson, fundarstjóri, Póll Líndal, og fundarritarar Jón Þorgilsson, oddviti Rangárvalla- hrepps og Þorsteinn Hjálmarsson, oddviti Hofsóshrepps, og hjá þeim lengst til hœgri Unnar Stefánsson. Samtök félagsheimila Sveinbjörn Jónsson, fulltrúi Seltjarnarnes- hrepps á landsþinginu, flutti framsöguræðu með tillögu, sem liann hafði áður kynnt í 4. tbl. Sveitarstjórnarmála, um könnun á vilja og við- horfum sveitarstjórna til stofnunar sérstakra samtaka félagsheimila í byggðum landsins. Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar. Fyrirspurnir um skólamál Að morgni annars þingdags svaraði dr. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, fyrirspurnum þingfulltrúa um skólamál. Hóf menntamálaráð- herra umræðumar með stuttu yfirliti um helztu Jtætti fræðslumála, sem sveitarfélög og ríkisvald annast sameiginlega, en síðan báru fundarmenn fram fyrirspurnir. Tóku margir Jrátt í Jteim um- ræðum. Svaraði menntamálaráðherra framkomn- um spurningum, og með ráðherranum voru einn- ig í fyrirsvari fulltrúar úr menntamálaráðuneyt- inu og skólarannsóknadeild þess, og veittu þeir einnig upplýsingar um ýmis efni, sem eftir var leitað. Framkvæmd eignarnáms Eftir hádegi annan þingdaginn flutti Gaukur Jörundsson, prófessor, erindi um framkvæmd eignarnáms. Urðu um Jtað efni nokkrar urnræð- ur. Vonir standa til, að erindi Gauks Jörunds- sonar verði birt hér í tímaritinu innan skamms. Umræðufundur Seinast á dagskránni J^ennan dag var almenn- ur umræðufundur bæjarstjóra, sveitarstjóra og oddvita um sam'eiginleg hugðarefni. Hugmynd- in hafði verið sú, af hálfu stjórnar sambandsins, að þingheimur skiptist í deildir eftir áhugamál- um, þannig að bæjarstjórar og sveitarstjórar gengju saman í eina og oddvitar og aðrir fulltrúar strjálbýlishreppa í aðra, en niður- staða umræðna við upphaf fundarins varð á Jtá lund, að Jjingið hélt áfram fundi í einu lagi. Tóku margir til máls um hin ýmsu verkefni, sem sveitarstjórnum er á höndum, en ályktanir voru ekki gerðar. 221 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.