Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Blaðsíða 16

Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Blaðsíða 16
Álit nefnda Álit kjörnefndar Að morgni þriðja dags voru t'ekin til umræðu álit nefnda. Fyrst var tekið fyrir álit allsherjar- nefndar, og hafði Björn Friðfinnsson, bæjarstjóri orð fyrir nefndinni. Voru tillögur nefndarinnar allar samþykktar, hver í sínu lagi. Eru þær birt- ar á bls. 214. Fyrir fræðslunefnd hafði framsögu Sigurgeir Sigurðsson, sveitarstjóri í Seltjarnarneshreppi. Var álit nefndarinnar borið undir atkvæði í einu lagi og samþykkt einróma. Það birtist á bls. 216. Fyrir áliti skólakostnaðarnefndar mælti Ölvir Karlsson, oddviti Ásahrepps. Ályktun nefndar- innar var samþykkt samhljóða, eftir að smávægi- legar breytingar höfðu verið gerðar (bls. 218). Fyrir áliti fjárhagsnefndar mælti Birgir ísl. Gunnarsson, borgarfulltrúi. Lagði nefndin til, að ársreikningar sambandsins og Sveitarstjórnar- mála fyrir árin 1967, 1968 og 1969 hlytu samþykki þingsins, og var tillagan samþykkt einróma. Fyrir áliti tekjustofnanefndar mælti Bjarni Einarsson, bæjarstjóri. Tillaga nefndarinnar var síðan borin undir atkvæði og samþykkt m'eð öll- um atkvæðum gegn einu. Breyting á lögum sambandsins Skiptar skoðanir urðu á þinginu um tillögu stjórnarinnar, sem fjárhagsnefnd mælti með, um niðurfellingu framlags sveitarfélaga til sambands- ins. Eftir all miklar umræður dró stjórnin fyrri tillögu sína til baka, en lagði fram nýja, sem að loknum umræðum var samþykkt með yíirgnæf- andi meirihluta atkvæða. Tillagan var á þessa leið: „Við 16. gr. laga sambandsins bætist ný máls- grein, er verði 2. málsgr. svohljóðandi: Árgjaldi sveitarfélaga samkvœmt þessari grein, sem er 1 liróna á íbúa hvers sveitar- félags, þó aldrei lœgra en 250 kr., skal varið til að standa undir ferðakostnaði fulltrúa á lands- þing eftir nánari ákvörðun stjórnar sambands- ins.“ Jón Erl. Guðmundsson, sveitarstjóri í Búða- hreppi, liafði orð fyrir tillögum kjörnefndar urn skipun stjórnar, fulltrúaráðs og endurskoðenda sambandsins til næstu fjögurra ára. Tillaga kjörnefndarinnar hlaut samhljóða samþykki landsþingsins og er birt á bls. 224. Þingslit Páll Líndal, nýkjörinn formaður sambandsins, þakkaði þingheimi auðsýnt traust fyrir að endur- kjósa sig sem formann. Þakkaði hann fráfarandi stjórnarmönnum, þ'eim Hjálmari Ólafssyni og Vigfúsi Jónssyni, langt og heilladrjúgt starf í þágu sambandsins. Einnig þakkaði hann fráfar- andi fulltrúaráðsmönnum störf þeirra. Jónas Guðmundsson, fyrri formaður sam- bandsins og fyrsti heiðursfélagi þess, kvaddi sér hljóðs og flutti Jjinginu ávarp og þakkarorð. Sýndi þingheimur Jónasi Guðmundssyni hug sinn með langvarandi lófaklappi. Sæmdir heiðursmerkjum Hans Opstad, fulltrúi Norges Herredsforbund, flutti ávarp fyrir hönd hinna erlendu gesta og þakkaði góðan viðurgjörning, meðan á þingi stóð. Kvaddi hann til þá Pál Líndal, formann sambandsins og Magnús E. Guðjónsson, frarn- kvæmdastjóra, og sæmdi þá heiðursmerki norsku sveitarfélagasambandanna, Norges Byforbund og Norg'es Herredsforbund. Formaður Jiakkaði veittan heiður, Jnngfull- trúum og starfsfólki Jjingsins störf þeirra og sleit síðan jnnginu. Kvöldverðarhóf Að kvöldi seinasta jnngdags buðu félagsmála- ráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík þing- fulltrúum til sameiginlegs kvöldverðarhófs að Hótel Sögu. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.