Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Page 25
Bæjarstjórn ísafjarSarkaupstaðar samþykkti á fundi
12. ágúst aS kjósa 5 manna nefnd til viSræSna viS
hreppsnefnd Eyrarhrepps um sameiningu sveitarfélag-
anna. En áSur hafSi hreppsnefnd Eyrarhrepps lýst sig
fylgjandi því, aS málinu yrSi til lykta ráSiS sem fyrst.
GerSi hreppsnefnd Eyrarhrepps samþykkt um þaS
á fundi hinn 14. marz, nokkru eftir aS fram hafSi fariS
skoSanakönnun um afstöSu íbúanna tii hugsanlegrar
sameiningar sveitarfélaganna viS almenna atkvæSa-
greiSsla um máliS hinn 1. marz.
NiSurstöSur skoSanakönnunarinnar voru á þá leiS,
aS meiri hiuti kjósenda í báSum sveitarfélögunum
lýsti sig fylgjandi sameiningu, i Eyrarhreppi 104 gegn
35, en á ísafirSi 366 gegn 256. í Eyrarhreppi greiddu
65% atkvæSa, en á ÍsafirSi 42%.
AtkvæSagreiSsla þessi var lokaþáttur í athugun sam-
starfsnefndar milli sveitarfélaganna, sem staSiS hafSi
yfir frá árinu 1966, en áSur hafSi veriS efnt til al-
mennra sveitarfunda bæSi í Hnífsdal og á ísafirSi.
Á fundum þessum höfSu framsögu þeir Jóhann Ein-
varSsson, fyrrv. bæjarstjóri þar og GuSmundur Ingólfs-
son, núv. oddviti Eyrarhrepps. Auk þeirra sat fundina
Unnar Stefánsson af hálfu framkvæmdanefndar Sam-
einingarnefndar sveitarfélaga.
ÁSur en til fundanna var boSaS, var litlu kynning-
arriti dreift meSal íbúa sveitarfélaganna. f því var
grein eftir GuSfinn Magnússon, þáverandi sveitarstjóra
Eyrarhrepps, og siSan bæjarfulltrúa á ísafirSi.
f meSfylgjandi grein GuSfinns eru raktir helztu kost-
ir og gallar hugsanlegrar sameiningar sveitarfélaganna.
Hver málaflokkur tekinn fyrir, veginn og metinn á óhlut-
drægan hátt. Án efa þykir sveitarstjórnarmönnum ann-
ars staSar forvitnilegt aS kynna sér niSurstöSur þess-
arar fyrstu og rækilegustu athugunar, sem fram hefur
fariS á sameiningu sveitarfélaga 'nú og hvernig þær
niSurstöSur eru fengnar.
Inngangur
Óhætt mun að fullyrða, að hin fyrirhugaða
sameining Eyrarhrepps og ísafjarðarkaupstaðar
eigi að geta orðið báðum þessuni sveitarfélögum
til mikils hagræðis og eflingar. ísafjarðarkaup-
staður er nú af þeirri stærð, að bærinn þolir all-
verulega íbúafjölgun, án þess að ýmiss rekstrar-
kostnaður aukist til nokkurra muna. Stjórnunar-
SVEITARSTJÓRNARMÁL