Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Qupperneq 31
Elliheimli ísafjarðar hefur fram til þessa tekið
við vistmönnum úr Eyrarhreppi. Sameiningin
knýr enn fastar á um, að hafizt verði handa um
byggingu nýs elliheimilis á ísafirði.
Löggæzla
Nú eru sex lögregluþjónar á ísafirði, en lög-
gæzla í Eyrarhreppi hefur ævinlega verið rekin
sem aukastarf. Við stækkun sveitarfélagsins er
hugsanlegt að bæta við einum lögregluþjóni með
fullri þátttöku ríkissjóðs, 50% af kostnaði. Slík
ráðstöfun mun hækka löggæzlukostnað að mun
frá Jdví, sem nú er. í öðru lagi er hugsanlegt að
hafa Jietta í óbreyttu formi Jrannig, að laus-
ráðnir verði lögreglujrjónar í Hnífsdal, sem sinni
því meginverkefni að annast löggæzlu í sam-
bandi við dansleikjahald í Félagsheimilinu.
Eldvarnir
Slökkvilið ísafjarðar er nú vel búið bæði að
mannafla og tækjakosti, en auk ísafjarðarbæjar
Jrarf J^að að annast slökkvistarf í Skutulsfirði,
enda er viðbúnaður þar enginn. Mun því engin
breyting verða þar á við sameiningu. Hins vegar
er bæði slökkvilið og slökkvibifreið í Hnífsdal,
Jrannig, að eldvarnir þar eru nú í góðu lagi.
Miðað við íbúafjölda eftir sameiningu ætti ein
vel búin slökkvistöð, eins og nú er fyrir hendi á
ísafirði, að vera fullnægjandi, en vegna fjarlægð-
ar Hnífsdals frá ísafirði mun eftir sem áður
nauðsynlegt að hafa sérstaka slökkvistöð þar.
Hafnamál
ísafjarðarhöfn er nú Jregar lífhöfn bátaflota
Hnífsdælinga, er nýtur þar sömu fyrirgreiðslu og
réttinda og heimabátar. Mun Joví engin breyting
verða Jrar á við sameiningu.
Ástand Hnífsdalsbryggju er þannig nú, að eigi
hún að standa áfram, er nauðsyn endurbóta á
henni. Álit hafnarmálastjóra er það, að ekki eigi
að verja miklum fjármunum í Hnífsdalsbryggju
vegna nálægðar ísafjarðarhafnar.
Komið hefur fram sú hugmynd, að bryggjunni
ísafjarðarflugvöllur á Skipeyri — í Eyrarhreppi.
Nýtt félagsheímili í Hnífsdal.
Bryggja og hraðfrystihús eru í Eyrarhreppi milli Hnífsdals
og ísafjarðar, þangað sækir verkafólk frá ísafirði vinnu.
237
SVEITARSTJÓRNARMÁL