Sveitarstjórnarmál - 15.12.1970, Blaðsíða 54
og hækkun gjalds (gjaldstigs). Þá
er óheimilt að telja á gjaldárinu
1971 aðstöðugjaldskyldan atvinnu-
rekstur (vörur eða þjónustu) sem
eigi var aðstöðugjaldskyldur á
þessu gjaldári. Sveitarfélög, sem
eigi notfærðu sér heimild til álagn-
ingar aðstöðugjalds á gjaldárinu
1970, hafa J>ví eigi rétt á að not-
færa sér þessa heimild á gjaldárinu
1971. Ríkisstjórnin getur Jjó veitt
undanþágu frá þessu.
Ríkisskattstjóri hefur með bréfi
lagt fyrir skattstjóra að athuga sér-
staklega, hverja einstaka aðstöðu-
gjaldstilkynningu gjaldársins 1971
með tilliti til Jjess, hvort um er
að ræða hækkun frá gjaldárinu
1970 og kanna, ef um hækkun er
að ræða, hvort samþykki ríkis-
stjórnarinnar hafi verið fengið. Ef
ekki fylgja fullnægjandi gögn um
að slíkt samþykki hafi verið feng-
ið, er óheimilt að auglýsa aðstöðu-
gjaldsstiga viðkomandi sveitar-
félags.
Upjilýsingar þessar eru í sant-
ræmi við bréf ríkisskattstjóra til
skattstjóra, sem sambandið liefur
fengið afrit af.
Skattvísitalan
árið 1971
168 stig
Fjármálaráðherra hefur ákveðið
og tilkynnt sambandinu skattvísi-
tölu ársins 1971. Er vísitalan 168
stig, miðað við gjaldárið 1965 =
100, en skattvísitala ársins 1970 er
140 stig.
Samkvæmt 1. gr. laga nr. 48,
1970, skal skylt að hækka eða lækka
viðmiðunartölur tekjuskattslaga,
skattþrep og fleira í samrænti við
skattvísitölu, sent ákveðin skal af
fjármálaráðherra, að fengnum til-
lögum kaujjlagsnefndar, liagstofu-
stjóra og ríkisskattstjóra. Með
bráðabirgðalögum nr. 37, 1966
hafði verið ákveðið, að skattvísitala
skyldi einnig taka til laga um
tekjustofna sveitarfélaga með Jjeim
260 hætti, að persónufrádráttur og
SVEITARSTJÓRNARMÁL
skattJjrejj breytist samkvæmt
henni.
Persónufrádráttur til tekjuút-
svars og skattJjrejj vegna tekjuút-
svars einstaklinga og hjóna verða
samkvæmt skattvísitölu Jtessari á
árinu 1971 sem hér greinir:
Persónufrádráttur til tekjuút-
svars.
Hjá einstaklingum . kr. 58.800,00
Hjá hjónum ........... kr. 84.000,00
Fyrir hvert barn . . kr. 16.800,00
Skattþrep vegna tekjuútsvara
einstaklinga og lijóna:
Af fyrstu 33.600,00 greiðist 10%.
Af 33.600,00 kr. - 100.800,00 kr.
greiðast 3.360,00 kr. af kr. 33.600,00
og 20% af afgangi.
Af 100.800,00 kr. og yfir greiðist
16.800,00 kr. af kr. 100.800,00 og
30% af afgangi.
Af þessari breytingu á skattvísi-
tölu leiðir, að útsvarsstigar þeir,
sem sambandið gaf út á síðastliðnu
vori fyrir árið 1970, falla úr gildi
og verða ekki nothæfir við álagn-
ingu útsvara á árinu 1971.
Sambandið mun gefa út nýja
útsvarsstiga samkvæmt þessari
skattvísitölu og senda Jtá sveitar-
stjórnum með sama hætti og áður
hefur verið gert, Jtegar breyting
hefur orðið á skattvísitölu.
Ákveða þarf um
fyrirframgreiðslu útsvara
fyrir 15. janúar 1971
Sveitarstjórnir, sem ætla á árinu
1971 að nota sér lieimild 47. gr.
tekjustofnalaganna um fyrirfram-
greiðslu útsvara, Jjurfa að setja unt
]>að reglur fyrir 15. janúar n.k. „og
auglýsa J)ær á J)ann liátt, sem
venjulegt er um almennar auglýs-
ingar á hverjum stað“, eins og seg-
ir í umræddri lagagrein.
Rétt er að taka fram, að sam-
])ykkt um fyrirframinnheimtu út-
svara þarf sveitarstjórn að gera ár-
lega, fyrir eitt ár í senn.
Hafi sveitarstjórn sett slíkar
reglur um fyrirframgreiðslu út-
svara, ber útsvarsgjaldendum að
greiða á fimnt gjalddögum, 1.
febrúar, 1. marz, 1. apríl, og 1.
maí og 1. júní fjárhæð, sem nemur
allt að helmingi þess útsvars, sem
honum bar að greiða síðast liðið
ár. Eftirstöðvar álagðs útsvars árs-
ins 1971, að frádregnu því, sem
þannig hefur verið greitt, ber
gjaldendum síðan að greiða með
allt að fimm jöfnum greiðslum á
tímabilinu frá 1. ágúst til 1. des-
ember.
Setji sveitarstjórn ekki reglur
um fyrirframgreiðslu útsvara, eru
gjalddagar útsvara tveir, 15. júlí
og 15. október.
Verðstöðvun
Samkvæmt lögunt um ráðstafan-
ir til stöðugs verðlags og atvinnu-
öryggis, sem samj)ykkt voru á Al-
]>ingi nýlega, ríkir verðstöðvun á
landi hér frá 1. nóvember s.l. M.a.
er bönnuð hækkun á verði hvers
konar J)jónustu, sem sveitarfélög
og stofnanir J)eirra láta í té.
í 7. gr. laganna segir á ])essa leið:
„Ríkisstjórninni er heimilt að
ákveða, að álagningarstigar útsvara
og aðstöðugjalds samkvæmt lögum
nr. 51 1964, með síðari breytingum,
megi eigi liækka frá því, sem á-
kveðið var í hverju sveitarfélagi
1970, nema með sam])ykki ríkis-
stjórnarinnar. Skal liækkun álagn-
ingarstiga þá eigi leyfð, nenta rík-
isstjórnin telji hana óhjákvæmilega
vegna fjárhagsafkomu hlutaðeig-
andi sveitarfélags.“
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
beita heimildarákvæði þessu.
í 1. tbl. 1971 verður fram haldið
þessum samtíningi með athuga-
semdum. M.a. verður minnt á ný
ákvæði um framlög sveitarfélaga til
verkamannabústaða í 20. gr. 1. nr.
20. 1970 um Húsnæðismálastofnun
ríkisins.
Áætlanir þær og útreikningar,
sem gerðir eru i þessum dálki, eru
á ábyrgð tímaritsins, en ekki ann-
arra. Unnar Stefánsson.