Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 35
NÁTTÚRUHAMFARIR
I
I
um stöðum á mjög skömmum tíma, þar á meðal í Súða-
víkurhlíð. Samkvæmt gögnum Veðurstofu íslands hefur
aldrei í 40 ár verið jafn hvasst í jafn langan tíma í norð-
an- og norðaustanátt. Vindhraði í Æðey mældist 11
vindstig kl. 6 um morguninn. Vindhraðametið á Hvera-
völlum féll sömu nótt. Jón Gunnar Egilsson, starfsmað-
ur snjóflóðavama Veðurstofunnar, segir í
fréttariti Landsbjargar að snjóflóðið hafi
byrjað efst í klettabelti fyrir ofan byggð-
ina, að það hafi náð allt að 400 metra
breidd og að 60-80 þúsund tonn af snjó
hafi mnnið með 150 km/klst. hraða niður
hlíðina og skollið á byggðinni.
Tvö snjóflóð samanlagt ámóta stórt og
þetta féllu að kvöldi sama dags úr Traðar-
gili, nokkru innan við aðalbyggðina. Það
eyðilagði nokkur hús sem höfðu verið
rýmd. Þar varð því ekki manntjón. Víðar
var hvasst og áköf snjókoma um svipað
leyti. Snjóflóð féllu við ísafjörð 16. og 17.
janúar og hinn 18. janúar féll snjóflóð á
útihús við bæinn Grund í Reykhólasveit
og varð manni að bana. Tvö íbúðarhús
skemmdust á Flateyri sama dag.
Erfiöar björgunaraögeröir
Björgunaraðgerðir við aðstæður sem að
framan er lýst voru erfiðar. Björgunar-
sveitarmenn komu til Súðavíkur víða af
Vestfjörðum og komu á staðinn með
Fagranesi og fleiri skipum. Varðskipið Týr kom frá
Reykjavík með 66 björgunarsveitarmenn, 10 lækna og
hjúkrunarfræðinga og sérþjálfaðan flokk frá Slökkviliði
Reykjavíkur. I kjölfarið kom skipið Engey með annað
eins lið björgunarmanna og Múlafoss fór frá Skaga-
strönd og var þrjá sólarhringa á leiðinni vestur. Öll
A vettvangi 24. janúar. A myndinni eru, taliö frá vinstri, Póröur Skúlason, Heiöar
Guöbrandsson, hreppsnefndarmaöur í Súöavíkurhreppi, Salvar Baldursson vara-
hreppsnefndarmaöur, Friögeröur Baldvinsdóttir hreppsnefndarmaöur, Porsteinn
Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar á ísafiröi, Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Kristján Pór Júlíusson, bæjarstjóri á ísafiröi.
9 7