Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 64
ERLEND SAMSKIPTI
Heimsþing Alþjóða-
sambands sveitarfélaga
3.-7. september í Haag
1 U I. A
W O R 1. D
CONGRI
1111 llAGUl
1 9 9 5
Heimsþing Alþjóðasambands
sveitarfélaga (IULA) verður haldið í
Haag í Hollandi dagana 3.-7. sept-
ember nk.
Þetta er hið 32. þing IULA en
þing þess eru haldin annað hvert ár
til skiptis í hinum ýmsu heimsálf-
um. Yfirskrift þingsins í ár er „Leið
sveitarfélaganna til nýsköpunar í al-
þjóðlegu samstarfi".
Fjallað verður í erindum og
vinnuhópum um vaxandi þátttöku
sveitarfélaga í samskiptum milli
landa, í formi vinabæjatengsla, ým-
iss konar ráðgjafarstarfs og tækniað-
stoðar sveitarfélaga í löndum sem
lengra eru komin í þágu þeirra sem
skemmra eru á veg komin, bæði í
þróunarlöndunum í suðri og í ný-
frjálsu rikjunum í Austur-Evrópu.
I umræðuhópum verður rætt um
húsnæðismál, umhverfismál og
orkuspamað, tekjustofna sveitarfé-
laga og hag þeirra. Kynnt verða
ýmis verkefni sem unnið er að og
tengjast einstökum umræðuefnum.
Á einum deginum gefst þátttakend-
um kostur á ferðum til borga í
Hollandi, þar sem heimamenn
kynna athyglisverðar nýjungar.
Kynntar verða nýjungar á sviði hús-
næðismála, orkuspamaðar, fræðslu-
og félagsmála, í almenningssam-
göngum og sorpeyðingu.
Á lokafundi þingsins verður lögð
fram til samþykktar tillaga að álykt-
un kennd við árið 2000 um alþjóð-
legt samstarf sveitarfélaga. Þá mun
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
veita viðtöku ályktun þingsins og
flytja ávarp.
Sambandið á aðild að Alþjóða-
sambandi sveitarfélaga en þátttaka á
þinginu er heimil öllum sveitar-
stjómarmönnum. Allt efni sem flutt
verður á ráðstefnunni verður þýtt
samtímis á ensku, frönsku, þýsku og
spænsku.
Þátttökugjald er 49 þús. ísl.
krónur.
Æskilegt væri að einhver þátttaka
yrði af hálfu íslenskra sveitarstjóm-
armanna í þinginu.
Vörusýning og ráðstefna
um tæknimál sveitar-
félaga í Gautaborg
28,—31. ágúst
28 - 31
augusti
■i • w.
KommunalTeknik
1995
<gb
Ecology
Samband sænskra sveitarfélaga
og Samtök tæknimanna hjá sveitar-
félögunum í Svíþjóð halda vömsýn-
ingu og ráðstefnu um tæknimál
sveitarfélaga í vörusýningarhöllinni
í Gautaborg 28.-31. ágúst nk.
I raun verða samtímis haldnar
fjórar ráðstefnur undir einni yfir-
skrift, Vistfræði. Ein þeirra ber sam-
nefnda yfirskrift, önnur kallast Um-
hverfisvemd og hinar tvær Tækni-
mál sveitarfélaga.
Af mörgum dagskrárefnum eru
áberandi liðir eins og vistfræðileg
sjónarmið við landnýtingu og val á
byggingarlandi, öflun neysluvatns,
umhverfisvænar samgöngur, sorp-
hirða og sorpförgun, siðfræði og
lífsstíll, fræðsla og upplýsingatækni
varðandi umhverfismál, útflutningur
á tækniþekkingu á sviði umhverfis-
mála og samskipti við sveitarfélög í
öðrum Evrópuríkjum, einkum í
Mið- og Austur-Evrópu.
Alþjóðleg ráðstefna um
tæknimál sveitarféiaga
6.-9. september
M U N I CIPA L
TECHNICAL
S E R V I C E S
UNDERTHREAT IN
E U R O P E
Alþjóðleg ráðstefna um tæknimál
sveitarfélaga verður haldin í
Helsinki og St. Pétursborg daga 6.
til 9. september í haust. Ráðstefnan
er haldin á vegum Sambands
finnskra sveitarfélaga og borgar-
stjóma Helsinki og St. Pétursborgar
og er ætluð stjómmálamönnum og
tæknimönnum sveitarfélaga í Aust-
ur- og Vestur-Evrópu. Titill hennar
er Ognun við tæknilega þjónustu
sveitarfélaga í Evrópu (Municipal
Technical Services under Threat in
Europe). Ráðstefnunni er ætlað að
vera vettvangur fyrir kjöma fulltrúa
í sveitarstjórnum, einstaklinga úr
rA
J *
1 26