Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 49
ÝMISLEGT
Atkvæðafjöldi eftir vægi máls
Björn S. Stefánsson, dr. scient.
í grein í Sveitarstjómarmálum 3.
tbl. 1994 lýsti ég raðvali, aðferð til
að kanna skoðanir og greiða at-
kvæði. Hún hefur það sér til ágætis
að það truflar ekki þótt fleiri en tveir
kostir séu í málinu. Hins vegar geta
menn ekki tjáð með henni neitt um
mikilvægi málsins. Maður getur
ekki sagt til um það hvort maður
telji það afbrigði sem maður kýs
helst miklu betra en næsta afbrigði
eða nokkuð líkt. Þá getur maður
ekki lýst því hvort maður lætur sig
miklu varða það mál sem er til af-
greiðslu eða er áhugalítill. Hér verð-
ur sagt frá aðferð sem hefur slíka
eiginleika. Verið er að reyna hana.
Þær tilraunir eru þáttur í sama rann-
sóknarverkefni og raðval, og eru,
eins og getið var um í áðumefndri
grein, á vegum vísindaráðanna á
Norðurlöndum.
Hér skal aðferðinni, atkvæða-
markaði, lýst, sagt frá fyrstu reynslu
sem fengist hefur í búnaðarsam-
böndum landsins og athugað hvem-
ig hún megi nýtast á vettvangi sveit-
arstjóma.
Eiginleikar atkvæöamark■
aóar
Dreifing áhrifa í mannlegu félagi
í mannlegu félagi þykir gott að
hver fái að ráða því sem hann lætur
sig helst varða. Fyrr eða síðar hljóta
að koma upp þau mál að sjónarmið
rekist á. Með atkvæðamarkaði eiga
mál til lengdar að ráðast þannig að
jafnvægi verði í áhrifum, fyrst
þannig að hver ráði því sem hann
lætur sig helst varða og svo þannig
að í ágreiningsmálum fari ýmist
hver ræður niðurstöðu.
Fyrirkomulagið
• í hendi hvers eru atkvæði sem
berast í reikning hans eins og jafn
tekjustraumur, t. d. eitt á dag.
• Hver og einn býður fram mis-
mörg atkvæði í máli eftir mál, mörg
á mál sem hann telur brýnt, ekkert í
máli sem hann lætur sig engu varða.
• f einstöku máli geta verið fleiri
eða færri afbrigði. Málsaðili raðar
þeim í samræmi við áhuga sinn.
Hann metur fyrst hversu mörg at-
kvæði hann vill bjóða fyrir það af-
brigði sem hann kýs helst. Síðan
býður hann atkvæði á afbrigðin í
lækkandi röð niður í ekkert atkvæði
á neðsta afbrigðið.
• Það afbrigði sem fær flest at-
kvæði sigrar.
• Þeir sem stóðu að sigrinum
greiða fyrir jafnmörg atkvæði og
andstæðingar þess afbrigðis buðu.
Mál sem allir fagna kostar því ekki
neitt atkvæði.
Einkenni íhlutunar með mark-
aðsatkvæðum
• Ef mál hefur vakið andstöðu
standa þeir sem unnu eftir með færri
atkvæði en áður. Þeir sem urðu und-
ir geta betur sætt sig við að mál
þeim andstætt hafi náð fram að
ganga, þar sem þeir eru betur settir
eftir í atkvæðaeign miðað við þá
sem unnu málið. Til lengdar má
ætla að jafnvægi náist.
• Það borgar sig, talið í atkvæð-
um, að leita slíkrar lausnar í máli
sem vekur litla andstöðu.
• Það borgar sig að sýna sann-
girni í mótun máls og atkvæða-
greiðslu, þar sem ætla má að það
veki sanngjarnan hug og að slík
framganga skili sér í minni at-
kvæðakostnaði.
• Sérstaða sem aðrir hafa á móti
kostar atkvæði (nái hún fram að
ganga). Tillögur um samræmingu
má hafa misjafnlega einstrengings-
legar - atkvæðagreiðslan leiðir í ljós
misjafnan stuðning.
Fyrsta reynslan
Markaðsatkvæðum er nú beitt við
að kanna skoðanir stjóma búnaðar-
sambandanna í landinu til ýmissa
mála. Búnaðarsamböndin eru hér-
aðssambönd búnaðarfélaga hrepp-
anna, 15 talsins. Það fjölmennasta
er meira en tífalt fjölmennara en
fjögur þau fámennustu. Þannig er
staðið að verki að ég móta mál sem
samtökum bænda hefur ekki tekist
að ljúka og legg þau fyrir til at-
kvæðagreiðslu. Búnaðarsamböndin
hafa ekki verið sameiginlegur vett-
vangur til að fjalla um mál til álykt-
unar. Því varð það að vera hlutverk
mitt að setja mál á dagskrá. Ég hlýt
auðvitað að móta þau með þeim af-
brigðum sem helst þykja koma til
greina. Miðað var við að mál yrðu
afgreidd á þriggja mánaða fresti og
að hvert búnaðarsamband fengi í
tekjur eitt atkvæði á hvert hundrað
félagsmanna á mánuði. Astæður
stjórnarmanna búnaðarsamband-
anna til að koma saman á fund eru
1 1 1