Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 31
SOFN
armann Eiðahrepps. Þriðji maðurinn kom frá Norður-
Múlasýslu og var það Helgi Gíslason, sýslunefndarmað-
ur Fellahrepps.
Tveir menn voru frá suðursýslunni vegna þess að hún
kostar safnið að 2/3 hlutum en norðansýslan átti þriðj-
ungsaðild og kaus einn mann í stjómina í samræmi við
það. Aður höfðu sýslumar jafnan átt helmingsaðild að
sameiginlegum málum og stofnunum, t.d. Eiðaskóla, en
í þetta sinn var skipt hlutum út frá mannfjölda í hvorri
sýslu um sig.
Safnstjóm skyldi sjálf kjósa formann, ráða safnvörð,
taka við bókagjöfinni og ganga frá skilyrðum hennar
vegna, annast viðhald og rekstur safnhússins og safns-
ins, ráða mann til að safna skjölum, hafa samband við
þjóðskjalavörð, eftir því sem við ætti, og standa skil á
reikningum safnsins, semja starfsskýrslu og gera fjár-
hagsáætlun.
Formaður var kosinn Jón Kristjánsson og til skjala-
söfnunar ráðinn Eiríkur Eiríksson, Dagverðargerði, sem
fór um allmargar sveitir og varð vel ágengt. Safnvörður
var ráðinn Armann Halldórsson, frá 1976.
Safnið var formlega stofnað 17. apríl 1976 á áttræðis-
afmæli Halldórs Ásgrímssonar að viðstöddum m.a.
menntamálaráðherra, Vilhjálmi Hjálmarssyni, sonum
þeirra Halldórs Ásgrímssonar og Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur, fulltrúum sýslnanna o.fl. Bókasafnið var
þá komið í hillur óflokkað.
Bókasafnið var metið á 8 millj. króna samkvæmt
bókaverði 1976 og hefur árlegt framlag fylgt bókaverði
síðan, útreiknuðu frá vísitölu bóka árlega. I sérstaka
bókasafnsstjórn voru kosnir Jón Kristjánsson, Helgi
Gíslason og fulltrúi gefenda er Ámi Halldórsson, lög-
fræðingur á Egilsstöðum. Ámi er sonur gefenda, Hall-
dórs og Önnu Guðnýjar. Hann tók við safninu eftir dag
Halldórs, varðveitti um stund og flutti það austur.
I bókasafninu em einkum söguleg rit um Islandssögu
og byggðarsögu Austurlands sérstaklega (um hið síðar-
nefnda um 100 bækur að öllu eða miklu leyti). Þar em
íslensk tímarit flest, heildarútgáfur margra rithöfunda og
skálda, fomsögur, þjóðsögur og ljóðasöfn eldri skálda,
ævisögur, byggðarrit, sögur stofnana og félaga - og við
hefur bæst fleira af þessu tagi, hagskýrslur, Alþingis- og
Stjómartíðindi, bókmenntafræðirit, dagblöð og viku-
blöð, gömul og ný, íslensk og sérstaklega austfirsk, al-
fræðibækur og ættfræðirit. Að gjöf hefur safnið fengið
m.a. Alþingistíðindi frá upphafi frá Sigurði Blöndal og
fleirum, Stjómartíðindi úr búi Guttorms Pálssonar frá
Hallormsstað. Bókakaup em að mestu miðuð við heim-
ildagildi í sögu en fleira flýtur með.
Sigurður Óskar Pálsson tók við starfi safnvarðar 1984
og í stjórn 1988 voru kjörnir Kristinn Kristjánsson,
skólastjóri á Eiðum, sýslunefndarmaður frá 1982, í stað
Ragnars H. Magnússonar, og séra Þorleifur Kristmunds-
son, sýslunefndarmaður Fáskrúðsfjarðarhrepps, í stað
Jóns Kristjánssonar, frá 1987. Kristinn hefur verið for-
maðurfrá 1985.
Samþykkt var í sýslunefndum 1986 að safnið yrði
þátttakandi í byggingu safnahúss á Egilsstöðum, sem nú
er í smíðum, eins og áður segir.
Árið 1987 benti Jón Kristjánsson á það á sýslufundi að
taka yrði málefni safnsins til sérstakrar umfjöllunar, áður
en sýslunefndir yrðu lagðar niður á árinu 1989.
I umræðum á síðasta sýslunefndarfundinum 1988 bar
Vilhjálmur Hjálmarsson fram eftirfarandi tillögu:
„Sýslunefnd Suður-Miilasýslu vœntir þess að héraðs-
nefnd í Mídaþingi veiti öflugt hrautargengi þeim menn-
ingarmálum sem Múlasýslur hafa haft með höndum und-
anfarin ár.
Samþykkt samhljóða."
Eftirmáli
Þegar sýslunefndimar voru lagðar niður tók héraðs-
nefnd Múlasýslna við skjalasafninu. Nokkru fyrr var
bygging safnahúss fyrirhuguð og hún skyldi hýsa auk
skjalasafnsins Minjasafn Austurlands og Bókasafn Hér-
aðsbúa (héraðsbókasafn).
Til þess að létta byggingarkostnað var hús héraðs-
skjalasafnsins selt árið 1988 og leigt aftur safninu.
Nýtt hús er nú í smíðum og fullgerður sá hluti þess
sem hýsa mun áðumefnd söfn í byrjun. Síðan, þegar um
þau þrengist, verður væntanlega haldið áfram bygging-
unni.
Sigurður Óskar Pálsson gegnir enn í ársbyrjun 1995
stöðu safnvarðar. Stjóm safnsins var óbreytt til 1989 en
þá voru kosin í stjóm Kristinn Kristjánsson (endurkosinn
formaður), Amdís Þorvaldsdóttir og Hrafnkell A. Jóns-
son. Árið 1992 var stofnað byggðasamlag um safnið og
greiða nú sveitarfélög á svæðinu rekstur þess milliliða-
laust og eru öll aðilar að safninu. I núverandi stjóm þess
sitja: Finnur N. Karlsson, hreppsnefndarmaður í Valla-
hreppi, sem er formaður, Ambjörg Sveinsdóttir, formað-
ur bæjarráðs á Seyðisfirði, féhirðir, Smári Geirsson, for-
seti bæjarstjómar Neskaupstaðar, varaformaður, og þeir
Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpavogi, og Geir
Hólm, safnvörður Sjóminjasafns Austurlands á Eskifirði,
meðstjómendur.
93