Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 42
HAFNAMAL
25. ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga í Stykkishólmi
25. ársfundur Hafnasambands
sveitarfélaga (HS) var haldinn í
Stykkishólmi 6. og 7. október 1994.
Sturla Böðvarsson, formaður sam-
bandsins, setti fundinn og ávörp
fluttu Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra og Ellert Kristinsson, for-
seti bæjarstjómar Stykkishólmsbæj-
ar.
Fundarstjórar voru Pétur Agústs-
son, formaður hafnarnefndar í
Stykkishólmi, og Magnús Stefáns-
son, sveitarstjóri í Grundarfirði, en
fundarritarar Friðrik Karlsson, þjón-
ustufulltrúi hjá Snæfellsbæ, og Val-
garð S. Halldórsson, atvinnu- og
ferðamálafulltrúi héraðsnefndar
Snæfellinga.
Formaður HS, Sturla Böðvarsson,
flutti skýrslu fráfarandi stjórnar og
gjaldkerinn, Þorvaldur Jóhannsson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði, gerði grein
fyrir ársreikningum sambandsins og
kynnti tillögur um fjárhagsáætlun
og árgjald komandi rekstrarárs.
Hannes Valdimarsson, hafnar-
stjóri í Reykjavík, kynnti tillögu
stjómarinnar um að gjaldskrá hafna
hækkaði um 3,5% frá 1. janúar
1995 og var sú tillaga samþykkt á
fundinum, eftir umfjöllun í gjald-
skrámefnd.
Ólafur M. Kristinsson, hafnar-
stjóri í Vestmannaeyjum, gerði
grein fyrir tillögu stjómarinnar um
hafnaáætlun og framlög ríkisins til
hafnargerðar.
Gylfi Isaksson verkfræðingur
fylgdi úr hlaði skýrslu er hann hafði
tekið saman og lögð var fyrir fund-
inn um fjárhag og gjaldskrár hafna.
Þórður Ageirsson, forstjóri Fiski-
stofu Islands, flutti erindi um sam-
starf Fiskistofu og hafnanna.
Kristján Pór Júlíusson,
bæjarstjóri á ísafiröi, nýr
formaöur.
Þjónusta hafnanna viö
fiskiskipaflotann
A fundinum var sérstakur dag-
skrárliður um þjónustu hafnanna við
fiskiskipaflotann, hvernig megi
bæta hana og hverju breyta. Um það
efni fjölluðu Guðmundur Smári
Guðmundsson, útgerðarmaður í
Grundarfirði, sem fulltrúi Lands-
sambands ísl. útgerðarmanna, Bene-
dikt Valsson, framkvæmdastjóri
Fannanna- og fiskimannasambands
Islands, sem fulltrúi sjómannasam-
takanna, og Páll Ingólfsson, formað-
ur stjórnar Fiskmarkaðar Breiða-
fjarðar, frá Samtökum fiskmarkaða.
Frá Vita- og hafnamála-
stofnun
Embættismenn Vita- og hafna-
málastofnunar höfðu framsögu um
helstu verkefni stofnunarinnar. Her-
mann Guðjónsson vita- og hafna-
málastjóri kynnti breytingar sem
gerðar höfðu verið á skipulagi
stofnunarinnar og ný hafnalög. Jón
Levy Hilmarsson. forstöðumaður
tæknisviðs, fjallaði um undirbúning
og útboð framkvæmda á árinu 1994,
hafnaáætlun 1995-1998 og um
verkefnið „Hafnarþarfir", sem er út-
tekt á notkun og ástandi hafna
landsins og þeirri aðstöðu sem þær
geta boðið viðskiptavinum sínum.
Benedikt Arnason, forstöðumaður
skrifstofusviðs, ræddi um uppgjör
framkvæmda við hafnarmannvirki
1994 og urn hafnabótasjóð.
Umræður urðu um öll þessi efni.
Ályktanir fundarins
• I ályktun var því beint til stjóm-
ar Hafnasambandsins að fylgjast vel
með þróun tekna af aflagjaldi og
stuðla að því að safna og dreifa upp-
lýsingum um fiskverð á einstökum
landsvæðum og landinu í heild.
• Því var beint til stjórnar sam-
bandsins að hún afli lögfræðilegs
álits á rétti hafnarsjóða til lögveðs
og hvaða aðrar leiðir séu færar til að
tryggja rétt hafna til að fylga eftir
kröfum sínum.
• Hafnir eru hvattar til að nýta sér
heimildir í lögum til gjaldtöku fyrir
afnot mannvirkja og lóða, m.a. með
tilliti til aukinnar gámavæðingar.
• Því var beint til stjómar sam-
bandsins að farið yrði vandlega yfir
tillögur nefndar um breytingar á
reglugerð um vigtun sjávarafla og
nauðsynlegar breytingar gerðar sem
tryggi hagsmuni hafna.
• Skorað var á Alþingi að tryggja
fjárframlög til hafnargerða á gmnd-
velli hafnalaga. Hvatt er til þess að
hafnaáætlun sé unnin og samþykkt á
Alþingi að undangenginni áætlun
um hafnarþarfir. Með hafnaáætlun
sé stuðlað að stofnun hafnasamlaga
og að sameiningu hafnarsjóða, er
1 04