Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 62
BÆKUR OG RIT
Vegprestur, handbók um skóla
Fyrir skemmstu voru samþykkt á
Alþingi ný grunnskólalög. Þar er
m.a. kveðið á um að allur rekstur
grunnskólanna færist yfir til sveitar-
félaganna þann 1. ágúst 1996.
Margir sveitarstjórnarmenn eru
famir að velta þessum málum fyrir
sér og huga að þeirri ábyrgð sem
því fylgir að taka við grunnskólan-
um. Yfirfærslunni fylgir faglegt eft-
irlit og að sveitarstjómir á hverjum
stað móti sér sína skólastefnu.
Sveitarstjómarmenn og skólanefnd-
armenn þurfa því að setja sig meira
inn í skólamál en áður. A fjármála-
ráðstefnu Sambands íslenskra sveit-
arfélaga þann 23. nóvember sl.
sagði Olafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra m.a.: „Eg vil livetja
sveitarstjórnarmenn til að hafa
frumkvœði í... undirbúningsvinnu á
heimaslóð. Mikilvœgt er að sveitar-
stjórnarmenn rœði á sínum vett-
vangi hvernig taka skuli á hinu nýja
viðfangsefni, sem er ábyrgð á fag-
legu skólastaifi. Einnig er mikilvœgt
að þeir leiti samvinnu frœðslustjóra
og skólafólks við undirbúning verk-
efnisins á hverjum stað. Farsœlt fyr-
irkomulag grunnskólareksturs verð-
ur fyrst og fremst undir því komið
að sveitarstjórnarmenn takist á við
viðfangsefni af þeirri ábyrgð sem
það krefst og að góð samvinna tak-
ist með sveitarstjórnarmönnum og
skólafólki í viðkomandi sveitar-
félagi. “
Samtök fámennra skóla hafa nú
gefið út Vegprest, handbók fyrir
skóla. Hann er að stofni til safn
greina um skólamál. Hann skiptist í
sex hluta. í fyrsta hluta eru ýmsar
almennar upplýsingar um fámenna
skóla, s.s. stærð þeirra, staðsetningu,
samstarf og fleira. I öðmm hluta er
fjallað um ýmislegt er lýtur að
stjórnsýslu skólanna, s.s. fræðslu-
ráð, skólanefndir, mannaráðningar,
og sérstakur kafli er um skólaakstur,
þar sem sýnd em dæmi um samn-
inga um skólaakstur. Þriðji kaflinn
er um rannsóknir sem gerðar hafa
verið á fámennum skólum. Þar em
færð ýmis rök fyrir ágæti þessarar
skólagerðar. Fjórði kaflinn er
kennslufræðilegs eðlis. Þar er bent á
kennsluaðferðir sem gefist hafa vel í
skólum og þá ekki síst í fámennum
skólum. Fimmti hlutinn fjallar um
framtíðina. Þar er m.a. rætt um
möguleika á sameiningu grunn-
skóla, leikskóla og tónlistarskóla til
þess að styrkja skólahald í fámenn-
ari sveitarfélögum. Sjötti og síðasti
kaflinn er listi yfir lesefni þar sem
fjallað er um skólahald í fámennum
sveitarfélögum. Þó svo að Vegprest-
ur leggi mikla áherslu á hina fá-
mennari skóla koma leiðbeiningar
hans stærri skólum einnig til góða
enda margar hverjar almennar og
eiga við skólahald bæði í fámennum
og fjölmennum sveitarfélögum.
Sveitarstjómarmenn sem séð hafa
Vegprest hafa sýnt honum mikinn
áhuga. Hann er ómissandi handbók
fyrir sveitarstjórnarmenn, skóla-
nefndarmenn og alla aðra sem þurfa
og vilja fylgjast með skólamálum.
Vegprestur er 140 blaðsíður að
stærð. Hann kostar 2100 krónur og
er hægt að panta hann símleiðis hjá
Hafsteini Karlssyni í síma 486 3325
eða senda símbréf í 486 3460.
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Þorvarður Hjaltason
framkvæmdastjóri SASS
aÞorvarður
Hjaltason hefur
verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri SASS,
Samtaka sunn-
lenskra sveitarfé-
laga, frá 1. janú-
ar sl. Hjörtur Þórarinsson sem verið
hefur framkvæmdastjóri samtak-
anna frá árinu 1980 lætur nú af
störfum sökum aldurs.
Þorvarður er fæddur á Selfossi
21. ágúst 1951. Foreldrar hans em
Sigurveig Sigurðardóttir og Hjalti
Þorvarðarson, fyrrv. rafveitustjóri á
Selfossi.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að Laugarvatni
1971, stundaði nám í almennum
þjóðfélagsfræðum við Háskóla Is-
lands 1972-1974, lauk prófi frá
Kennaraháskóla íslands 1981 og
BA-prófi í stjómmálafræði frá Há-
skóla íslands 1991.
Þorvarður kenndi við Gagnfræða-
skólann á Selfossi og síðar við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands frá 1974 til
1994.
Þorvarður sat í bæjarstjórn Sel-
foss tvö kjörtímabil, 1986 til 1990
og 1990 til 1994. Hann sat um tíma
í fulltrúaráði SASS og var þar for-
maður orkunefndar. Hann er í orku-
ráði og hefur verið formaður stjóm-
ar Selfossveitna bs. frá 1990.
Þorvarður er kvæntur Ólafíu Sig-
urðardóttur meinatækni og eiga þau
þrjá syni.
1 24